Eignarhlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur í Brimi á leið í 52,8 prósent

Enn eru ekki allir fyr­ir­varar upp­fylltir vegna kaupa stærsta eig­anda Brims á stórum hlut í félag­inu af sjáv­ar­út­vegs­armi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á tæpa átta millj­arða króna. Búist er við því að kaupin gangi í gegn 1. des­em­ber.

Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi Brims og forstjóri félagsins.
Guð­mundur Krist­jáns­son er stærsti eig­andi Brims og for­stjóri félags­ins. Mynd: Brim

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur mun eiga um 52,8 pró­sent í Brimi þegar búið verður að ganga frá kaupum félags­ins á hlut FISK Seafood, sjáv­ar­út­vegs­arms Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu fyrir tæp­lega átta millj­arða króna. Fyr­ir­varar vegna kaupanna hafa enn ekki verið upp­fylltir en gert er ráð fyrir því að þeir verði það þann 1. des­em­ber næst­kom­andi.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands.

Kaup Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur á hlut FISK Seafood í Brim voru kunn­gjörð í byrjun sept­em­ber. FISK hafði nokkrum vikum áður keypt hlut Gildis líf­eyr­is­sjóðs í Brimi sem sjóð­ur­inn ákvað að selja vegna óánægju með kaup Brims á nokkrum sölu­fé­lögum af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­arða króna. Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, er for­stjóri Brims. Kaup­verðið sem var greitt fyrir sölu­fé­lögin var greitt með hluta­fjár­aukn­ingu í Brimi, sem nú hefur orðið að veru­leika.

Eftir hluta­fjár­aukn­ing­una er hlutur Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og tengdra aðila í þessu eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins orðin 42,71 pró­sent.

Nái Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur að upp­fylla fyr­ir­var­ana sem settir voru fyrir kaupum þess á hlut FISK Seafood í Brimi fyrir 1. des­em­ber næst­kom­andi mun eign­ar­hlutur þess í Brimi fara í 52,76 pró­sent. Í til­kynn­ingu til kaup­hallar segir þó að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur stefni „að því að hlutur þess af heild­ar­hlutafé Brim hf. verði undir helm­ingi hluta­fjár til fram­tíðar.“

Gildi fór vegna endurtekinna viðskipta við stærsta eigandann

Hinn 18. ágúst síð­ast­lið­inn var frá því greint að FISK Seafood hefði gert skipti á hluta­bréfum við Gildi líf­eyr­is­sjóð. FISK eign­að­ist hluta­bréf Gildis í Brimi og Gildi eign­að­ist meðal ann­ars hluta­bréf í Högum í stað­inn.

[adspot]Da­víð Rúd­ólfs­son, for­­stöð­u­­maður eigna­­stýr­ingar og stað­­geng­ill for­­stjóra Gildis líf­eyr­is­­sjóðs, sagði við Kjarnann að ástæða söl­unnar væru við­skipti Brims við stærsta hlut­hafa félags­ins, sam­þykkt hefðu verið á hlut­hafa­fundi í vik­unni á undan. Við­skiptin sner­ust um kaup Brims á öllu hlutafé í sölu­­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­­­arða króna. „Veg­ferðin sem félagið virð­ist vera á með end­ur­teknum og umfangs­miklum við­skiptum við stærsta hlut­hafa og for­stjóra félags­ins er óásætt­an­leg,“ sagði Davíð.

FISK var hins vegar ekki lengi hlut­hafi í Brimi. Hinn 9. sept­em­ber var til­kynnt um kaup Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur á hlut FISK í Brimi, sem var 10,18 pró­sent af heild­ar­hlutafé. Kaup­verðið var á geng­inu 40,4 og nam um átta millj­örðum króna. FISK hafði eign­ast bréfin á geng­inu 36, um þremur vikum fyrr, og því var hagn­að­ur­inn umtals­verður af þessum við­skiptum, eða um 1,4 millj­arðar króna.

Í grein á vefnum Feyki, sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem birt­ist skömmu síðar var fjallað um við­skiptin. Þar kom fram fram að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefði greitt 4,6 millj­arða króna af kaup­verð­inu með afla­heim­ildum í þorski, ýsu, ufsa og stein­bíti.

Gengi bréfa í Brimi er nú 38,25 krónur á hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár