Brynjar: Engum dytti í hug að gera 25 ára strák að ráðherra

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að nið­ur­stöður próf­kjara hjá Sjálf­stæð­is­flokknum ráði því hverjir verði ráð­herrar flokks­ins, en ekki kynja­sjón­ar­mið eða ein­hverja ákveðna áferð. „Lýðræðið er þannig að það var próf­kjör og þar var ákveðin nið­ur­staða. Ég horfi til þess að menn virði nið­ur­stöðu kosn­ing­anna,“ sagði Brynjar meðal ann­ars í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun.

Mikið hefur verið rætt um stöðu kvenna í Sjálf­stæð­is­flokknum, bæði í kringum próf­kjör flokks­ins og nú vegna ráð­herra­skip­unar. Aðeins ein kona leiddi lista flokks­ins í kosn­ing­unum, Ólöf Nordal vara­for­maður. Rætt hefur verið um að flokk­ur­inn sæki aðra konu út fyrir þing­flokk­inn til þess að hafa jafn­ari kynja­hlut­föll í ráð­herra­emb­ættum sínum. Þó hefur einnig verið nefnt að konur innan þing­flokks­ins gætu fengið ráð­herra­emb­ætti, til dæmis Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins.

Brynjar sagði málið snú­ast um það hverjir ræðu „við djobbið núna. Það skiptir auð­vitað máli þegar þú ert orð­inn æðsti hand­hafi fram­kvæmda­valds­ins að þú hafir ákveðna reynslu, ákveðna þekk­ingu,“ sagði Brynjar.

„Það myndi engum detta í hug að 25 ára strákur sem kæmi nýr inn á þingið yrði gerður að ráð­herra,“ sagði Brynjar og við­ur­kenndi að þar ætti hann til dæmis við Áslaugu Örnu, sem er 25 ára gömul og nýr þing­maður. „Það getur vel verið og eg tel hana sjálfur mjög efni­legan stjórn­mála­mann, og ég held að það sé miklu meira í henni en menn átta sig á. Ég horfi auð­vitað á þetta, maður sem sjálfur hefur ráðið fólk í vinnu. Þá skiptir auð­vitað máli ákveðin reynsla og það að henda fólki í djúpu laug­ina 25 ára nýkomin á þing, ég er ekk­ert viss um að það myndi gera henni einu sinni gagn, ef ég á að vera bara hrein­skil­inn. Það er svo skrýtið að menn eru alveg til­búnir að gera eitt­hvað svona bara til að fá ein­hverja ásýnd eða áferð á þetta en við erum að tala samt um æðsta hand­hafa fram­kvæmda­valds­ins.“

Líkt og Kjarninn hefur greint frá þykir lík­legt að leitað verði út fyrir þing­flokk­inn að kven­kyns ráð­herra úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Nöfn Svan­hildar Hólm Vals­dóttur, aðstoð­ar­konu Bjarna Bene­dikts­sonar, og Ragn­heiðar Rík­harðs­dóttur, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks, verið nefnd í því sam­hengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár