Bætur hækkaðar í 300 þúsund og frítekjumark sett á

Rík­is­stjórn Íslands leggur til breyt­ingar á almanna­trygg­inga­frum­varp­inu sem liggur fyrir Alþingi, á þann hátt að líf­eyr­is­greiðslur bæði aldr­aðra og öryrkja hækki í 280 þús­und krónur um ára­mótin og 300 þús­und krónur frá árs­byrjun 2018.

Þá verði sett á frí­tekju­mark á allar tekjur eldri borg­ara, sem verði 25 þús­und krónur.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni, en þar segir að ákvörð­unin hafi verið tekin á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag, í kjöl­far ábend­inga um frum­varpið. Það hefur verið harð­lega gagn­rýnt, ekki síst þessi atriði sem nú á að breyta.

„Í umræðu um frum­varpið hafa komið fram gagn­legar ábend­ingar um stöðu eldri borg­ara og ýmis atriði sem betur mættu fara í frum­varp­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Skoðuð hafa verið áhrif auk­inna fram­laga til almanna­trygg­inga á stöðu rík­is­fjár­mála til skemmri og lengri tíma. Að lok­inni þeirri athugun telur rík­is­stjórnin, í ljósi ábyrgrar efna­hags­stjórn­unar og þess mikla árang­urs sem náðst hefur á kjör­tíma­bil­inu í rík­is­fjár­málum, að unnt sé að stíga veiga­mikil skref til bættra kjara aldr­aðra og öryrkja. Byggist það á sterkri stöðu þjóð­ar­bús­ins og jákvæðum fram­tíð­ar­horfum.“

Því verði eldri borg­urum sem haldi einir heim­ili tryggðar 300 þús­und krónur á mán­uði frá ára­mótum 2018, enda hafi þeir ekki aðrar tekjur sem hafa áhrif á fjár­hæð bót­anna. Bæturnar eiga að hækka í 280 þús­und nú um ára­mótin. Sama gildir um bætur til öryrkja.

Þá verður sett frí­tekju­mark á allar tekjur eldri borg­ara, líf­eyr­is­sjóðs­tekjur, atvinnu­tekjur eða fjár­magnstekjur. Þetta verður und­an­þegið útreikn­ingi bóta og verður 25 þús­und krónur.

Hækkun líf­eyr­i­s­töku­ald­urs verður svo hraðað um 12 ár þannig að hækkun lág­marks­líf­eyr­i­s­töku­ald­urs fer úr 67 árum í 70 á 12 árum en ekki 24 árum.

Stjórn­völd segja að þetta muni hækka bætur almanna­trygg­inga mikið á næstu tveimur árum. Árlegur kostn­aður við þetta eru 4,5 millj­arðar króna til við­bótar við 5 til 5,5 millj­arða sem áður var búið að reikna með öðrum breyt­ingum á almanna­trygg­inga­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár