Mynd: Bára Huld Beck

Hafa aldrei lánað meira til húsnæðiskaupa en í október

Tvö met voru sett í útlánum líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna í októ­ber 2019. Í fyrsta lagi lán­uðu þeir 26 pró­sent meira en þeir höfðu gert í fyrri met­mán­uði og í öðru lagi voru útlánin 45 pró­sent fleiri en nokkru sinni áður innan mán­aðar.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa aldrei lánað sjóðs­fé­lögum sínum meira í hús­næð­is­lán en þeir gerðu í októ­ber síð­ast­liðnum. Þá námu sjóðs­fé­lags­lán sjóð­anna 13,9 millj­örðum króna og juk­ust um 65 pró­sent á milli mán­aða. Fyrra útlána­met líf­eyr­is­sjóð­anna var sett í júní 2017 þegar þeir lán­uðu rúm­lega ell­efu millj­arða króna til hús­næð­is­kaupa. Því voru útlánin í októ­ber 26 pró­sent hærri en í fyrri met­mán­uði.

Auk þess hafa aldrei verið tekin fleiri lán hjá líf­eyr­is­sjóðum en í tíunda mán­uði árs­ins 2019, þegar þau voru 1.144 tals­ins. Fyrra metið var sett í ágúst 2017 þegar útlánin voru 789 tals­ins. Útlánin í októ­ber voru því 45 pró­sent fleiri en í fyrri met­mán­uði. Allt ofan­greint bendir til þess að tölu­vert líf sé í hús­næð­is­mark­aðnum um þessar mundir.

Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið sem birtar voru í gær.

Það vekur líka athygli að að lands­menn tóku hærri upp­hæð að láni óverð­tryggt hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins í októ­ber en verð­tryggt, þótt afar litlu hafi munað. Það er ein­ungis í þriðja sinn sem það ger­ist. Hin tvö skiptin voru í des­em­ber 2018 og jan­úar 2019, þegar verð­bólga hafði hækkað nokkuð skarpt og var á bil­inu 3,4 til 3,7 pró­sent, eftir að hafa verið að mestu undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans frá því í febr­úar 2014.

Í dag er verð­bólga hins vegar nokkuð lág, 2,7 pró­sent, og hefur farið minnk­andi und­an­farin miss­eri. Auk þess gera flestar spár grein­ing­ar­að­ila ráð fyrir því að hann eigin eftir að lækka enn frekar á næstu mán­uðum og muni hald­ast hóf­leg til lengri tíma að óbreyttu.

Mun fleiri lán sem tekin voru í októ­ber voru þó verð­tryggð en óverð­tryggð. Það þýðir að með­al­tal verð­tryggðra lána var umtals­vert lægra en óverð­tryggðra sem bendir til þess að þeir sem eru að kaupa sér dýr­ari eignir, og hafi þar af leið­andi meiri kaup­mátt, séu frekar að taka óverð­tryggð lán sem hafa í för með sér hærri mán­að­ar­lega greiðslu­byrði.

Markvissar aðgerðir til að hamla útlánavöxt

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa mark­visst verið að reyna að draga úr útlánum til sjóðs­fé­laga sinna frá því á síð­asta ári. Ástæðan er sú að ásókn í lánin, sem eru á umtals­vert betri kjörum en bjóð­ast hjá bönkum, hefur verið gríð­ar­leg og hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána af heild­ar­eignum margra líf­eyr­is­sjóða er nú komið upp að þeim mörkum sem þeir telja skyn­sam­legt að teknu til­liti til áhættu­dreif­ingar.

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, hefði tífaldað útlán sín til íbúð­ar­kaupa frá árs­lokum 2015 og út árið 2018. Í byrjun tíma­bils­ins námu útlánin 2,2 millj­arði króna en þau voru komin upp í 22 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Þar af bætt­ust 9,2 millj­arðar króna, eða rétt tæpur helm­ingur við­bót­ar­inn­ar, við á árinu 2018. Sú staða varð til þess að sjóð­ur­inn réðst í að þrengja láns­skil­yrði sín til að hemja útlána­vöxtin. Það skil­aði árangri á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019 þar sem útlán á því tíma­bili voru aðeins lægri en á sama tíma­bili í fyrra.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, hefur líka gripið til aðgerða til að hamla lán­töku hjá sér. Hann hefur nú haldið breyti­legum verð­tryggðum vöxtum sínum óbreyttum frá því í ágúst­byrj­un, eða í fjóra mán­uði. Þá var ákveðið að breyta því hvernig vext­irnir væru ákveðnir og fallið frá því að láta ávöxtun ákveð­ins skulda­bréfa­flokks ráða þeirri för. Þess í stað er ein­fald­lega um ákvörðum stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins að ræða, en ekki hefur verið greint frá því hvort hún byggi á ein­hverju öðru en ein­ungis vilja þeirra sem í stjórn­inni sitja. Frá því í nóv­em­ber 2018 og fram í maí 2019 lækk­uðu breyti­legir verð­tryggðir vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna úr 2,62 pró­sent í 2,06 pró­sent, eða um 0,56 pró­sentu­stig. Þá tók stjórn sjóðs­ins ákvörðun um að frysta þá fram í ágúst og hækka þá svo upp í 2,26 pró­sent, þar sem þeir hafa verið síð­an.

Í októ­ber ákvað sjóð­ur­inn svo að breyta lána­reglum sínum þannig að skil­yrði fyrir lán­töku voru veru­lega þrengd og hámarks­fjár­hæð lána var lækkuð um tíu millj­ónir króna. Auk þess var ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­­tryggð lán á breyt­i­­legum vöxt­um, en þau hafa verið einna hag­­kvæm­­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­­förnum árum.

Þetta var gert með þeim rökum að sjóð­ur­inn væri komin út fyrir þau þol­mörk sem hann ræður við að lána til íbúð­ar­kaupa. Frá haustinu 2015 og fram í októ­ber­byrjun 2019 juk­ust sjóðs­fé­lags­lán úr því að vera sex pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins í að verða 13 pró­sent. Alls námu sjóðs­­fé­laga­lánin um 107 millj­­örðum króna í byrjun síð­asta mán­aðar og um 25 millj­­arðar króna til við­­bótar voru sagðir vera að bæt­­ast við þá tölu þegar tekið væri til­­lit til fyr­ir­liggj­andi umsókna um end­­ur­fjár­­­mögn­un.

Það voru ein­fald­lega ekki til lausir pen­ingar til að halda áfram á sömu braut og líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði þurft að losa um aðrar eignir að óbreyttu til að þjón­usta eft­ir­spurn­ina eftir íbúða­lán­um. Það var stjórn hans ekki til­búin að gera.

Samanlagt minna á þessu ári en því síðasta

Þótt októ­ber hafi verið met­mán­uður í útlánum líf­eyr­is­sjóða þá hefur heilt yfir verið sam­dráttur í slíkum lánum á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins, miðað við sama tíma­bil í fyrra. Frá árs­byrjun og út októ­ber­mánuð lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 79,8 millj­arða króna í ný útlán, en í fyrra höfðu þeir lánað 85,9 millj­arða króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins.

Und­an­farin ár hafa verð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum notið mik­illa vin­sælda hjá lán­tak­endum, enda kjör á þeim verið þau bestu sem staðið hafa til boða. Stóru sjóð­irnir þrír: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi voru lengi vel leið­andi í vaxta­lækk­unum á slíkum lánum en á því hefur orðið mikil breyt­ing á síð­ustu miss­erum. Vextir LSR eru nú 2,3 pró­sent, verzlunarmenn bjóða, líkt og áður sagði upp á 2,26 pró­sent vexti og Gildi býður upp á 2,46 pró­sent vexti. Á sama tíma hafa kjör á öðrum lána­teg­undum, óverð­tryggðum lánum og verð­tryggðum lánum með föstum vöxtum, verið bætt til að reyna að ýta lán­tak­endum frekar í þær áttir. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna býður nú til að mynda 5,14 pró­sent óverð­tryggða fasta vexti til þriggja ára og LSR upp á slíka á 5,5 pró­sent kjörum.

Viðskiptabankarnir ekki samkeppnishæfir

Stóru sjóð­irnir þrír eru þó langt frá því að vera í sama flokki og við­skipta­bank­arnir þegar kemur að ósam­keppn­is­hæfum kjörum. Þegar kemur að verð­tryggðum breyti­legum vöxtum bjóða þeir upp á lána­kjör sem eru á bil­inu 3,2 til 3,49 pró­sent á grunn­lánum sem duga fyrir 70 pró­sent af kostn­aði hús­næðis sem verið er að kaupa. Til sam­an­burðar eru hag­stæð­ustu kjör sem bjóð­ast á sam­bæri­legum lánum á mark­aðnum í dag hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum, 1,72 pró­sent, og Stapa líf­eyr­is­sjóði, 1,73 pró­sent. Vaxta­kostn­aður lán­taka hjá Arion banka, sem er dýrastur við­skipta­bank­anna, er því rúm­lega tvö­faldur á við vaxta­kostnað sjóðs­fé­laga ofan­greindra tveggja sjóða. 

Lægstu óverð­tryggðu vextir sem bjóð­ast eru þó hjá Birtu líf­eyr­is­sjóði, 1,64 pró­sent. Þar er hins vegar lánað að hámarki fyrir 65 pró­sent að virði hús­næðis og því er um að ræða lán sem fyrst og síð­ast þeir sem hafa mikið eigið fé á milli hand­anna geta tekið.

Við­skipta­bank­arnir sitja þó einir að þeim hópi sem þarf að taka hærra hlut­fall af hús­næð­is­kaupum sínum að láni, þ.e. hóp­inn sem er með minnst eigið fé milli hand­anna. Þeir bjóða við­bót­ar­lán ofan á 70 pró­sent grunn­lán sem líf­eyr­is­sjóðir gera ekki. Því situr við­kvæm­asti hóp­ur­inn á mark­aðnum, þeir sem eiga minnst og hafa lægstu tekj­urnar, einn að óhag­stæð­ustu lán­unum á meðan að þeir sem eiga meira fé, og hafa hærri tekjur, borga mun lægri vexti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár