Atvinnulausir þurfi ekki lengur að treysta á jólagjöf frá ríkisstjórninni

Með fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar verður það ekki lengur háð ákvörðun rík­is­stjórnar hvort atvinnu­leit­endur fái des­em­ber­upp­bót. Réttur atvinnu­leit­enda til des­em­ber­upp­bótar verður tryggður í lögum, ef frum­varpið fæst sam­þykkt.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur lagt fram drög að laga­breyt­ingum í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, sem fela það í sér að í lögum verði skýrt kveðið á um að greiða skuli des­em­ber­upp­bætur á grunnatvinnu­leys­is­bætur.

Samkvæmt gild­andi lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar hefur ráð­herra heim­ild til að ákveða að greiða des­em­ber­upp­bætur til atvinnu­leit­enda, að fengnu sam­þykki rík­is­stjórnar hverju sinni. Reglu­gerð um upp­bæt­urnar til atvinnu­leit­enda hefur jafnan verið und­ir­rituð undir lok nóv­em­ber á und­an­förnum árum.

Frumvarp um þessar breyt­ingar, sem eiga að stuðla að auknum fyr­ir­sjá­an­leika fyrir ein­stak­linga sem eru án atvinnu, var samið í sam­starfi við nefnd sem hefur það hlut­verk að end­ur­skoða lög um atvinnu­leys­is­trygg­ingar í heild sinni, en í þeirri nefnd eiga sæti full­trúar frá ASÍ, BHM, BSRB, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, SA og Vinnu­mála­stofnun.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að þessi breyt­ing hafi verið talin þess eðlis að ekki þætti rétt að bíða með þær þar til heild­ar­end­ur­skoðun á lög­unum lýkur.

[adspot]

Samkvæmt frum­varps­drög­unum eiga allir þeir sem telj­ast tryggðir sam­kvæmt lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar og stað­festa atvinnu­leit á tíma­bil­inu 20. nóv­em­ber til 3. des­em­ber rétt á sér­stakri des­em­ber­upp­bót á grunnatvinnu­leys­is­bætur í sam­ræmi við lengd þess tíma sem fólk hefur verið skráð án atvinnu og trygg­inga­hlut­fall við­kom­andi á þeim tíma.

Desemberuppbótin var 92.229 krónur í fyrra

Gert er ráð fyrir að hámarks­fjár­hæð des­em­ber­upp­bót­ar­innar skuli nema 30 pró­sentum af óskertum grunnatvinnu­leys­is­bótum á ári hverju og að lág­marks­fjár­hæð verði 25 pró­sent af hámarks­fjár­hæð des­em­ber­upp­bótar. Enn fremur er gert ráð fyrir að Vinnu­mála­stofnun skuli greiða út des­em­ber­upp­bætur á grunnatvinnu­leys­is­bætur eigi síðar en 15. des­em­ber ár hvert.

Lagt til að ráð­herra skuli setja reglu­gerð þar sem nánar er kveðið á um skil­yrði fyrir greiðslu des­em­ber­upp­bótar á grunnatvinnu­leys­is­bætur.

Á síð­asta ári nam hámarks­fjár­hæð des­em­ber­upp­bótar til atvinnu­leit­enda 92.229 krónum og lág­marks­fjár­hæðin var 23.057 krónur. Til við­bótar voru svo greiddar 5.534 krónur með hverju barni á fram­færi atvinnu­leit­anda, eða sem nemur sex pró­sentum af óskertri des­em­ber­upp­bót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár