Spyr dómsmálaráðherra hvernig það getur verið lausn við afbrotahegðun að fara í stríð

Vara­þing­maður Pírata furðar sig á stríðs­yf­ir­lýs­ingu dóms­mála­ráð­herra gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. „Stríð leysir engin vanda­mál, það býr til fleiri ófyr­ir­séð vanda­mál og magnar núver­andi vanda­mál upp.“

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur boðað stríð gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvernig má það vera að árið 2022 geti dóms­mála­ráð­herra talið að lausnin við afbrota­hegðun felist í því að fara í stríð?“ spurði Eva Sjöfn Helga­dóttir, vara­þing­maður Pírata, á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins.

„Miðað við allt sem vitað er um hegðun er ótrú­legt að því sé haldið fram að það sé ein­hver lausn fólgin í því að fara í stríð. Stríð leysir engin vanda­mál, það býr til fleiri ófyr­ir­séð vanda­mál og magnar núver­andi vanda­mál upp.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra boðar stríð gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi með átaki sem lög­reglan mun ráð­ast í fljót­lega. Jón greindi frá stríðs­yf­ir­lýs­ing­unni í við­tali í Bít­inu á Bylgj­unni í gær­morg­un. Til­efnið er hnífs­tungu­árás á skemmti­staðnum Banka­stræti Club á fimmtu­dag þar sem hópur grímu­klæddra manna réðst inn á stað­inn og stakk tvo menn ítrek­að.

Hyggst mæla fyrir frumvarpi um forvirkar rannsóknarheimildir í næstu viku

Frumvarp dóms­mála­ráð­herra um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu og vopna­burð var afgreitt úr rík­is­stjórn á fundi hennar í morgun. Ráðherra segir sam­stöðu um málið innan rík­is­stjórn­ar­innar og von­ast hann til þess að hann geti mælt fyrir frum­varp­inu á Alþingi í næstu viku.

Jón segir í sam­tali við RÚV að með frum­varp­inu sé verið að færa heim­ildir lög­reglu­yf­ir­valda nær því sem gengur og ger­ist í nágranna­löndum okkar. „Skipu­lögð brota­starf­semi og ógn gagn­vart rík­inu eða hryðju­verka­starf­semi hún virðir engin landa­mæri og krefst mjög náins sam­starfs á milli lög­reglu­emb­ætta í ólíkum löndum,“ segir Jón í sam­tali við RÚV.

Vandinn ekki leystur með að beita meiri hörku

„Stríð gegn skipu­lagðri brota­starf­semi, stríð gegn fíkni­efnum, stríð gegn jað­ar­settu fólki. Dóms­mála­ráð­herra lýsir yfir stríði. Stríði á hendur ein­stak­lingum sem kerfið og sam­fé­lagið hefur brugð­ist ítrekað,“ sagði Eva Sjöfn á þingi í dag.

Alvarleg ofbeld­is­brot hjá ungu fólki og aukn­ing þeirra verður ekki leyst með auknum vopna­burði og beit­ingu vopna að mati Evu Sjafnar. „Það leys­ist ekki með því að beita meiri hörku. Þvert á móti. Það þarf að horfa á stóru mynd­ina og leysa vand­ann með því að setja miklu meira fjár­magn, kraft og vilja inn í vel­ferð­ar­kerfið og heil­brigð­is­kerfið svo hægt sé að sinna ein­stak­lingum sem eru hjálp­ar­þurfi á réttan hátt.“

Alvarleg ofbeld­is­brot ung­linga og barna hafa auk­ist síð­ast­lið­inn ára­tug og segir Eva Sjöfn að greini­lega sé eitt­hvað að í kerf­inu. „Við nið­ur­greiðum ekki sál­fræði­þjón­ustu, við hrekjum sál­fræð­inga úr heilsu­gæsl­unum. Barna- og ung­linga­geð­deild annar ekki neyð­inni. Vel­ferð­ar­kerfið er í molum og úrræða­leysið er algjört þegar kemur að ungu fólki með flók­inn hegð­unar- og geð­vanda.“

Dómsmálaráðherra vill hella olíu á eldinn með enn einu stríðinu

Hún segir dóms­mála­ráð­herra vera á rangri leið. „Rík­is­stjórnin þarf að horfast í augu við þennan vanda og laga hann strax. Vel­ferð­ar­kerfið og heil­brigð­is­kerfið öskrar á aðstoð. En nei segir dóms­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin. Þau vilja heldur hella olíu á eld­inn og stig­magna vopna­væð­ingu enn frekar, enn hraðar, með enn einu stríð­inu.“

[links]Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, segir stríðs­yf­ir­lýs­ingu dóms­mála­ráð­herra gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi vera stríð gegn fólki sem fær ekki við­un­andi aðstoð. Og fyrst að svo virð­ist vera sem nóg fjár­magn sé til hjá dóms­mála­ráð­herra til að fara í stríð gegn fólki þá hljóti að vera til pen­ingur til að hjálpa fólki.

„Ofbeldi verður nefni­lega ekki til í tóma­rúmi. Áföll ganga í erfðir og valda hringrás sem endar ekki nema gripið sé inn í með aðstoð heil­brigð­is­kerf­is­ins. Ofbeldi getur nefni­lega af sér ofbeldi og stríð gegn ofbeldi er ekki svar­ið, svarið er í heil­brigð­is­kerf­inu hjá heil­brigð­is­ráð­herra,“ sagði Hall­dóra í fyr­ir­spurn sinni til Willum Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra í gær þar sem hún spurði hann hvort hann ætli að tryggja raun­veru­legt for­varn­ar­starf þannig að hægt verði að koma í veg fyrir harm­leiki fram­tíð­ar­innar.

Willum svar­aði með því að benda á að þver­fag­leg geð­heil­brigð­is­þjón­usta í heilsu­gæslu hafi verið styrkt um allt land.

Eva Sjöfn segir lausn­ina fel­ast í því að sýna raun­veru­lega mannúð og aðgerðir sem skila raun­veru­legum árangri. „Aukið ofbeldi og jað­ar­setn­ing skilar engum árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár