Hluthöfum Íslandsbanka hefur fækkað um meira en tíu þúsund frá skráningu

Frá því að íslenska ríkið kláraði að selja 35 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka í fyrra­sumar hefur hlut­höfum í bank­anum fækkað um 44 pró­sent. Í milli­tíð­inni seldi ríkið 22,5 pró­sent hlut til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði. Sú sala er nú til rann­sóknar.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi inn fyrstu viðskipti með bankann í íslensku kauphöllinni í júní í fyrra.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hringdi inn fyrstu við­skipti með bank­ann í íslensku kaup­höll­inni í júní í fyrra. Mynd: Nasdaq Iceland

Íslenska ríkið hóf að selja hluti í Íslands­­­banka í fyrra, þegar 35 pró­­sent hlutur var seld­­ur, og bank­inn var skráður á markað í júní 2021. Þá voru hlut­hafar í bank­­anum sagðir 24 þús­und tals­ins.

Í almennu útboði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar var þátt­­taka almenn­ings mikil enda þótti útboðs­­geng­ið, 79 krónur á hlut, vera afar lágt miðað við efna­hags­­reikn­ing bank­ans og stöðu mála á hluta­bréfa­­mark­aði á þeim tíma. Á fyrsta degi við­­skipta hækk­­aði verðið um 20 pró­­sent.

Það skipti miklu máli í útboð­inu að þeir sem skráðu sig fyrir kaupum upp á eina milljón króna eða minna voru ekki skert­ir, þrátt fyrir að eft­ir­spurn eftir bréfum hafi verið níföld.

Salan á Íslands­banka var valin við­skipti árs­ins af Innherja, und­ir­vef Vísis sem fjallar um efna­hags­mál og við­skipti. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, tóku við verð­launum frá Innherja og sam­starfs­að­ila mið­ils­ins, vel­gjörða­fé­lags­ins 1881, á gala­kvöldi í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Strax í árs­lok 2021 hafði hlut­höfum í Íslands­banka fækkað umtals­vert, og voru þá 15.700. Því má ljóst vera að margir hafi selt hluti sína á því tæpa hálfa ári sem leið frá útboði og þar til að síð­ustu ára­mót gengu í garð. Hluta­bréfa­verð í Íslands­banka hækk­aði enda um 60 pró­sent á tíma­bil­inu. Sá sem keypti fyrir eina milljón krónur gat því leyst út hagnað upp á 600 þús­und krónur á nokkrum mán­uðum.

Sumir fagfjárfestar stoppuðu líka stutt við

Næsta skref í sölu á bank­anum var tekið 22. mars síð­ast­lið­inn, þegar 22,5 pró­sent hlutur var seldur á 117 krónur á hlut, sem var undir þáver­andi mark­aðsvirði. Þátt­tak­end­urnir fengu því bréfin á lægra verði en ef þau hefðu verið keypt á eft­ir­mark­aði. Afslátt­ur­inn var um fjögur pró­sent. Útboðið var lokað til­boðs­fyr­ir­komu­lag og var það í fyrsta sinn sem slíku útboði var beitt við sölu rík­is­eigna í Íslands­sög­unni. Alls 207 fjár­festar fengu að kaupa og hluti þeirra þeirra seldi sig fljótt aftur út með hagn­aði. Afslátt­ur­inn var rök­studdur með því að það væri alvana­legt alþjóð­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi að gefa afslátt.

[adspot]Salan varð fljótt afar umdeild, sér­stak­lega eftir að kaup­enda­list­inn var birtur. Sölu­ferlið hafði verið kynnt þannig að fara ætti þessa lok­uðu leið til að fá inn stóra fjár­festa sem ætl­uðu sér að verða eig­endur bank­ans til lengri tíma. Þegar salan var afstaðin kom hins vegar í ljós að alls 59 fjár­­­festar hefðu keypt fyrir minna en 30 millj­­ónir króna og 20 fyrir 30-50 millj­­ónir króna. Alls 167 aðilar keyptu fyrir 300 millj­­ónir króna eða minna. Innan við mán­uði eftir útboðið höfðu að minnsta kosti 34 kaup­endur þegar selt hlut­ina sem þeir keypt­u.

Hóp­­­ur­inn sem fékk að kaupa inn­­i­hélt meðal ann­­­ars starfs­­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­­ast fag­fjár­­­­­fest­­­ar, erlenda skamm­­­tíma­­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­­tíma­fjár­­­­­festar í Íslands­­­­­banka, fólk í virkri lög­­­­­reglu­rann­­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Vegna þessa var Rík­is­end­ur­skoðun falið að gera stjórn­sýslu­út­tekt á sölu­ferl­inu og fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur haft það til rann­sóknar. Hvorugur aðil­inn hefur birt neina nið­ur­stöðu enn sem komið er en skýrsla rík­is­end­ur­skoð­unar er til­búin í drögum og þeir sem hún snýr að hafa skilað inn umsögnum um drögin. Búist er við henni ein­hvern tím­ann í nóv­em­ber.

Hluthafar orðnir 13.559 talsins

Á meðan að á öllu þessu stóð hefur hlut­höfum í Íslands­banka haldið áfram að fækka.

Sam­kvæmt upp­gjöri Íslands­banka fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins voru hlut­hafar í Íslands­banka 13.559 í lok sept­em­ber. Þeim hefur því fækkað um rúm­lega tíu þús­und frá því í fyrra­sum­ar. Stærstu hlut­haf­arnir eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Íslands­banki er þó enn sá banki á mark­aði sem er með flesta hlut­hafa. Hjá Arion banka eru þeir 12.350, en þeim er hins vegar að fjölga hratt. Frá byrjun síð­asta árs hefur þeim fjölgað um 4.950, eða um 67 pró­sent.

Alls hefur hluta­bréfa­verð í Íslands­banka hækkað um 6,8 pró­sent það sem af er ári og er nú 63 pró­sent hærra en það var í almenna útboð­inu í fyrra­sum­ar og tíu pró­sent hærra en það var í lok­aða útboð­inu í mars.

[adspot]Í fjár­­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­­em­ber var gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­­sent hlutur rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka verði seldur fyrir 75,8 millj­­­arða króna.

Það er gert þrátt fyrir yfir­­lýs­ingu for­­manna stjórn­­­ar­­flokk­anna og að salan hafi verið sett á ís í vor á meðan að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun og fjár­­­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­­banka Íslands rann­­­sök­uðu hluta síð­­­asta skrefs sem stigið var í sölu­­­ferl­inu.

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun októ­ber að for­sæt­is­ráðu­neytið segði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­ar­hluta rík­­is­ins í Íslands­­­banka. Yfir­­lýs­ing for­­manna stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­ari hlutum í Íslands­­­banka að sinni, stendur því enn.

Miklar útgreiðslur til hluthafa

Íslands­banki hagn­að­ist um 18,5 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022. Arðsemi eigin fjár hefur hækkað skarpt milli ára, en hún var 14,2 pró­sent frá byrjun þessa árs og til loka sept­em­ber­mán­aðar á meðan að hún var 7,6 pró­sent á sama tíma­bili í fyrra. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans, sem mælir hvað kostn­aður er stór hluti af tekjum, hefur líka verið að lækka skarpt og er nú 41,9 pró­sent.

Íslands­­­banki greiddi hlut­höfum sínum 11,9 millj­­­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Auk þess kom fram fyrr á þessu ári að stjórn bank­ans stefni að því að greiða út 40 millj­­­arða króna í umfram eigið fé fyrir lok næsta árs. Þegar hefur verið sam­þykkt end­ur­kaupa áætlun fyrir 15 millj­arða króna í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár