Allt að 50 manns mega koma saman – 200 áhorfendur á kappleikjum

Allt að 200 manns mega sækja við­burði eins og íþrótta­kapp­leiki og leik­hús­sýn­ingar frá og með morg­un­deg­inum, að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Almennar fjölda­tak­mark­anir sam­komu­banns fara úr 20 manns upp í 50 manns á morgun.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

„Þetta eru umtals­verðar til­slak­anir núna,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir er hún steig út af rík­is­stjórn­ar­fundi í dag og kynnti fyrir fjöl­miðlum aðal­at­riðin í til­slök­unum á sótt­varna­ráð­stöf­unum sem taka gildi á morgun. 

Reglu­gerðin hefur verið birt og hana má lesa í heild hér.

50 manns mega frá og með morg­un­deg­inum koma saman í stað 20 áður og allt að 200 manns mega sækja sviðs­lista­við­burði, íþrótta­við­burði og aðra sam­bæri­lega við­burði ef hægt er að tryggja að fólk sitji í sætum með einn metra á milli ótengdra aðila.


Upp­lýs­ingar eiga líka að liggja fyrir um hvern og einn áhorf­anda, til að auð­velda megi smitrakn­ingu ef á þarf að halda.

„Þetta er breyt­ing fyrir íþrótta­að­dá­endur,“ sagði Svandís, en áhorf­endur hafa ekki mátt vera á íþrótta­kapp­leikjum und­an­farna mán­uði. Þessar nýju reglur gilda næstu þrjár vikur.


Svandís sagði einnig að opn­un­ar­tími veit­inga­staða og kráa yrði lengdur um eina klukku­stund frá því sem nú er. Ekki verða gerðar breyt­ingar varð­andi grímu­skyldu og hin almenna tveggja metra regla er ennþá í gildi.

[adspot]

Hér eru helstu atriði sem breyt­ast frá og með morg­un­deg­inum, 24. febr­úar:

Söfn og versl­anir: Við­skipta­vinir mega vera allt að 200 í stað 150 áður, að upp­fylltum skil­yrðum reglu­gerð­ar­innar um fer­metra­fjölda. Áfram gilda 2 metra nálægð­ar­mörk og grímu­skylda.

Við­burðir þar sem gestir sitja: Allt að 200 manns mega vera við­staddir athafnir trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga, sviðs­listar- menn­ingar- og íþrótta­við­burði, ráð­stefnur, fyr­ir­lestra og sam­bæri­lega við­burði að upp­fylltum öllum eft­ir­töldum skil­yrðum.

  • Heimiluð nánd­ar­mörk milli ótengdra aðila eru nú 1 metri, að upp­fylltum skil­yrðum.
  • Gestir mega ekki sitja and­spænis hver öðrum nema meira en tveir metrar séu á milli þeirra.
  • Þátttaka allra gesta skal skráð þar sem fram kemur nafn, kennitala og síma­númer.
  • Allir skulu nota and­lits­grímu og tryggt að fjar­lægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
  • Heimilt er að hafa hlé á sýn­ingum en áfeng­is­veit­ingar og áfeng­is­sala á við­burðum er óheimil.
  • Koma skal í veg fyrir hópa­mynd­anir, jafnt fyrir og eftir við­burð og í hléi.
  • Ef ekki er hægt að upp­fylla eitt­hvert fram­an­tal­inna skil­yrða gildir reglan um 50 manna hámarks­fjölda á við­burð­inum.

Áhorf­endur á íþrótta­við­burðum: Heimilt er að hafa áhorf­endur á íþrótta­við­burðum. Áhorf­endur mega vera allt að 200 manns að því gefnu að hægt sé að upp­fylla öll skil­yrði hér að framan um við­burði þar sem gestir sitja. Ef áhorf­endur eru stand­andi gildir regla um 50 manna hámarks­fjölda.

Sund- og bað­staðir: Gestir mega vera 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda.

Heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar: Gestir mega vera 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda. Í hverju rými mega nú að hámarki vera 50 manns.

Skíða­svæði: Heimilt er að taka á móti 75% af hámarks­fjölda af mót­töku­getu hvers svæðis.

Veit­inga­staðir þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ingar: Leyfi­legur hámarks­fjöldi í rými verður 50 manns. Heimilt er að taka á móti nýjum við­skipta­vinum til kl. 22.00 en þeir skulu allir hafa yfir­gefið stað­inn fyrir kl. 23.00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár