Reisa 52 metra háan skorstein í Helguvík

Stakks­berg vinnur nú að 4,5 millj­arða end­ur­bótum á kís­il­málm­verk­smiðju félags­ins í Helguvík. Þar á meðal er 52 metra hár skor­steinn sem draga á úr mengun frá verk­smiðj­unni.

Kísilverksmiðjan í Helguvík
Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík Mynd: United Silicon

Stakks­berg ehf., félag í eigu Arion banka, vinnur nú að 4,5 millj­arða end­ur­bótum á kís­il­málm­verk­smiðj­unni í Helguvík. End­ur­bæt­urnar eru í sam­ræmi við skil­yrði sem Umhverf­is­stofnun setti þegar hún sam­þykkti úrbóta­á­ætlun fyrir verk­smiðj­una. Félagið stefnir að því að reisa 52 metra háan skor­stein sem draga á úr mengun frá verk­smimðj­unni, þar á meðal lykt­ar­mengun.

Lokuð vegna mengunar

[links]Kís­il­verið í Helgu­vík er fyrsta kís­­­il­­­málm­­­verk­­­smiðjan sem hefur verið gang­­­sett á Íslandi og fyrsti ljós­boga­ofn­inn í verk­smiðj­unni fór af stað 13. nóv­­­em­ber 2016. Fljót­­­lega fór að bera á mik­illi óánægju hjá íbúum í Reykja­­­nesbæ með mengun frá verk­smiðj­unn­i. Margir fundu fyrir tölu­verðum lík­­­am­­­legum ein­­­kennum vegna þessa og voru meðal ann­­ars haldnir fundir þar sem fólk deildi sögum sínum og kvart­aði undan meng­un­inn­i.

Í apríl 2017 til­­­kynnti Umhverf­is­­­stofnun for­svar­s­­­mönn­um United Sil­icon ehf. að ekki yrði hjá því kom­ist að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar sem frá henni streymdi. Í kjöl­farið voru veittir frestir en starf­­­semin var end­an­­­lega stöðvuð 1. sept­­­em­ber 2017.[adspot]

United Silicon fór í kjöl­farið í þrot en helsti kröfu­hafi félags­ins var Arion banki. Eftir gjald­þrotið tók félag í eigu bank­ans yfir kís­il­mál­verk­smiðj­una í Helguvík og lýsti því yfir að mark­mið þess væri að gera allar þær úrbætur sem nauð­­syn­­legar væru til að upp­­­fylla kröf­ur Um­hverf­is­stofn­un­ar, og koma verk­smiðj­unni aftur í gagnið.

Skorsteinn skilyrði Umhverfisstofnunar

Í nýrri frétta­til­kynn­ingu Stakks­bergs segir að fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur félags­ins fel­ast meðal ann­ars í því að reisa 52 metra skor­steinn við hlið síu­húss verk­smiðj­unnar en skor­stein­inn var meðal þeirra skil­yrða sem Umhverf­is­stofnun setti en óheim­ilt er að end­­­­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­­­­legri heim­ild frá stofn­un­inni.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni mun allur útblástur frá verk­smiðj­unni verða leiddur í gegnum síu­hús þar sem ryk er síað frá áður en loft­inu verður blásið upp um skor­stein­inn. Með nýja skor­stein­inum mun útblást­ur­sopið hækka um tæp­lega 21,5 metra auk þess að þrengj­ast veru­lega sem mun valda veru­legri aukn­ingu í útblást­urs­hraða. Þá á þreng­ingin að valda því að styrkur meng­un­ar­efn­anna þynn­ist út mun hraðar en áður.

Verk­fræði­stofan Vatna­skil hefur unnið að mati á áhrif end­ur­bót­anna á loft­gæðum fyrir Stakks­berg og að þeirra mati munu þessar end­ur­bætur draga veru­lega úr megnun frá verk­smiðj­unni. Þar á meðal lykt­ar­mengun í nær­liggj­andi íbúa­byggð. Í til­kynn­ingu félags­ins segir jafn­framt að und­ir­bún­ingur, hönnun og útfærsla end­ur­bóta á verk­smiðj­unni sé 4,5 millj­arða fjár­fest­ing.

Mikil and­staða á meðal íbúa

Mikil and­staða hefur byggst upp á meðal íbúa Reykja­nes­bæjar við frek­ari stór­iðju í Helgu­vík. Sú and­staða snýr bæði að end­ur­ræs­ingu kís­il­málm­vers Stakks­bergs og fyr­ir­hug­aðri verk­smiðju félags­ins Thorsil á svæð­inu. Vegna hennar hafa verið stofnuð félaga­sam­tökin „And­stæð­ingar stór­iðju í Helgu­vík“.

Sam­tökin stóðu fyrir und­ir­skrifta­söfnun til að efna til bind­andi íbúa­kosn­inga vegna starf­semi Stakks­berg og Thorsil í Helgu­vík sem þau afhentu bæj­ar­yf­ir­völdum í Reykja­nesbæ í febr­úar á þessu ár. Söfnunin var ekki sam­kvæmt reglum og því var ekki haldin kosn­ing á grund­velli henna. Þá hafa sam­tökin falið lög­manni að óska eftir því við Umhverf­is­stofnun að starfs­leyfi Stakks­bergs verði aft­ur­kallað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár