Reglur um skattagrið geti ýtt undir skattaundanskot

Hag­fræð­ingar segja að skatta­grið geti gert skatt­und­an­skot og geymslu fjár í skatta­skjólum eft­ir­sókn­ar­verð­ari en ella. Óljóst er hvort reglur um skatta­grið verði settar áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur.

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, og Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson hag­fræð­ingur telja að skatta­grið geti gert skattaund­an­skot og til­færslu fjár í skatta­skjól eft­ir­sókn­ar­verð­ari en slík hátt­semi er nú þegar. Þetta kemur fram í grein sem birt­ist á Vís­inda­vef Háskóla Íslands á dög­unum, en þar svara þeir spurn­ing­unni „Hversu gagn­leg eru skatta­grið til þess að auka skatt­skil og skatt­tekjur?“.

Hag­fræð­ing­arnir nefna í svari sínu að sá sem felur fé í skatta­skjóli geti ekki notað þá fjár­muni með sama hætti og þá fjár­muni sem geymdir eru á lög­lega vísu, hér­lendis og erlendis. „Þessi stað­reynd ætti að hafa letj­andi áhrif á þá sem gætu freist­ast til að skjóta fjár­munum undan skatti og geyma í skatta­skjóli. Ef skatt­þegar telja lík­legt að skatta­grið verði veitt öðru hvoru dregur vænt­an­lega úr þessum latn­ing­ar­á­hrifum. Þannig má leiða að því rök að skatta­grið geti gert skatt­und­an­skot og geymslu fjár í skatta­skjólum eft­ir­sókn­ar­verð­ari en ella,“ skrifa þeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár