Sigríður og Guðlaugur Þór efst á lista Sjálfstæðisfloksins

Sigríður Andersen og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sem bæði voru ráð­herrar í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, leiða lista Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík.

Sigríður Andersen leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður.
Sigríður Andersen leiðir lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík suður. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son og Sig­ríður Á. And­ersen munu leiða lista Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­vík í næstu alþing­is­kosn­ing­um. Guð­laugur Þór hefur verið heil­brigð­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigríður dóms­mála­ráð­herra.

Þessi röð var sam­þykkt á fundi Varðar, full­trúa­ráðs sjálf­stæðis­fé­lag­anna í Reykja­vík, í dag.

Guðlaug­ur Þór mun leiða lista sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík norður og Sig­ríður í Reykja­vík suður. Brynj­ar Ní­els­son mun skipa annað sætið í Reykja­vík suður, en Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir í Reykja­vík norður.

Reykja­vík norður:

  1. Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, ut­an­rík­is­ráð­herra
  2. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, alþing­ismaður
  3. Birg­ir Ármanns­son, alþing­ismaður
  4. Al­bert Guðmunds­son, laga­nemi
  5. Her­dís Anna Þor­valds­dótt­ir, vara­borg­ar­full­trúi

Reykja­vík suður:

  1. Sig­ríður Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra
  2. Brynj­ar Ní­els­son, alþing­ismaður
  3. Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, alþing­ismaður
  4. Bessí Jó­hanns­dótt­ir, fram­halds­skóla­kenn­ari
  5. Jó­hann­es Stef­áns­son, lög­fræð­ing­ur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár