Sá sérstaki snýr aftur

Portú­gal­inn José Mourinho á ótrú­legan feril að baki sem knatt­spyrnu­stjóri. Hans bíður nú erfitt verk­efni í Manchester.

Portú­gal­inn José Mourinho hefur á sextán ára ferli sínum sem knatt­spyrnu­stjóri náð mögn­uðum árangri í öllum þeim löndum þar sem hann hefur starfað. Portúgal, Englandi, Ítalíu og Spáni. Hann verður form­lega kynntur sem nýr knatt­spyrnu­stjóri Manchester United í næstu viku, eftir að Hol­lend­ing­ur­inn Louis Van Gaal var lát­inn taka pok­ann sinn, skömmu eftir að hafa lyft FA bik­arnum að loknum 2-1 sigri Manchester United á Crystal Palace á Wembley. Tit­ill­inn bjarg­aði honum ekki. Örlögin voru ráðin. Helsta ástæðan fyrir því að hann var lát­inn fara? Deyfð, leið­indi og óásætt­an­legur árangur.

Leikmenn ósáttir

Sé mið tekið af umfjöllun helstu fót­bolta­miðla í Bret­landi, The Guardian og BBC þar á meðal, þá virð­ist Van Gaal ekki hafa náð trún­aði leik­manna og leik­skipu­lagið sem hann lagði upp með var umdeilt meðal þeirra. Hjá aðdá­endum var leik­skipu­lagið gagn­rýnt harð­lega nær linnu­laust allt tíma­bilið sem lauk nýverið.

Í upp­hafi byrj­aði liðið með 3-5-2 taktík, en féll frá henni fljót­lega þegar stigin létu á sér standa. Margir leik­manna voru að spila í stöðum sem þeir höfðu ekki leikið mikið áður, sem virt­ist engan veg­inn skila sér í góðu gengi eða sann­fær­andi spila­mennsku. Hinn dínamíski og ástríðu­kenndi hraði sem Alex Ferguson var frægur fyrir að ná fram í liði Manchester United, í sinni stjóra­tíð, var eins fjarri og hugs­ast gat.

Daniel Taylor, pistla­höf­undur The Guardian, sagði í pistli í gær að tveggja ára dvöl Louis Van Gaal hefði ein­kennst af leið­in­legum fót­bolta, sem sýni sig í fáum skor­uðum mörkum og hægum fót­bolta, og síðan einnig lélegum móral hjá leik­mönnum. Þetta sé eitt­hvað sem Manchest United geti ekki sætt sig við. Á liðnu tíma­bili skor­aði liðið 49 mörk en með­al­talið í úrvals­deild­inni hjá lið­inu er 76,4 mörk á tíma­bili. Þetta segir sína sögu.

Til við­bótar má nefna að sam­kvæmt Opta stats töl­fræði­gagna­grunn­inum þá voru aðeins þrjú lið í deild­inni sem sköp­uðu sér færri færi. Hið hrika­lega slaka Aston Villa að sjálf­sögðu, og síðan West Brom og Watford. Þetta er staða sem Manchester United á ekki að venj­ast, svo ekki sé nú dýpra í árina tekið.

Nýtt upp­haf er framundan, hjá þessu sig­ur­sælasta félagi í sögu enskrar knatt­spyrnu. Knatt­spyrnu­stjóri númer fjögur (David Moyes, Ryan Giggs, Louis Van Gaal) frá því Alex Ferguson hætti, er að fara taka við stjórn­ar­taumunum.

Hræðileg endalok hjá Chelsea

Hinn 53 ára gamli Mourinho kemur ekki til Manchester á hápunkti fer­ils síns, svo mikið er víst. Hann var rek­inn frá Chelsea 17. des­em­ber í fyrra, þegar tíma­bilið var ekki hálfnað. Chelsea, sem hann gerði að enskum meist­ara tíma­bilið á undan, byrj­aði leik­tíð­ina hræði­lega og var í 16. sæti, eftir að hafa tapað níu af sextán leikjum tíma­bils­ins, þegar hann var rek­inn.

Mourinho var í guða­tölu hjá stuðn­ings­mönnum liðs­ins, og er það eflaust enn. En þessi árangur var ekki boð­legur og ekk­ert annað var í stöð­unni en að Mourinho hætti, því ekki gátu leik­menn­irnir hætt.

Litríkt upphaf

Ferill Mourinho er með nokkrum ólík­indum. Árið 2000 var hann, þá aðeins 37 ára gam­all, ráð­inn knatt­spyrnu­stjóri Benfica, en hætti eftir níu leiki við stjórn­völ­inn. Allt hafði gengið vel, en inn­an­húspóli­tík réð því að hann hætti.

Í júlí 2001 tók hann við União de Leiria, sem telst lítið félag í Portúgal. Undir hans stjórn var það í þriðja sæti í Portúgal. Stóra tæki­færið kom svo í jan­úar 2002 þegar Porto réð hann sem knatt­spyrnu­stjórna. Liðið var í fimmta sæti þegar hann tók við, og ekki inn í bik­ar­keppni.

Porto end­aði í þriðja sæti. Í lok tíma­bils­ins lof­aði hann stuðn­ings­mönnum að vinna deild­ina að ári. Þarna sást glitta í kok­hraustan ungan mann á upp­leið, sem átti eftir að setja mark sitt á Evr­ópu­bolt­ann.

Á tíma­bil­inu 2002 til 2003 var Porto óstöðv­andi. Liðið sigr­aði í deild­inni, með ell­efu stiga for­skoti á Benfica, varð bik­ar­meist­ari og sigr­aði í UEFA Cup. Tíma­bilið 2003 til 2004 var síðan ævin­týri lík­ast. Þá sigr­aði Porto allt sem það gat unnið, og líka Meist­ara­deild Evrópu. Sterkur kjarni leik­manna mynd­aði agað og öfl­ugt lið, sem eng­inn fann leið til að sigra eða slá út úr Evr­ópu­keppni. Mik­il­væg­ustu leik­menn liðs­ins á þessu tíma­bili voru Deco, Ricardo Carvalho og Maniche, sem Mourinho náði í samn­ings­lausan eftir að honum var leyft að fara frá Benfica.

Sann­ar­lega ótrú­legur árangur, sem opn­aði dyrnar að stærstu félögum Evrópu.

Chelsea ævintýrið

Hjá Chelsea var nú kom­inn ungur Rússi, Roman Abramovich, í eig­anda­sætið, en hann var með fulla vasa fjár sem rekja mátti til olíu­auð­linda í Síberíu. Hann sætti sig ekki við að Claudio Ranieri, sem kom sá og sigr­aði með Leicester á nýaf­stöðnu tíma­bili, hafi aðeins náð öðru sæti árið 2004, og vildi gera Chelsea að meist­ara. Þá var Mourinho ráð­inn, og fékk hann met­greiðslu fyrir samn­ing­inn, 4,2 millj­ónir punda, eða um 750 millj­ónir króna.

Mourinho sýndi strax að hann væri kom­inn til að setja mark sig á fót­bolta­heim­inn. Á fyrsta blaða­manna­fund­inum sagði hann þessi fleygu orð: „Ég vil ekki hljóma hroka­fullur, en ég kem hingað sem Evr­ópu­meist­ari og tel að ég sé sá sér­staki, fyrir þetta verk­efni.“ Við­ur­nefnið, sá sér­staki, fest­ist strax við hann.

Til þess að gera langa sögu stutta þá varð Chelsea að stór­kost­legu liði undir stjórn Mourinho. Eiður Smári Guðjohn­sen, sem enn er í íslenska lands­lið­inu 20 árum eftir að hann spil­aði fyrsta leik­inn með því, átti frá­bær ár undir stjórn Mourinho. Leik­manna­hóp­ur­inn var ógn­ar­sterkur, með Frank Lampard og John Terry fremsta meðal jafn­ingja, og skil­aði Mourinho titli strax á fyrsta tíma­bili, vorið 2005. Það var fyrsti deild­ar­meist­ara­tit­ill Chelsea í 50 ár.

Aftur vann Chelsea deild­ina árið eftir, og virt­ist Mourinho á góðri leið með að búa til magnað sig­ur­sælt lið til langrar fram­tíðar, þrátt fyrir mikla sam­keppni frá Manchester United, Arsenal og Liverpool.

En þegar eng­inn deild­ar­meist­ara­tit­ill skil­aði sér vorið 2007 virt­ist sam­starf Mourinho við eig­and­ann og helstu starfs­menn félags­ins vera orðið slæmt. Þegar Ísra­el­inn Avram Grant var ráð­inn yfir­maður knatt­spyrnu­mála, í óþökk Mourinho, var mælir­inn fullur. Hann hætti hjá Chelsea 20. sept­em­ber 2007, nokkuð óvænt.

Inter-tíminn ógleymanlegur

Þegar Mourinho tók við Inter, í júní 2008 eftir nærri árs­frí frá þjálfun, var mikil pressa á honum. Nýtt lið var í mótun, en leik­manna­hóp­ur­inn var góður. Ungir og reynslu­miklir leik­menn í bland, og góð sam­setn­ing varnar-, miðju-, og sókn­ar­manna. Undir stjórn Mourinho varð Inter besta félags­lið Evrópu, sigr­aði allt sem það gat unnið heima fyrir, bæði deild og bikar, og varð Evr­ópu­meist­ari vorið 2009.

Enn einu sinni sann­aði Mourinho hæfi­leika sína, með því að byggja upp nýtt lið á skömmum tíma, og finna sig­ur­blönd­una sem svo erfitt er að hrista fram. Tvö sig­ur­sæl tíma­bil í röð hjá Inter, leiddu til þess að Real Madrid réð hann til starfa. Þar tók við gam­al­kunnug bar­átta stór­veld­anna, Real Madrid og Barcelona. Real Madrid var iðu­lega í fremstu röð, undir stjórn Mourinho, en þurfti að sætta sig við að vera skrefi á eftir Barcelona, nokkuð oft. Þó ekki vorið 2012, þegar Real Madrid sigr­aði deild­ina með nokkrum yfir­burðum.

Ári síðar var annað upp á ten­ingnum. Real náði ekki að sigra deild­ina, og tap­aði fyrir erki­fj­end­unum Atletico Madrid í úrslitum bik­ar­keppn­innar.

Mourinho hætti með liðið eftir tíma­bilið. Mánuði eftir það, var hann búinn að skrifa undir hjá Chelsea, og hóf þá feril númer tvö í London. Á tíma­bil­inu 2013 til 2014 varð Chelsea í þriðja sæti, en sigr­aði svo deild­ina tíma­bilið 2014 til 2015. Gull­trygg­ing sig­urs­ins kom þegar þrír leikir voru eftir.

Byrjunin skelfi­lega á tíma­bil­inu sem nú er að ljúka, er fátítt hlið­ar­spor á stór­kost­legum sextán ára ferli Mourinho.

Stjórnunarhæfileikar

Mourinho þótti strax sína afburða­hæfi­leika sem stjórn­andi. Sjálfs­ör­yggið upp­málað, og með skýra áherslun á smá­at­riðin í liðs­stjórnun. Hann hefur verið sagður snill­ingur í sál­fræð­i­stríð­inu, þó brott­rekstur hans hjá Chelsea sé ákveðið hlið­ar­spor á þeim ferli. Nánast allan sinn feril hefur það verið einn af hans stærstu kostum, að halda leik­mönnum sínum við efnið og taka sjálfur á sig hit­ann sem fylgir fjöl­miðlaum­fjöllun og press­unni sem hún skapar.

En hvernig mun Mourinho halda um taumana hjá Manchester United? Það er erfitt að segja. Einn af þeim sem hefur fylgst með Mourinho í gegnum tíð­ina, og haldið með Manchester United lengi, er Gunn­laugur Jónsson, þjálf­ari ÍA í Pepsi-deild karla. Hann segir að Mourinho þurfi að finna „dráp­seðlið“ sem ein­kenndi tím­ann þegar Alex Ferguson réði ríkjum á Old Trafford. „Sem Man. Utd. aðdá­andi hefur maður verið á báðum áttum hvaða skref félagið ætti að fara. Hlut­irnir voru ekki í réttum far­vegi með Van Gaal, liðið var óspenn­andi, spil­aði hægt og það vant­aði í það dráp­seðlið sem sir Alex var búinn að búa til hjá lið­inu. Kost­ur­inn við að fá Mourinho á þessum tíma­punkti er að hann kemur til leiks til að sanna sig eftir bullið hjá Chelsea. Hann er með­vit­aður um kröf­urnar sem eru í Leikhúsi Draumanna og hvað hefur farið úrskeiðis hjá Moyes og Van Gaal. Ég hef ekki áhyggjur að hann geti ekki búið til massíva liðs­heild, það hefur hann gert svo vel hjá Chelsea, Inter Milan og Porto. Ég ætla því að vona að þetta sé hár­rétt skref hjá félag­inu og ég held að þessi bik­ar­tit­ill sem liðið vann um helg­ina hafi hell­ing að segja fyrir leik­manna­hóp­inn og nú er Móra að fylgja því eftir. Það er alla­vega ljóst að þetta er ekki auð­veldasta starfið í brans­anum og reynsla Mourinho kemur honum til góða þar,“ segir Gunn­laugur.

Mourinho hefur alltaf náð árangri fljót­lega eftir að hann hefur tekið við nýju liði. Aldrei hefur liðið meira en eitt ár þar til deild­ar­meist­ara­tit­ill hefur komið í hús. Mourinho hefur sjálfur þakkað Bobby Robson heitnum fyrir sinn grunn í þjálfun, en Mourinho var einn af aðstoð­ar­mönnum hans hjá Barcelona þegar Robson þjálf­aði Kata­lón­íustór­veldið, tíma­bilið 1996 til 1997. Hvernig til mun takast hjá Manchester United mun fram­tíðin leiða í ljós, en með grunn­inn frá Robson, mikla reynslu og per­sónu­töfra gæti hann byggt upp sig­ur­hefð­ina sem Alex Ferguson tókst að skapa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár