Mynd: EPA

Takmörkunum aflétt þótt Evrópa sé enn „í auga stormsins“

Skref í átt að „venju­legu lífi“ hafa verið tekin í Evrópu. Svæð­is­stjóri WHO í álf­unni segir næstu vikur tví­sýnar. „Eitt er víst að þrátt fyrir vor­veður stöndum við enn í auga storms­ins.“

Hægt og bít­andi eru mörg ríki heims að létta af tak­mörk­unum á sam­komum fólks. Bóka­búðir hafa verið opn­aðar á Ítalíu og börnin eru aftur mætt í skól­ann í Danmörku. Feta þessi ríki þar með í fót­spor yfir­valda í Wuhan – borg­inni þar sem kór­ónu­veiran á upp­runa sinn. Á sama tíma hvetur Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) til ítr­ustu var­kárni og segir að „hið versta“ sé enn framundan.

Framundan eru óvissu­tímar, eins og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, hefur sagt. Það sem stjórn­völd reyna nú, hér heima og erlendis, er að finna jafn­vægi á milli þess að vernda líf fólks og lifi­brauð þess.

Það gæti reynst þrautin þyngri og þegar hafa lönd sem aflétt hafa tak­mörk­unum stigið skrefin til baka. Önnur, sem héldu sig hafa náð góðum tökum á far­aldr­inum án mik­illa tak­mark­ana, hafa orðið að skipta um kúrs þegar önnur bylgja hefur skollið á af afli.

WHO varar stjórn­völd við því að slaka á tak­mörk­unum nema að hafa styrkt stoðir heil­brigð­is­kerfa landa sinna því aflétt­ing gæti orðið til þess að far­ald­ur­inn blossi upp að nýju. Því verði að losa um tökin smám saman. Sam­komu­bönn og félags­forðun hafa reynst árang­urs­rík tæki og fólk verður að búa sig undir breyttan lífs­stíl á meðan haldið verður aftur af útbreiðslu veirunnar, sagði Takeshi Kasai, einn umdæm­is­stjóra WHO, á blaða­manna­fundi sem fram fór á net­inu í morgun. „Þar til bólu­efni finnst verða aðferðir til að aðlag­ast far­aldr­inum hinn nýi veru­leiki.“

En hvaða leiðir eru ríki heims að fara til að koma sam­fé­lögum í samt horf? Leið­irnar eru nokkuð mis­jafnar en þó virð­ast þær flestar miða að því að aflétta tak­mörk­unum hægar en þær voru settar á.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur boðað afléttingu takmarkana í skrefum í landinu.
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, hefur boðað aflétt­ingu tak­mark­ana í skrefum í land­inu.

For­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, Jacinda Ardern, greindi frá því í gær að í næstu viku verður við­bún­aður vegna veirunnar færður niður um eitt stig. Það hefur í för með sér að skólar verða opn­aðir á ný, sum fyr­ir­tæki geta hafið starf­semi og veit­inga­hús sömu­leiðis en þó aðeins í heim­send­ingu.

Á Indlandi hefur alls­herjar sam­komu­bann verið fram­lengt til 3. maí. En í gær var því aflétt að hluta og gátu starfs­menn í ákveðnum atvinnu­greinum farið aftur til vinnu, s.s. í land­bún­aði og bygg­ing­ar­iðn­aði. Við þessar greinar starfa millj­ónir fátæk­ustu íbúa Indlands.

Minni versl­anir voru opn­aðar á ný í Þýska­landi í gær. Þá hefst skóla­starf smám saman frá 4. maí. Enn mega ekki fleiri en tveir hitt­ast (utan fólks af sama heim­ili) og ákveðið hefur verið að íþrótta- og tón­leika­hús verði lokuð til 31. ágúst. Þjóð­verjar hafa hafið umfangs­miklar mótefna­mæl­ingar til að reyna að kom­ast að því hversu útbreidd veiran raun­veru­lega var í sam­fé­lag­inu. Þegar þær nið­ur­stöður liggja fyrir verða ákvarð­anir um fram­haldið teknar.

Bókaunnendur í Þýskalandi hafa glaðst við opnun bókabúða þar í landi.
Bókaunn­endur í Þýska­landi hafa glaðst við opnun bóka­búða þar í landi.

Stjórn­völd á Ítalíu voru þau fyrstu í Evrópu til að grípa til harðra aðgerða enda varð norð­ur­hluti lands­ins snemma illa úti í far­aldr­inum. Í gær mátti opna bóka­búðir í Róm á ný eftir tveggja mán­aða alls­herjar lokun í land­inu. Félags­forðun margs­konar er enn í gildi, fólk skal enn halda fjar­lægð frá næsta manni og aðeins sex manns mega dvelja sam­tímis inni í hverri búð. Ekki verður gengið mikið lengra að sinni og flestar aðrar aðgerðir hafa verið fram­lengdar til maíloka. Yfirvöld ætla að fylgj­ast vel með hvernig tekst til í bóka­búð­unum áður en tak­mörk­unum á öðrum þáttum sam­fé­lags­ins verður aflétt í skrefum á næstu vikum.

Á Spáni er starfs­mönnum verk­smiðja og í bygg­ing­ar­geir­anum nú heim­ilt að sækja vinnu á nýjan leik en þó aðeins í iðn­að­ar­hverfum. Aðrar tak­mark­anir verða áfram í gildi til 9. maí. Spænsk börn hafa ekki getað farið út að leika sér vikum saman en þann 27. apríl er stefnt að breyt­ingu þar á og þeim verður leyft að fara út en þó aðeins í stuttan tíma í senn.

Um miðjan apríl voru leik- og grunn­skólar opn­aðir á ný í Danmörku. Fimm vikur eru síðan gripið var þar til harðra aðgerða sem m.a. þýddi að nudd­stofur, hár­greiðslu­stofur og fleiri fyr­ir­tæki sem veita þjón­ustu í mik­illi nánd var lokað. Þessi fyr­ir­tæki geta nú opnað dyr sínar á ný fyrir kúnnum.

Á gangi með grímu í Napolí.
Á gangi með grímu í Napolí.

Leik­skólar opn­uðu í Noregi í byrjun vik­unnar en börnin þurfa að vera í litlum hópum. Vonast er til að aðrir skólar verði opn­aðir í sum­ar­byrjun. Hár­greiðslu­stofum var öllum lokað í Noregi en um næstu mán­aða­mót er stefnt að opnun þeirra.

Í Gana hefur þriggja vikna útgöngu­banni verið aflétt á tveimur svæðum, m.a. í nágrenni höf­uð­borg­ar­innar Accra. Í Austur-Kongó er smám saman verið að aflétta lok­unum og munu bankar, stór­mark­aðir og sendi­ráð í höf­uð­borg­inni Kinshasa vænt­an­lega verða opnuð í þess­ari viku.

Í Suður-Kóreu, þar sem gripið var snemma til stífra tak­mark­ana, stendur til að aflétta sam­komu­banni á stöðum á borð við kirkjur og bari. Félags­forðun skal þó stunda í að minnsta kosti tvær vikur til við­bótar.

Líf og lifibrauð

Vís­inda­menn eru ekki á einu máli um hvernig sé best að bera sig að. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur bent á að engin „ein upp­skrift“ sé til. Sumir vilja halda hörðum aðgerðum áfram um hríð svo að hraðar verði hægt að aflétta þeim þegar það verður tíma­bært.

Hjá stjórn­mála­mönnum vega efna­hags­legu áhrifin hins vegar þungt. Í Evrópu er því spáð að atvinnu­leysi muni tvö­fald­ast og tugir millj­óna starfa í álf­unni eru í hættu. Stjórn­völdum í Frakk­landi og Bret­landi þykir enn ekki tíma­bært að aflétta tak­mörk­unum á sam­komum fólks og hafa slíkt ekki á stefnu­skránni í bráð.

Forsætisráðherra Danmerkur spjallar við börn á fyrsta degi skólahalds eftir margra vikna samkomubann.
For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur spjallar við börn á fyrsta degi skóla­halds eftir margra vikna sam­komu­bann.

Þjóð­verjar þykja hafa sýnt gott for­dæmi í aðgerðum sínum. Þeir hafa, líkt og Íslend­ingar, tekið fjöl­mörg sýni, rakið smit og ein­angrað sýkta. Og nú telja þeir tíma­bært að vinda ofan af aðgerðum sínum. Angela Merkel kansl­ari hvetur þó til ítr­ustu var­úðar. „Það væri synd og skömm ef við færum beint aftur á byrj­un­ar­reit,“ sagði hún á blaða­manna­fundi nýverið. „Við megum ekki verða kæru­laus og skapa falska örygg­is­til­finn­ingu. Við erum ekki enn komin á hápunkt far­ald­urs­ins.“

Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO, sagði í gær að „hið versta“ væri enn framundan. „Við skulum koma í veg fyrir hörm­ungar. Þetta er veira sem margt fólk skilur ekki enn.“

Svæð­is­stjóri WHO í Evrópu, Hans Henri P. Kluge, segir að næstu vikur verði tví­sýnar í álf­unni. „Áhrif þess­arar veiru hafa sett skugga á allt okkar líf. [...] Eitt er víst að þrátt fyrir vor­veður stöndum við enn í auga storms­ins.“

Hann segir að far­ald­ur­inn eigi enn eftir að láta finna fyrir sér af fullum þunga í nokkrum Evr­ópu­löndum. Á sama tíma fari smitum fækk­andi í öðrum. Í öllum þeim er þó hætta á að veiran breið­ist út á nýjan leik. „Það er bráð­nauð­syn­legt að við sofnum ekki á verð­inum. En aðgerðir á borð við sam­komu­bönn hafa áhrif á líf fólks og lífs­við­ur­væri. Fólk spyr skilj­an­lega: Hversu lengi til við­bótar þurfum við að halda þetta út? Stjórn­völd og heil­brigð­is­yf­ir­völd verða að finna út hvenær og undir hvaða kring­um­stæðum við getum með öruggum hætti aflétt aðgerðum í skrefum.“

Enga töfra­lausn sé að finna. „Leiðin framundan er óviss og flókin. [...] Hegðun hvers og eins okkar mun að lokum ákveða hegðun veirunnar. Það mun þurfa þraut­seigju og þol­in­mæði til, það er ekki hægt að stytta sér leið að eðli­legu ástandi.“

Tattústofur hafa verið opnaðar á ný í Þýskalandi.
Tattú­stofur hafa verið opn­aðar á ný í Þýska­landi.

Þegar komi að aflétt­ing­unni verði ákveðin skil­yrði að vera til staðar, m.a. þau að sjúkra­hús séu fær um sinna sínu hlut­verki við að greina, ein­angra og sinna sjúkum, að smit­hættu á öldr­un­ar­heim­ilum og á almanna­færi sé haldið í lág­marki og að vinnu­staðir geti gætt að sótt­vörnum s.s. með því að halda fjar­lægð fólks á milli.

„Mitt helsta ráð sem toppar allt annað? Ef þú getur ekki tryggt að þessi skil­yrði séu til staðar: Áður en slakað verður á tak­mörk­unum – vin­sam­lega end­ur­skoð­aðu hug þinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið undanfarið ár