Innbyrðis flugvallardeila hjá Framsóknarflokknum

Inn­an­flokksá­tök í Fram­sókn­ar­flokknum eru að koma upp á yfir­borðið í tengslum við flug­völl­inn í Vatns­mýr­inni.

Inn­an­flokksá­tök í Fram­sókn­ar­flokknum eru nú komin upp á yfir­borðið í umræðum um flug­völl­inn í Vatns­mýri. Hösk­uldur Þór­halls­son þing­maður, sem sæk­ist eftir odd­vita­sæt­inu í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eins og for­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í morgun þar sem hann gagn­rýnir Sigmund Davíð harð­lega.

Hösk­uldur sagð­ist taka undir harða gagn­rýni Sig­mundar á sölu rík­is­ins á flug­vall­ar­landi í Vatns­mýr­inni til borg­ar­innar, en að hann geri veru­legar athuga­semdir við það sem hann segir ávirð­ingar hans í garð rík­is­stjórnar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, rangar sögu­skýr­ingar og vill­andi efn­is­tök.

Hann segir að í fyrsta lagi hafi Sigurður Ingi og þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins gagn­rýnt sölu á flug­vall­ar­land­inu harð­lega, en þeir hafi hvergi komið að mál­inu, heldur hafi það verið ákvörðun inn­an­ríkis- og fjár­mála­ráð­herra, sem bæði til­heyri Sjálf­stæð­is­flokknum. Þá segir Hösk­uldur það ótrú­verð­ugt ef ekki bein­línis rangt hjá Sigmundi Davíð að halda því fram að hann hafi gert það að skil­yrði fyrir und­ir­ritun sam­komu­lags við borg­ina um stofnun Rögnu­nefnd­ar­innar að hinni svoköll­uðu neyð­ar­braut yrði ekki lokað. Það komi hvergi fram í gögnum.

Hörð viðbrögð

Í kjöl­farið steig Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina fram á Facebook-síðu sinni til varnar Sigmundi Davíð. Hún sagði að Hösk­uldur hefði ekki sett sig inn í flug­vall­ar­málið eins og honum hafi borið að gera sem for­manni umhverfis- og sam­göngu­nefndar. „Þessi per­sónu­lega óvild hans í garð „Sig­mundar er alveg vand­ræða­leg og end­ur­spegl­ast í þekk­ingar- og áhuga­leysi Hösk­uldar á flug­vall­ar­mál­inu. Hösk­uldur sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar var í lyk­il­stöðu til að koma í veg fyrir lokun neyð­ar­braut­ar­innar en hann tók ekk­ert mark á inn­sendum athuga­semdum og rökum. Hösk­uldur sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar er sá aðili sem hefði getað brugð­ist við þegar örygg­is­nefnd Félags íslenskra atvinnu­flug­manna sendi vel rök­studdar athuga­semdir á umhverfis- og sam­göngu­nefnd í sept­em­ber í fyrra um að not­hæf­is­stuð­ull­inn væri rangt reikn­aður.“ Valdið hafi verið Hösk­uldar en hann hafi ekki notað það. „Margt hefur veið skrifað og sagt í flug­vall­ar­mál­inu, þessi grein hans Hösk­uldar slær öll met í þekk­ing­ar­leysi.“

Þessi gagn­rýni Guðfinnu var tekin upp í fjöl­miðlum og Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, er einn þeirra sem tekur undir með Guðfinnu með því að deila frétt RÚV um ummæli hennar á Facebook-síðu sinni.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, gerir líka lítið úr grein Hösk­uldar á Facebook-síðu sinni, en hann deilir grein yfir­manns síns.

Hösk­uldur hefur verið einna gagn­rýn­astur fram­sókn­ar­manna í garð Sig­mundar Davíðs. Hann er ekki ein­ungis að bjóða sig fram gegn honum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi heldur hefur hann hvatt Sigurð Inga Jóhanns­son til þess að bjóða sig fram til for­manns gegn Sigmundi. Haust­fundur mið­stjórnar flokks­ins verður í Hofi á Akureyri á laug­ar­dag­inn og þar verður flokks­þing boðað, þar sem kosið verður um for­ystu flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár