Mynd: United Silicon

Stakksberg telur íbúakosningu um stóriðju í Helguvík ólögmæta og geta leitt til bótaskyldu

Stakks­berg, félag í eigu Arion banka, hefur sent Reykja­nesbæ bréf þar sem félagið segir sveit­ar­fé­lagið skaða­bóta­skylt ef komið verður í veg fyrir starf­semi kís­il­málm­verk­smiðj­unar sem áður var í eigu United Silicon.

Stakks­berg, félag í eigu Arion banka sem heldur á kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, telur að íbúa­kosn­ing um breyt­ingar á skipu­lagi á svæð­inu sem félagið hefur óskað eftir að láta vinna sé ekki lög­mæt. Í bréfi sem félagið sendi Skipu­lags­stofnun, og Kjarninn hefur undir höndum, segir að „slíkar umsóknir verði að afgreiða á grund­velli lög­mætra og mál­efna­legra sjón­ar­miða en ekki í vin­sæld­ar­kosn­ingu.“ Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun Í Reykja­nesbæ þar sem kraf­ist er bind­andi íbúa­kosn­ingar vegna starf­semi kís­il­málm­verk­smiðja í Helguvík.

Í bréf­inu segir lög­maður Stakks­berg að þegar hafi verið fall­ist á starf­sem­ina sem hafi fengið öll leyfi og sé meðal ann­ars með gilt starfs­leyfi. „Verk­smiðjan hefur þegar verið byggð á lóð­inni fyrir um 22 millj­arða króna. Um er að ræða rétt­indi sem njóti verndar eign­ar­rétt­ar­á­kvæðis 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og atvinnu­rétt­indi sem njóti verndar 75. gr. stjórn­ar­skrár. Um slík rétt­indi verði ekki kosið í almennum kosn­ingum að mati Stakks­berg ehf.“

Verði kosið um málið, og nið­ur­staða þeirrar kosn­ingar verði sú að starf­semi kís­il­málm­verk­smiðj­unnar verði hafnað, þá telur Stakks­berg Reykja­nesbæ hafa bakað sér bóta­skyldu. Í bréf­inu segir að verði látin fara fram kosn­ing „og leiði hún til þess að ekki verði hægt að starf­rækja þá verk­smiðju sem þegar hefur verið byggð á lóð­inni mun það að mati Stakks­berg ehf. leiða af sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart eig­anda lóð­ar­innar[...]Sökin væri nokkuð aug­ljós enda um að ræða ásetn­ing til þess að koma í veg fyrir til­tekna starf­semi/upp­bygg­ingu sem þegar hafði verið fall­ist á og hefði þegar leitt til veru­legrar fjár­fest­ingar.“

Ef skipu­lagi yrði breytt til að koma í veg fyrir starf­semi verk­smiðj­unnar myndi það leiða til veru­legs tjóns sem birt­ist meðal ann­ars í því að „verð­mæti fast­eign­ar­innar skerð­ist veru­lega, umfram það sem við á um sam­bæri­legar eignir í næsta nágrenni. Augljóst má vera að skipu­lags­breyt­ing sem beind­ist beint gegn lóð­inni, einkum ef hún beind­ist ekki að lóð Thorsil, væri bóta­skyld. Mögulegt væri einnig að krefj­ast yfir­töku eign­ar­innar í heild gegn greiðslu fulls verðs[...]Í þessu sam­bandi er minnt á að þegar unnin fjár­fest­ing í verk­smiðju Stakks­berg nemur um 22 millj­örðum króna.“

Stofnunin sendi erindi Reykjanesbæjar til Stakksbergs

Skipu­lags­full­trúi Reykja­nes­bæjar sendi spurn­ingar sem lúta að deiliskipu­lags­breyt­ingum í Helguvík til Skipu­lags­stofn­unar 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Það var gert að beiðni bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar og í bréf­inu var óskað svara við alls níu spurn­ingum.

Svar hefur ekki borist frá Skipu­lags­stofnun vegna máls­ins. En slíkt barst hins vegar frá Stakks­bergi. Bæjarráð Reykja­nes­bæjar er ósátt við þessi vinnu­brögð og á síð­ast fundi þess, sem fram fór í gær, var bókað að bæj­ar­ráð óski eftir því að leitað verði svara hjá Skipu­lags­stofnun „hvers vegna lög­fræð­ingar hags­muna­að­ila í mál­inu þ.e. Stakks­bergs fengu afhentar spurn­ingar frá Reykja­nesbæ er lúta að deiliskipu­lags­breyt­ingum í Helguvík og heim­ild til þess að skila inn athuga­semdum áður en stofn­unin svar­aði Reykja­nesbæ.“

Bæj­ar­ráðið sam­þykkti auk þess að leggja fram þrjár spurn­ingar fyrir stofn­un­ina:

  1. Eru þetta alvana­leg vinnu­brögð Skipu­lags­stofn­unar?
  2. Telur Skipu­lags­stofnun að með þessu sé verið að gæta hlut­leysis?
  3. Á hvaða laga­grund­velli tók Skipu­lags­stofnun ákvörðun um að afhenda Stakks­bergi spurn­ingar Reykja­nes­bæjar?

Mikil óánægja vegna mengunar

Hart hefur verið tek­ist á um upp­bygg­ingu stór­iðju í Helgu­víkur eftir að kís­il­verk­smiðja United Silicon, sem var gang­sett í nóv­em­ber 2016. Fljót­­­lega eftir gang­setn­ingu fór að bera á mik­illi óánægju hjá íbúum í Reykja­­­nesbæ með mengun frá verk­smiðj­unn­i. Margir fundu fyrir tölu­verðum lík­­­am­­­legum ein­­­kennum vegna þessa og voru meðal ann­­ars haldnir fundir þar sem fólk deildi sögum sínum og kvart­aði undan meng­un­inn­i.

Í apríl 2017 til­­­kynnti Umhverf­is­­­stofnun for­svar­s­­­mönn­um United Silicon að ekki yrði hjá því kom­ist að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar sem frá henni streymdi. Í kjöl­farið voru veittir frestir en starf­­­semin var end­an­­­lega stöðvuð 1. sept­­­em­ber 2017 og fram­­­leiðsla hefur legið niðri síð­­­­­an.

United Silicon ehf. fór í kjöl­farið í þrot og yfir stendur saka­mála­rann­sókn á starfs­háttum innan félags­ins. Magnús Garð­ars­son, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri félags­ins, er meðal ann­ars grun­aður um fjár­svik og að hafa dregið að sér yfir 600 millj­ónir króna. Samkvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir þrotabú United Silicon er rök­studdur grunur um að Magnús hafi, í starfi sínu sem for­stjóri United Silicon, falsað reikn­inga og und­ir­skrift­ir, átt við lána­samn­inga og búið til gervi­lén í við­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu.

Þrota­búið hefur einnig stefnt Magnúsi til að reyna að end­ur­heimta það fé sem það telur að hann hafi stolið. Í októ­ber síð­ast­liðnum greindi Við­skipta­blaðið frá því að þrota­búið hefði einnig stefnt end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Ernst & Young sem sá um tíma um end­ur­skoðun United Silicon.

Andstæðingar vilja að starfsleyfi verði afturkallað

Helsti kröfu­hafi United Silicon var Arion banki. Eftir gjald­þrotið tók félag í eigu bank­ans, áður­nefnt Stakks­berg, yfir kís­il­mál­verk­smiðj­una í Helguvík og lýsti því yfir að mark­mið þess væri að gera allar þær úrbætur sem nauð­­syn­­legar væru til að upp­­­fylla kröf­ur Um­hverf­is­stofn­un­ar, og koma verk­smiðj­unni aftur í gagnið. Í kjöl­farið væri hægt að selja hana.

Mikil and­staða er við öll frek­ari áform um rekstur kís­il­málm­vera í Helguvík á meðal hluta íbúa Í Reykja­nesbæ, en auk verk­smiðju United Silicon hyggur félagið Thorsil á bygg­ingu slíkrar á svæð­inu. Vegna hennar hafa verið stofnuð félaga­sam­tökin „And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík“. Samtökin standa nú fyrir und­ir­skrifta­söfnun til að efna til bind­andi íbúa­kosn­inga vegna starf­semi Stakks­berg og Thorsil í Helguvík. Átakið fer m.a. fram á að beiðni Stakks­bergs um breyt­ingu á deiliskipu­lagi í Helguvík verði hafnað.

Þá hafa sam­tökin falið lög­manni að óska eftir því við Umhverf­is­stofnun að starfs­leyfi Stakks­bergs verði aft­ur­kallað. Í frétta­til­kynn­ingu vegna þessa sem send var út í dag segir að sam­tökin telji „ann­ars vegar að ákvörðun um útgáfu starfs­leyf­is­ins sé ógild­an­leg og hins vegar að alvar­leg til­vik og ítrekuð brot gegn lögum, reglum og ákvæðum starfs­leyf­is­ins hafi komið upp á gild­is­tíma þess og að úrbótum hafi ekki verið sinnt. ASH benda á að áður en starf­semin var loks stöðvuð hafði Umhverf­is­stofnun borist á annað þús­und kvart­ana vegna lykta­meng­unar frá verk­smiðj­unni þar sem lýst var marg­vís­legum lík­am­legum ein­kennum af hennar völdum. Þá telja ASH að annað hvort mat á umhverf­is­á­hrifum byggi á röngum for­sendum um fyr­ir­hug­aða starf­semi eða þá að hönnun og starf­ræksla verk­smiðj­unnar sé ekki í sam­ræmi við þær for­sendur sem lagðar voru til grund­vallar mat­inu og þar með útgáfu starfs­leyf­is­ins. Hvoru tveggja sé um að ræða veru­legan ann­marka á máls­með­ferð til und­ir­bún­ing útgáfu starfs­leyf­is­ins sem leiðir til þess að ákvörð­unin er ógild­an­leg og þar með aft­ur­kall­an­leg.“

Samtökin telja einnig ljóst að stöðvun starf­sem­innar ein og sér sé ekki til þess fallin að ná því mark­miði að tryggja nauð­syn­legar úrbætur þannig að frá­vikin end­ur­taki sig ekki heldur sé nauð­syn­legt að starfs­leyf­is­veit­ing­ar­ferlið sé end­ur­tekið á réttum for­sendum. Aft­ur­köllun starfs­leyf­is­ins sé eina úrræðið sem getur náð því mark­miði að tryggja til fram­búðar að starf­semi verk­smiðj­unnar verði í sam­ræmi við lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið undanfarið ár