Dómstóll í Frakklandi fellir búrkíní-bann úr gildi

Bann við því að konur klæð­ist svoköll­uðum búr­kín­íum hefur verið fellt úr gildi af æðsta stjórn­sýslu­dóm­stóli Frakk­lands. Úrskurður dóm­stóls­ins er tíma­bund­inn og tekur aðeins til banns sem sett var á í einum bæ í Suður-Frakk­landi, en það er talið munu hafa for­dæm­is­gildi.

Á annan tug bæja og borga í Frakk­landi hafa bannað strand­klæðnað sem hefur trú­ar­lega teng­ingu, sem bein­ist ein­göngu gegn búr­kín­íum, sem eru heil­klæðn­aður kvenna. Mann­rétt­inda­sam­tök kærðu bannið í einum bæ, Vil­leneuve-Loubet í nágrenni Nice, til dóm­stóla. Lægri dóm­stóll úrskurð­aði á mánu­dag að bannið þar væri nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir óspektir á almanna­færi. Þessu snéri æðsti dóm­stóll við í dag, tíma­bundið, á meðan fjallað er um málið nánar. Samkvæmt frönskum lögum má taka tíma­bundnar ákvarð­anir áður en dóm­stóll tekur sér frekar tíma til að gefa út end­an­legan dóm þar sem ákvörðun hefur verið und­ir­byggð.

Yfirvöld í þessum borgum og bæjum settu búr­kíní-bannið á eftir árás­ina í Nice á Bastillu­dag­inn og morð á presti í Normandí. Ýmsar ástæður voru not­aðar til rök­stuðn­ings á bann­inu, meðal ann­ars að það væri nauð­syn­legt til að við­halda ró, hrein­læt­is­á­stæður og einnig frönsk lög sem kveða á um ver­ald­ar­hyggju.

Mann­rétt­inda­sam­tökin sem kærðu bannið hafa haldið því fram að bannið ýti undir ótta og séu brot á sjálf­sögðum rétt­indum.

Deilan um málið ýfð­ist upp eftir að myndir komust í dreif­ingu sem sýndu lög­reglu­menn umkringja konu á strönd í Nice og sekta hana fyrir að vera í búr­kíní, sem hún var þó ekki tækni­lega séð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár