Mynd: Bára Huld Beck

Þrjú sem voru í lykilhlutverkum í Landsréttarmálinu berjast um tvö sæti í Landsrétti

Dómnefnd hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þrír af sjö umsækj­endum um emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara séu jafn hæf og að ekki verði gert upp á milli þeirra. Einn umsækj­andi er þegar dóm­ari við rétt­inn en má ekki dæma.

Dómnefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þrír umsækj­endur séu hæf­astir þeirra sjö sem sóttu um tvö emb­ætti, og að ekki verði gert upp á milli þeirra.

Þeir þrír umsækj­endur sem um ræðir voru öll í lyk­il­hlut­verkum í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða, sem sner­ist um það að þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Sigríður Á. Andersen, gerði breyt­ingu á til­lögu dóm­nefndar um þá 15 dóm­ara sem myndu skipa Lands­rétt þegar hann hæfi starf­semi í byrjun árs 2018.

Um er að ræða Ástráð Har­alds­son og Jón Hösk­ulds­son, sem dóm­nefnd hafði metið á meðal 15 hæf­ustu umsækj­enda en ráð­herr­ann ákvað að til­nefna ekki, og Ragn­heiði Braga­dóttur, sem var ekki á meðal þeirra 15 sem voru metin hæfust en var samt skipuð. Alþingi sam­þykkti til­nefn­ingar ráð­herr­ans í júní 2017.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­­dóm­­­­stóll Evr­­­­ópu að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­­ar­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­­með­­­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­mála­ráð­herra.

Því máli var skotið til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem hefur enn ekki lokið umfjöllun sinni um málið.

Þau fjögur sem sóttu um emb­ættin tvö voru, auk þeirra þriggja sem metin voru hæfust, Hildur Briem hér­aðs­dóm­ari, Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari, Stefán Geir Þórisson lög­maður og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son lög­maður. Jóhannes Rúnar var einnig á meðal þeirra fjög­urra sem dóm­nefnd mat á meðal 15 hæf­ustu við upp­haf­lega skipun í Lands­rétt, en var ekki á þeim lista sem þáver­andi dóms­mála­ráð­herra lagði fyrir Alþingi til sam­þykktar.

Stólaleikur

Þeir fjórir dóm­arar við Lands­rétt sem máttu ekki fella dóma eftir að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins lá fyrir hafa hver á fætur öðrum sótt um lausar stöður við rétt­inn á þessu ári. Þegar hafa Ásmundur Helgason og Arn­fríður Ein­ars­dóttir verið skipuð að nýju af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra það sem af er árinu 2020.

Ragn­heiður hefur sóst eftir þeim stöðum líka en ekki verið metin jafn hæf og þau Ásmundur og Arn­fríður. Sá eini fjór­menn­ing­anna sem hafa ekki mátt dæma í málum frá því í fyrra sem hefur ekki sóst eftir að vera skip­aður að nýju er Jón Finn­björns­son, en hann var neðstur þeirra allra sem voru á end­anum skip­aðir í hæf­is­mat­inu sem fram­kvæmt var 2017. Þar var hann í 30. sæti.

Ástráður hefur einnig sótt um báðar þær stöður en í hvor­ugt skiptið verið met­inn jafn hæfur og þau sem skipuð voru, þrátt fyrir að hafa bætt við sig dóm­ara­reynslu sem hér­aðs­dóm­ari frá árinu 2017. Á því er breyt­ing nú.

Ástráður Haraldsson hefur ítrekað sótt um embætti Landsréttardómara. Mynd: Ríkissáttarsemjari
Ástráður Har­alds­son hefur ítrekað sótt um emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara. Mynd: Rík­is­sátt­ar­semj­ari

Í álykt­un­ar­orðum í umsögn dóm­nefndar segir að það sé „nið­ur­staða dóm­nefndar að Ástráður Har­alds­son, Jón Hösk­ulds­son og Ragn­heiður Braga­dóttir séu hæfust umsækj­enda til að hljóta skipum í tvö emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, sem aug­lýst voru til umsóknar 19. júní, og ekki verði gert upp á milli hæfi þeirra þriggja að því er það varðar.“ Dóm­nefnd­ina skip­uðu: Eiríkur Tómasson, for­maður, Halldór Hall­dórs­son, Helga Melkorka Ótt­ars­dóttir, Kristín Bene­dikts­dóttir og Óskar Sig­urðs­son.

Allir fjórir höfðuðu mál

Þeir fjórir sem Sigríður færði af list­anum yfir þá sem voru metnir hæf­astir við skipun Lands­réttar árið 2017 stefndu allir vegna máls­ins. Fyrst stefndu Ástráður og Jóhannes Rúnar rík­­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­ar. Hæst­i­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í des­em­ber 2017 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn hæf­is­mati dóm­­­­­nefnd­­­­­ar­inn­­­­­ar. Þeir voru þá báðir starf­andi lög­­­­­­­­­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­­­­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra.

Hinir tveir, Jón og Eiríkur Jónsson, höfð­uðu líka mál gegn íslenska rík­inu vegna ólög­mætrar skip­unar á Lands­rétt­ar­dóm­ur­um. Í októ­ber 2018 komst hér­aðs­dómur Reykja­víkur að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið þyrfti að greiða þeim báðum bæt­ur. Í mars komst Lands­réttur að þeirri nið­ur­stöðu í málum þeirra að ákvörðun þáver­andi dóms­mála­ráð­herra hefði falið í sér veru­lega mein­gerð gegn æru og per­sónu mann­anna tveggja. Skaða­bætur til Jóns voru hins vegar felldar niður og Eiríki voru ekki dæmdar neinar bætur, en hann hafði í milli­tíð­inni verið skip­aður dóm­ari við Lands­rétt.

Í maí síð­ast­liðnum var greint frá því að Hæsti­réttur Íslands hefði fall­ist á mál­skots­beiðni Eiríks og Jóns og mun málið því hljóta end­an­lega nið­ur­stöðu þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið undanfarið ár