Hreiðar Már og Ólafur stórtækir í hótelbransanum

Hreiðar Már Sig­urðs­son og Ólafur Ólafsson eru að fjár­festa í fjölda hót­ela- og gisti­staða. Tengjast nú að minsta kosti sjö gisti­stöðum og einu fyr­ir­hug­uðu hót­eli.

Hreiðar Már Sig­urðs­son fjár­festir og kaup­sýslu­mað­ur­inn Ólafur Ólafsson eru að fjár­festa í fjölda gisti­staða um þessar mundir. Þeir sitja báðir í fang­elsi á Kvía­bryggju fyrir hlut sinn í Al Thani-mál­inu. Hreiðar og fjöl­skylda hans hafa frá árinu 2009 byggt upp fyr­ir­tækið Gistiver sem teng­ist nú rekstri sjö gisti­staða víðs­vegar um landið.

Morg­un­blaðið greinir frá þessu í dag.

Þrír gisti­staða Gisti­vers eru í Stykk­is­hólmi en hinir fjórir eru á Nesja­völlum, Búðum, í Keflavík og Reykja­vík. Morg­u­blaðið telur lík­legt að að félagið teng­ist líka hosteli á Akureyri. Þá hefur einnig þvotta­hús í Stykk­is­hólmi verið opnað. Eig­in­kona Hreiðars Más, Anna Lísa Sig­ur­jóns­dótir, er eig­andi félags­ins og fram­kvæmda­stjóri.

Ólafur Ólafsson, einn aðala­eig­andi Kaup­þings fyrir hrun, er líka kom­inn í hót­el­brans­ann, eins og greint hefur verið frá. Eigendur Suð­ur­lands­brautar 18 ætla sér að breyta hús­inu í hótel og er það í eigu eign­ar­halds­fé­lags­ins Festis, sem er í eigu hol­lenska félags­ins SMT Partners B.V. sem hefur sama heim­il­is­fang og Samskip Holding B.V. í Rott­er­dam, hvar Ólafur er skráður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár