Jeppi prófaður á Íslandi fyrir ferð til Mars árið 2020

Prófun á Mars-Jeppa fer fram í nágrenni Lang­jök­uls. Fjöl­margir vís­inda­menn koma að verk­efn­inu, þar á meðal nem­endur frá Háskóla Reykja­víkur og starfs­fólk Arctic Trucks.

Verið er að prófa svo­kall­aðan Mars-jeppa sem nota á í leið­angri NASA til Mars árið 2020 í nágrenni Lang­jök­uls. Prófunin er í tengslum við SAND-E verk­efni kostað af Banda­rísku flug- og geim­vís­inda­stofn­un­inni, NASA. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Háskól­ans í Reykja­vík og Arctic Trucks Experience.

Nemendur í verk­fræði og tækni­fræði við nám í Háskóla Reykja­víkur eru rann­sókn­arteym­inu til aðstoðar til að finna hent­uga staði til próf­ana, kann­ana á rann­sókn­ar­svæð­inu með drónum, ásamt því að veita upp­lýs­ingar um ein­stakar jarð­fræði- og veð­ur­fars­að­stæður á Íslandi.

[adspot]Arctic Trucks sér um flutn­ing teym­is­ins á þá afskekktu staði þar sem próf­an­irnar fara fram, og útvegar far­ar­tæki og ýmis­konar búnað og þjón­ustu fyrir rann­sókn­irnar, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Vís­inda­menn­irnir hafa sér­stakan áhuga á að fylgj­ast með breyt­ingum á eðlis- og efna­fræði­legum eig­in­leikum jarð­vegs þegar hann berst með vatni og vindum. Það er meðal þeirra ástæðna að próf­an­irnar fara fram nærri jök­ul­rönd Lang­jök­uls því þar er að finna far­vegi í sand­inum eftir vatn sem kemur undan jökl­inum, sem minna á far­vegi á Mars, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Sand­ur­inn er jafn­framt basalt sandur sem er líkur sand­inum á Mars.

Mars-jepp­inn tekur nú sýni á þremur stöðum og eru gögn og nið­ur­stöður þeirra nýttar í sjálf­stýr­ingu jeppans. Jeppinn nýtir vél­nám og gervi­greind til þess að meta umhverfið sem keyrt er um. Jeppinn verður lát­inn aka sjálfur og meta umhverfið án aðkomu manna en einnig verður kann­aður væn­leiki þess að nota dróna til að skanna svæðið sem fram undan er, líkt og til stendur að gera í leið­angri NASA til Mars á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár