Píratar vilja opna nefndarfundi Alþingis

Píratar mæltu í dag aftur fyrir frum­varpi um opna fundi hjá fasta­nefndum Alþingis. Segja það geta stuðlað að betri inn­sýn í for­sendur laga­setn­ingar og umræðu meðal fjöl­miðla og almenn­ings um þing­mál.

Frá opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Frá opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar leggja fram frum­varp um opna nefnd­ar­fundi. Í frum­varp­inu er boðuð breyt­ing á lögum um þing­sköp, þannig að nefnd­ar­fundir Alþingis verði að jafn­aði haldnir í heyranda hljóði með ákveðnum und­an­tekn­ingum.

Þannig verði hægt að halda fundi nefnda fyrir luktum dyrum ef fjalla á um gögn eða upp­lýs­ingar sem nefnd tekur við í trún­aði, ef starfs­menn Stjórn­ar­ráðs­ins koma fyrir þing­nefnd, ef gestur sem kemur fyrir nefnd óskar eftir því eða ef ræða skal mál sem verðar þjóðar­ör­yggi eða mik­il­væga hags­muni Íslands sem leynt þurfa að fara.

Helgi Hrafn mælti fyrir frum­varp­inu í dag, en þing­flokkur Pírata stendur allur að mál­inu. Helgi Hrafn hefur ítrekað talað fyrir því að þessar breyt­ingar verði gerðar á störfum þings­ins. Hann vakti nokkra athygli fyrir það á þar síð­asta þing­vetri þegar hann kom fyrst inn á þing að enda allar ræður sínar á orð­unum „að lokum legg ég til að nefnd­ar­fundir Alþingis verði hér eftir öllum opnir,“ og vís­aði þar í Róm­verj­ann Cató gamla sem end­aði allar sínar ræður í öld­unga­ráð­inu með því að leggja til að Karþagó yrði lögð í eyði. Helgi upp­skar nokkurn hlátur í þing­sal þegar hann sneri aftur á þing í des­em­ber síð­ast­liðnum og hélt upp­teknum hætti, þegar hann lauk fyrstu ræðu sinni um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra með sömu orðum.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að stór hluti lög­gjaf­ar­ferl­is­ins felist í nefnd­ar­fundum fasta­nefnda Alþingis. Fundir nefnd­anna séu að jafn­aði lok­aðir þótt oft komi þar fram gagn­legar upp­lýs­ingar um ein­staka þætti þing­máls sem geti verið gang­legir í almennri umræðu og við umfjöllun fjöl­miðla. „Breyting þing­skapa á þá leið að fundir fasta­nefnda Alþingis yrðu að jafn­aði opnir mundi veita betri inn­sýn í þær for­sendur sem liggja að baki laga­setn­ingu og til­lögum Alþingis og gera fjöl­miðlum og almenn­ingi betur kleift að fylgj­ast með þing­störfum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þannig sé frum­varp­inu ætlað að stuðla að því að fjöl­miðlaum­fjöllun og umræða meðal almenn­ings geti farið fram sam­hliða nefnd­ar­störfum en ekki ein­ungis eftir að nefnd hefur afgreitt mál og tekið það til umræðu í þing­sal að nýju. Slíkt fyr­ir­komu­lag myndi veita almenn­ingi og öðrum hags­muna­að­ilum færi á því að koma á fram­færi athuga­semdum og ábend­ingum áður en mál væri komið á loka­stig þing­legrar með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár