Karolina Fund: Hrópandi ósamræmi & Bullið – ljóðabókatvenna

Tvær nýjar ljóða­bækur eftir Ægir Þór vilja kom­ast út. Bækurnar eru ólíkar að stíl og nálgun en eiga það sam­eig­in­legt að vera ádeilur inn­blásnar anda pönks­ins. Pönkarar eiga vita­skuld ekki pen­ing þannig að brodd­borg­arar eru beðnir að borga brús­ann.

„Skáldið er dautt og ljóðið er blóðið.“

Í stuttu máli sagt var það fæstum harmdauði og sumum til­efni til fagn­aðar. Hins vegar virð­ist gilda um skáldið, rétt eins og um Jesúm og Obi-Wan Kenobi, að það hvílir illa í gröf sinni, rís raunar sam­stundis upp mátt­ugri en nokkurn tíma áður og mun þaðan koma að dæma lif­endur og dauða.

Vandi ljóðs­ins felst nefni­lega ekki í náþefnum per se, heldur fyrst og fremst í van­nýt­ingu á öfl­ugum ilm­efnum.
Með öðrum orðum, ljóðið er of reiðu­búið að skrifa vilj­ugt undir eigin dauða­dóm og trítla
hvís­landi niður slóða far­sællar glöt­unar. Þessu vill Ægir Þór breyta. Ekki yrkja heldur öskra! er mottóið í þessum tveim bókum sem skáldið hyggst gefa út fyrir árs­lok. Báðar eru bæk­urnar bað­aðar í ammón­íakblönd­uðu alka­hóli svo jafn­vel svæsn­ustu skötu­á­huga­menn fá tár í augun við lestur þeirra.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ljóð eru einn af þessum hlutum sem eiga sér almennt hvorki upp­haf né endi. Ljóð eru líf,
flæði, kao­tísk í (ó)eðli sínu. Að því sögðu þá eru þær tvær bækur sem þetta verk­efni snýst
um fyrri tvær bæk­urnar í áætl­uðum fjór­leik. Allt eru þetta ljóð sem spinn­ast út úr sömu
þemum, sem fara í ólíkar áttir og sem ég hef flokkað niður eftir áherslum. Upp­sprettan er
lífs­reynsla, ekki endi­lega eitt­hvað dramat­ískt (og alls ekki harm­þrungið), heldur frekar
eitt­hvað sem kalla mætti lífslær­dóm hinnar kátu böl­sýni. Elstu ang­arnir teygja sig ein 3-4 ár
aftur, aftur í tíma­bil í lífi höf­undar sem mætti (klisju­lega) kalla lífskrísu; snemma­lífskreppu
hef ég heyrt þetta nefnt. Uppúr til­raunum til að yfir­stíga þá kreppu flæða þessi ljóð en taka
fljót­lega á sig almenn­ari mynd, umhverf­ast í sam­fé­lags­rýni. Svo kviknar hug­myndin að
flokkun og skipt­ingu verks­ins fyrir rúmu ári síðan. Hug­myndin er sem sagt að þetta sé
eins­konar rök­semd­ar­færsla, heim­speki­rit­gerð í bundnu máli. Ekki svo að skilja að þetta
séu rök­leg ljóð, þetta er póst­módernískur fjandi sem gagn­rýnir ekk­ert meira en sitt eigið
sjálf. Engu að síður er eitt­hvað í lík­ingu við kynn­ingu við­fangs­efnis-umfjöllun-gagn­rýni-
úrlausn í gangi.“

„Þemun er nokkur en flæða öll úr sömu upp­sprettu. Köllum það rann­sókn á
til­vist­ar­grund­velli mann­eskj­unnar, sem ein­stak­lings (í sam­fé­lagi) og sem heildar, sem
teg­undar. Það er að segja, hvernig er (best) hægt að lifa í þessum heim, þar sem allt er að
fara til fjand­ans (þótt lífs­skil­yrði hafi aldrei verið betri (fyrir okkur heppnu í það minnsta)).
Það eru sem sagt tvær meg­in­þræðir. Annars vegar stakið, ég-ein­stak­ling­ur­inn, hins vegar
þjóð­fé­lagið-sam­fé­lagið-mann­fé­lagið-nátt­úran. Þetta eru ekki aðskildir þættir heldur flétt­ast
þeir sífellt saman. Mann­eskjan er ekki til í tóma­rúmi. Enginn er eyja (ekki einu sinni Ísland),
allt teng­ist og spilar saman. Fyrir þá sem eru ekki að fylgja þessu þá eru helstu þemun
umhverf­is­mál, það að fóta sig í heim­inum og leiðir til að bregð­ast við þeim vanda­málum
sem að okkur steðja.“

„Þetta eru mínar bækur, en ég vil gjarnan lesa bækur ann­arra líka, sér­stak­lega ljóða­bækur.
Það sem meira er, ég vil gefa þær út. Í því skyni er rétt að benda á að bækur þessar verða
gefnar út undir merkjum Enda­hnúta útgáfu, sem ég rek. Mig langar til að gefa út aðra
höf­unda og er með verk­efni í bígerð til þess að koma því í kring. Nánar til­tekið langar mig
að gefa nýjum skáldum tæki­færi á að koma sínum fyrstu verkum út, að byrja að geta sér
nafn. Í því skyni hef ég í hyggju að leggja hluta af (von­andi) ágóða af sölu þess­ara bóka til
hliðar til þess að geta greitt kostnað af útgáfu fyrir skáld sem langar að gefa út hjá
Enda­hnútum (sem þarf ekki að vera ljóð). Áhuga­samir geta sent hand­rit á.
endahnutar@gmail.com.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár