HS Orka losnar út úr orkusölusamningi við Norðurál

Orku­sölu­samn­ingur milli HS Orku og Norð­ur­áls er ekki lengur í gildi, og HS Orka þarf því ekki að standa við samn­ing­inn sem var gerður vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helguvík fyrir rúmum níu árum síðan. Álverið reis aldrei en fyr­ir­tækið hefur samt verið fast í samn­ingnum þar til núna.

Gerð­ar­dómur hefur nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sökum til­tek­inna kring­um­stæðna sé samn­ing­ur­inn ekki lengur í gildi og að lok samn­ings­ins séu ekki af völdum HS Orku. Þá var kröfum Norð­ur­áls Helgu­víkur í mál­inu hafnað. Þetta kemur fram á vef HS Orku. Ásgeir Mar­geirs­son, for­stjóri HS Orku, segir fyr­ir­tækið ánægt að þetta lang­vinna mál sé nú að baki. Gerð­ar­dómur hafði haft málið til með­ferðar í tvö og hálft ár.

Vegna þess að ekki hefur legið fyrir nið­ur­staða í mál­inu hefur HS Orka sem fyrr segir verið fast í samn­ingnum við Norðurál, og því ekki getað selt öðrum áhuga­sömum kaup­endum umrædda orku, 150 MW, sem mögu­legt væri að fá úr þeim virkana­kostum sem eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar. Samn­ing­ur­inn var að auki mjög óhag­stæður fyrir HS Orku, því verðið sem hefði feng­ist fyrir ork­una hjá Norð­ur­áli væri langt frá því að geta skilað við­un­andi arð­semi.

Engar líkur á álveri

Full­­byggt álver í Helg­u­vík átti að vera með árlega fram­­leiðslu­­getu á bil­inu 270 til 360 þús­und tonn. Til þess að byggja stærri útgáfu þess þyrfti rúm­­lega 600 megawött af orku.

Norð­­urál hefur sagst hafa hug á að byggja álver í Helg­u­vík í fjórum áföng­­um. 150 mega­vött af orku þarf í hvern áfanga og Norð­­urál hefur lýst því yfir að álverið verði ekki klárað nema að búið sé að tryggja orku fyrir tvo áfanga, alls 300 mega­vött. Helm­ingur þess átti því að koma frá HS Orku. Ekki hefur tek­ist að tryggja þá við­­bót­­ar­orku sem til þarf og lágt heims­­mark­aðs­verð á áli á und­an­­förnum árum hefur ekki skapað mik­inn hvata til þess að ráð­­ast í að klára Helg­u­vík­­­ur­verk­efn­ið.

Mich­­ael Bless, for­­stjóri Cent­ury Alu­m­inum, var spurður út í Helg­u­vík­­­ur­ál­verið á fundi með fjár­­­festum í til­­efni af hálf­s­ár­s­­upp­­­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í júlí 2014. Þar sagði hann að það væri engin breyt­ing á stöðu verk­efn­is­ins á milli árs­fjórð­unga. „Það sem við virki­­lega þurfum er að rík­­is­orku­­fyr­ir­tæk­ið, Lands­­virkj­un, rísi upp í leið­­toga­hlut­verk í þessu verk­efni ef við ætlum að koma hlut­unum í gang í náinni fram­­tíð“.

Engar líkur eru á því að rík­is­fyr­ir­tækið Lands­virkjun muni selja orku til álvers í Helgu­vík. Til þess þarf heims­mark­aðs­verð á áli að hækka um tugi pró­senta auk þess sem Lands­virkjun telur sig ein­ungis eiga til reiðu lítið brot af þeirri orku sem Helgu­vík­ur­ál­ver þyrfti.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sló málið síðan enn frekar út af borð­inu í lok sept­em­ber við sér­stakar umræður á Alþingi. Þar sagði hann um fyr­ir­hugað álver í Helgu­vík: „Ég sé ekki að það ál­ver sé að verða sér út um raf­­­magn. Það virð­ist ekki vera að fæð­ast nein lausn á því og að öðru leyti þá sé ég ekki að það sé afl til að stefna á slík verk­efni á næst­unn­i.“ Hann bætti við að hann sæi ekki fyrir sér að álverum muni yfir höfuð fjölga á Íslandi í fram­tíð­inni.

Fyrst fyrir gerð­ar­dóm 2010

Um 150 megawött af þeirri orku sem álverið þarfn­að­ist í fyrstu atrennu áttu að koma frá HS Orku, sem und­ir­­rit­aði orku­­sölu­­samn­ing þess efnis í apríl 2007. HS Orka getur ekki selt þá orku til ann­­ars kaup­anda á meðan að hann er í gildi. Í dag, rúmum níu árum eftir að samn­ing­­ur­inn var und­ir­­rit­að­­ur, er fyr­ir­tækið því bundið inni í sam­komu­lagi með þorra þeirrar orku sem það telur sig geta fram­­leitt og selt í nán­­ustu fram­­tíð sem virð­ist ekk­ert vera að fara að verða að veru­­leika. Við­ræður stóðu yfir milli HS Orku og Cent­ury Alu­m­inum, móð­ur­fé­lags Norð­ur­áls, í mörg ár til að reyna að höggva á hnút­­inn. Þær við­ræður skil­uðu engum árangri.

Norð­urál stefndi á end­anum HS Orku fyrir gerð­ar­dóm í Sví­þjóð árið 2010. Nið­­ur­­staða hans, sem var kunn­­gjörð í des­em­ber 2011, var sú að orku­­sölu­­samn­ing­­ur­inn ætti að standa en að hann verði að skila HS Orku við­un­andi arð­­semi, sem er sér­­stak­­lega skil­­greind í nið­­ur­­stöð­unni. Þá hafn­aði gerð­­ar­­dóm­­ur­inn skaða­­bóta­­kröfu Norð­­ur­áls á hendur HS Orku vegna van­efnda á samn­ingn­­um.

Í raun gátu báðir deilu­að­ilar tekið eitt­hvað jákvætt út úr þeirri nið­­ur­­stöðu. HS Orka var ekki skuld­bundið til að selja orku á verði sem skil­aði fyr­ir­tæk­inu ekki arð­­semi og Norð­­urál hélt þeim orku­­sölu­­samn­ingi sem var því mik­il­vægastur til að halda von­inni um álver í Helg­u­vík lif­andi.

Nýtt ferli hófst 2014

Þar sem fyrri gerð­ar­dómur skil­aði í raun engri eig­in­legri nið­ur­stöðu í mál­inu hóf HS Orka nýtt gerð­ar­dóms­ferli í júlí 2014. Máls­rök voru þau að ákvæði orku­­sölu­­samn­ings­ins hafi ekki verið upp­­­fyllt og þar með sé hann ekki lengur í gildi. Norð­­urál taldi þetta ekki rétt og tók til varna. Upp­haf­lega var búist er við því að mála­­rekst­­ur­inn gæti tekið allt að eitt og hálft ár og að nið­­ur­­staða myndi liggja fyrir undir lok árs­ins 2015.

Það frestað­ist og fyrir lá að nið­ur­staðan ætti að verða kunn­gjörð fyrir lok októ­ber­mán­aðar 2016. Í lok síð­asta mán­aðar óskaði gerð­ar­dóm­ur­inn eftir fresti út nóv­em­ber­mán­aðar til að kom­ast að nið­ur­stöðu. Nú liggur hún fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár