Formaður Orkunnar okkar leiðir Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi

Eyjólfur Ármanns­son, lög­fræð­ingur og for­maður hóps­ins Orkunnar okkar, mun leiða lista Flokks fólks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi til kom­andi kosn­inga.

Eyjólfur Ármannsson verður oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.
Eyjólfur Ármanns­son verður odd­viti Flokks fólks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Aðsend

Eyjólfur Ármanns­son verður odd­viti fram­boðs­lista Flokks fólks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokknum í dag.

Hann er for­maður Orkunnar okkar, sam­taka þeirra sem vilja standa vörð um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Íslands í orku­málum, sem voru afar áber­andi í umræð­unni um nokkuð skeið á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, er tek­ist var á um sam­þykkt hins svo­kall­aða þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins á þingi árið 2019.

Eyjólfur var einn aðal­höf­unda skýrslu sem sam­tökin unnu um málið, sem bar tit­il­inn „Áhrif inn­göngu Íslands í orku­sam­band ESB“. Odd­vit­inn er lög­fræð­ingur að mennt, með meist­ara­próf í lög­fræði frá HÍ og LL.M. frá Uni­versity of Penn­syl­vania.

Hann hefur starfað sem lög­fræð­ingur bæði á Íslandi og í Noregi, fyrir m.a. fjár­mála­ráðu­neytið, Isavia, Nordea og DNB. Eyjólfur hefur und­an­farið gætt hags­muna land­eig­enda í Arn­ar­firði og Dýra­firði í þjóð­lendu­málum sem eru til með­ferðar hjá Óbyggða­nefnd.

Eyjólfur ólst upp í Vest­manna­eyjum en er ætt­aður úr Lok­in­hamra­dal í Arn­ar­firði þar sem hann var tíðum í sveit sem ungur maður, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu frá Flokki fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár