Skuldir Landsvirkjunar hafa lækkað um 80 milljarða króna frá 2009

Hagnaður Lands­virkj­unar nam 78,4 millj­ónum Banda­ríkja­dala eða rúm­lega tíu millj­örðum íslenskra króna á síð­asta ári, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið 2014 sem var birtur í dag. Þetta er tölu­verður við­snún­ingur í rekstr­inum því árið 2013 varð 38,5 millj­óna dala tap á rekstr­inum, eða sem nemur fimm millj­örðum króna.

Rekstr­ar­tekjur Lands­virkj­unar hækk­uðu um 15,4 millj­ónir dala á milli ára, í 438,3 millj­ónir dala eða 57 millj­arða króna. Rekstr­ar­kostn­aður, án afskrifta og virð­is­rýrn­unar, jókst milli ára en hann var 93,8 millj­ónir dala árið 2013 en 106,1 millj­ónir dala í fyrra.

Eignir Lands­virkj­unar námu 4.270 millj­ónum dala í árs­lok, og hand­bært fé frá rekstri var 207 millj­ónir. Nettó skuldir Lands­virkj­unar lækk­uðu um 238,7 millj­ónir, eða 31 millj­arð króna, milli ára. Skuldir sam­stæð­unnar námu í lok 2014 2.190 millj­ónum dala, eða 284,8 millj­örðum króna.

Frá árs­lokum 2009 hafa skuldir Lands­virkj­unar lækkað um rúm­lega 80 millj­arða króna. „Með auk­inni fjár­muna­myndun vegna meiri orku­sölu, hærra verði á raf­orku og lægri skuld­setn­ingu munu tæki­færi til arð­greiðslna aukast veru­lega á næstu árum,“ er haft eftir Herði Arn­ar­syni for­stjóra í frétta­til­kynn­ingu með árs­reikn­ingnum.

Hann segir jafn­framt að rekst­ur­inn hafi gengið vel á síð­asta ári þrátt fyrir krefj­andi rekstr­ar­um­hverfi, sem hafi einkum vegna lágs álverðs og tak­mörk­unar á afhend­ingu raf­orku vegna slakrar vatns­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár