Kaflaskil í baráttunni gegn loftslagsbreytingum?

Ríkjum heims hefur gengið treg­lega að upp­fylla sátt­mála um minni kolefn­islosun. Nú kann að verða breyt­ing á vegna harðn­andi sam­keppni Banda­ríkj­anna og Kína og þess að fjár­fest­ingar í grænni tækni aukast hratt og örugg­lega.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Antony Blinken, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðuneytið

Antony Blinken utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna flutti nýlega ávarp þar sem hann lagði áherslu á nauð­syn þess að Banda­ríkja­menn myndu taka for­ystu og verða leið­andi í lofts­lags­málum – þar væri fram­tíð jarð­ar­innar í húfi. En það fælust einnig í því mikil tæki­færi til að skapa góð störf fyrir kom­andi kyn­slóðir og sann­gjarnt, heil­brigt og sjálf­bært sam­fé­lag. Þetta eru háleit mark­mið eins og við er að búast frá nýjum ráð­herra og spyrja má hvort þetta sé eitt­hvað meira en bara orðin tóm.

Þegar almenn­ingur, fyr­ir­tæki og hið opin­bera stendur frammi fyrir því að mæta kröfum um umhverf­is­vernd og sjálf­bærni vegna bar­átt­unnar við lofts­lags­breyt­ingar, er margt sem stendur í veg­inum. Það kostar tíma, fyr­ir­höfn og fjár­muni að taka upp nýja starfs- og lifn­að­ar­hætti, með minni útblæstri, mengun og kolefn­is­spori, flokkun sorps og úrgangs o.s.frv. Þrátt fyrir við­leitni á öllum sviðum sam­fé­lags­ins, allt frá ein­stak­lingum sem breyta kaup­hegðun til alþjóða­sam­starfs um lofts­lags­mál, hefur staðið á nægi­lega rót­tækum við­brögðum. Svo virð­ist að þar til beinn áþreif­an­legur hagn­aður af umbreyt­ing­unum er í aug­sýn verði aðgerðir hálf mátt­litlar.

Umhverfismál verða stórveldastjórnmál

Gjarnan er talað um stór­velda­stjórn­mál í nei­kvæðu ljósi, sem er eðli­legt því að þar sýna hin öfl­ugri ríki oft vald sitt án þess að þurfa að svara fyrir afleið­ing­arnar. En bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum hefur borist liðs­auki úr óvæntri átt því að lofts­lags­mál eru farin að vera hluti af stór­velda­stjórn­málum – komin á dag­skrá sem grund­vall­ar­mál í sam­keppni um völd. Banda­ríkin horfa nú fram á að Kína verði sífellt öfl­ugri keppi­nautur um for­ystu í heim­inum. Antony Blinken segir í fyrr­nefndu ávarpi erfitt að sjá fyrir sér að Banda­ríkin geti unnið þá sam­keppni ef þau leiði ekki bylt­ing­una í end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum og segir þau vera að drag­ast aftur úr. Kína sé stærsti fram­leið­andi og útflytj­andi heims á sól­ar­sellum, vind­myllum, raf­hlöðum og raf­bílum og eigi næstum þriðj­ung einka­leyfa í end­ur­nýj­an­legri orku.

Blinken sagði jafn­framt að ekki beri að líta á lofts­lags­breyt­ingar ein­göngu sem ógn því að hvert og eitt ríki þurfi að gera tvennt: draga úr losun og búa sig undir óhjá­kvæmi­leg áhrif af lofts­lags­breyt­ingum. Þetta kalli á tækni­legar úrlausnir. Banda­rísk nýsköpun og iðn­aður geti þarna verið í far­ar­broddi á báðum víg­stöðvum og hann vitnar í orð Joes Biden: „Þegar ég hugsa um lofts­lags­breyt­ingar hugsa ég um störf.“

Þetta kann að hljóma eins og dæmi­gerð inni­halds­laus og jafn­vel takt­laus yfir­lýs­ing en nú er ýmis­legt sem bendir til þess að lands­lagið sé að breyt­ast og þetta sé raun­sætt mat sem gæti haft afger­andi áhrif á þróun mála.

Umbreyting í áhættufjárfestingum

Það sem hefur staðið áhættu­fjár­fest­ingum í grænum verk­efnum fyrir þrifum er hin nýja óreynda tækni og hversu langur tími getur liðið þar til fjár­fest­ingin skilar arði, en flestir vilja sjá ávöxtun eftir fimm til sjö ár. Nú eru merki um að fjár­festar séu í meira mæli til­búnir til fjár­fest­inga í grænum verk­efnum en áður. Orku­fyr­ir­tæki sem þróa grænar lausnir í orku­vinnslu og geymslu njóta nú t.d. stuðn­ings áhættu­fjár­festa eins og sjóða í eigu Bills Gates eða úr olíu­geir­anum. Þetta end­ur­speglar eðli þró­unar græna mark­að­ar­ins í áhættu­fjár­fest­ingum.

Árið 2019 var fjár­fest­ing sem tengd­ist grænum verk­efnum á heims­vísu um 36 millj­arðar doll­ara og hafði meira en tvö­fald­ast frá árinu 2015. Helm­ing­ur­inn rann til sprota­fyr­ir­tækja í Norður Ameríku en í Kína var hlut­ur­inn á bil­inu 15 til 30 pró­sent, allt eftir því hvernig greinin er skil­greind og í Evrópu um 15 af hundraði. Að sögn Bills Gates ætti þetta að ýta undir nýsköpun og von­andi lækka hlut­falls­legan kostnað lofts­lagsvænnar tækni, jafn­vel án þess að koma þurfi til íþyngj­andi aðgerða stjórn­valda gagn­vart meng­andi iðn­aði. Hann leggur áherslu á að þetta þurfi að ger­ast í öllu iðn­að­ar­hag­kerf­inu, ekki ein­ungis í orku- og flutn­inga­geir­anum.

[adspot]

Áhættu­fjár­fest­ingar í grænum verk­efnum hafa verið brokk­gengar en í lok fyrsta ára­tugar ald­ar­innar varð mikil upp­sveifla og síðan hrun. Ein ástæðan var sú að áhættu­fjár­fest­ing­ar­sjóðir not­uðu fjár­mögn­un­ar­líkan sem var hannað fyrir hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki á fyr­ir­tæki sem fram­leiða eig­in­legar vörur, aðal­lega sól­ar­sellur og líf­elds­neyti. Slík fyr­ir­tæki þurfa langan tíma og mikið fjár­magn áður en þau fara að skila tekjum og mörg fyr­ir­tæki fóru á haus­inn. Fjár­festar töp­uðu þar meira en helm­ingi þeirra 25 millj­arða Banda­ríkja­dala sem þeir höfðu lagt til og héldu að sér höndum í kjöl­farið.

Nú verður svið grænnar tækni og þró­unar sífellt fjöl­breytt­ara með fleiri fjár­fest­ing­ar­kostum og fjár­magn aftur tekið að streyma, en um það bil helm­ingur við­skipta snýst um kolefn­is­lausar sam­göngur. Einn hvat­inn að því er gengi Tesla en árið 2004 keypti Elon Musk 14 pró­senta hlut í raf­bíla­fram­leið­and­anum fyrir 6,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Sex árum síðar fór fyr­ir­tækið á markað og er í dag 385 millj­arða doll­ara virði, mun meira en nokkur annar bíla­fram­leið­andi. Bara hlutur Elons Musk er 72 millj­arða virði, sem er hátt í sam­an­lagt virði bíla­fram­leið­end­anna General Motors og Ford.

Eigna­söfn í grænum fyr­ir­tækjum hafa jafn­framt hækkað mjög hratt í verði að und­an­förnu, sum meira en tvö­fald­ast á rúmu ári. Þetta eru m.a. fjár­fest­ingar sem bein­ast að sjóðum sem byggja á sam­fé­lags­á­byrgð – UFS (e. En­viron­mental-Social-Go­vern­ance) sem stend­ur fyr­ir þætti í rekstri sem tengj­ast um­hverfi, fé­lags­leg­um þátt­um og stjórn­ar­hátt­um. Á heims­vísu var fjár­fest­ing í slíkum UFS-sjóðum um 178 millj­arðar dala á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs, sam­an­borið við 38 millj­arða á sama árs­fjórð­ungi í fyrra.

Hefð­bundnir fjár­fest­ing­ar­sjóðir hafa einnig snúið sér að grænum fjár­fest­ingum. Ef skoð­aðar eru eignir í til­teknum fyr­ir­tækjum með hreina orku þá voru í lok árs 2020 að jafn­aði 138 sjálf­bærir sjóðir á bak við hvert fyr­ir­tæki sam­an­borið við 81 ári áður. Fjöldi eig­enda utan UFS-staðla jókst einnig úr 390 í 624. Að sögn sér­fræð­inga er fjár­fest­ing í hreinni orku að verða hluti af hefð­bundnum fjár­fest­ingum og er ekki lengur ein­hvers­konar gælu­verk­efni ein­stakra sér­hæfðra sjóða.

Björninn er ekki unninn

Það gæti þó verið vara­samt að líta á þessa miklu aukn­ingu í grænni fjár­fest­ingu sem var­an­lega. Fjár­mála­mark­aðir hafa til­hneig­ingu til að fara upp og niður, fjár­fest­ingar í til­teknum geirum kom­ast í tísku og mark­að­ur­inn ein­kenn­ist af froðu sem á end­anum myndar bólu – sem síðan springur.

Að sama skapi kynni ein­hver að draga í efa að ný stjórn í Banda­ríkj­unum breyti miklu til fram­tíðar því það gæti verið komin ný stjórn innan fárra ára sem sneri aftur til stefnu Donalds Trump. Sú stefna gefur grænum lausnum við að tak­marka kolefn­islosun langt nef, afgreiðir þær sem ein­hverja draum­óra og þar fær þunga­iðn­aður knú­inn jarð­efna­elds­neyti frekar braut­ar­gengi.

Slík stefna heldur enn velli víða og mörg ríki heims eiga langt í land með að ná settum mark­miðum, m.a. Íslend­ingar. Samkvæmt Par­ís­ar­sátt­mál­anum árið 2015 hétu ríkin því að dragar úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna brennslu jarð­efna­elds­neytis til að halda hækkun hita­stigs á jörð­inni undir tveimur gráðum. Nú þegar með­al­hiti hefur hækkað um eina gráðu frá byrjun iðn­bylt­ingar eru afleið­ing­arnar þegar orðnar geig­væn­legar, með hita­bylgjum, þurrkum, skóg­ar­eldum og óveð­urs­bylgjum sem versna vegna hækk­andi sjáv­ar­borðs. Ennþá halda ríki áfram að losa gróð­ur­húsa­loft­teg­undir sem með sama áfram­haldi myndi valda milli 3–4 gráðu hækkun hita­stigs í lok ald­ar­innar.

Því er einmitt haldið fram að mesta hindr­unin sé af póli­tískum toga því þarna snýst málið um að snúa við stefnu sem í mörgum til­fellum snertir grund­vall­arat­vinnu­vegi við­kom­andi ríkja og lífs­af­komu heilla sam­fé­laga. Þetta eru ákvarð­anir sem fram að þessu hafa snú­ist um óljósan fram­tíð­ar­á­vinn­ing þegar stjórn­mála­menn hall­ast frekar að stefnu­mörkun sem gefur skjót­ari ávinn­ing og kemur kjós­endum í nærum­hverfi til góða.

Grundvallarbreyting að verða

Allt bendir hins vegar til þess að nú sé að verða grund­vall­ar­stefnu­breyt­ing sem verði ekki við­snúið. Afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga og meng­unar eru að verða áþreif­an­legar og einnig sá hagn­aður sem má upp­skera af því að koma í veg fyrir hina nei­kvæðu þróun. Samfara því eru fjár­festar farnir að sjá áhættu­fjár­fest­ingar í grænum verk­efnum sem álit­legan kost og merki eru um að það sé ekki ein­göngu bundið við sess-fjár­festa (e. niche investors) heldur sé hluti af fjár­fest­ing­ar­stefnu venju­legra fjár­fest­ing­ar­sjóða. Að sama skapi bendir einnig ýmis­legt til þess að þrátt fyrir að ekki megi treysta til lengdar á þá spreng­ingu sem hefur orðið í fjár­fest­ingum í grænum verk­efnum und­an­farin ár, sé ekki um tísku­fyr­ir­brigði og bólu að ræða heldur marki þetta upp­haf að vexti til lengri tíma.

Talið er að kostn­aður ríkja heims af því að mis­takast að efna Par­ís­ar­sátt­mál­ann um rót­tæka stefnu­breyt­ingu í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, gæti numið allt að 600 billjónum doll­ara – 600 þús­und millj­örðum. Það er svo há upp­hæð að erfitt er að átta sig á henni og er einmitt kannski bara tölur á blaði – og hingað til hafa slíkar tölur ekki hreyft við fólki. En nú þegar fyr­ir­tæki sjá orðið hag af umbreyt­ing­unum og grund­vall­ar­stefnu­breyt­ing er að verða hjá stórum ríkjum eins og Banda­ríkj­unum og Kína – sem keppa munu um for­ystu­hlut­verk í heim­inum – má búast við að stefnu­breyt­ing í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum gæti orðið mark­viss­ari og því skilað meiri árangri en fram að þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár