Gert ráð fyrir að virði stöðugleikaframlaga sé nú 458 milljarðar

Virði þeirra stöð­ug­leika­fram­laga sem íslenska ríkið fékk frá kröfu­höfum föllnu bank­anna hefur auk­ist um fimmt­ung. Framlag vegna við­skipta­bank­anna hefur hækkað lang­mest, eða um 52,2 millj­arða króna.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þegar íslenska ríkið samdi við kröfu­hafa föllnu bank­anna um þær eignir sem þeir þurftu að skilja eftir til að mega fara með aðrar eignir sínar út úr íslensku hag­kerfi, var áætlað virði þeirra eigna sem ríkið fékk í sinn hlut, svo­kall­aðar stöð­ug­leika­eignir, áætlað 384,3 millj­arðar króna.

Virði þess­ara eigna hefur hækkað umtals­vert síðan að þær voru afhentar, í byrjun árs 2016 og áætlað er að í lok þessa árs verði það 457,8 millj­arðar króna, sam­kvæmt frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Það þýðir að eign­irnar hafa hækkað um 73,6 millj­arða króna í virði frá því að ríkið fékk þær í hendur.

Þar munar lang­mest um hækkun á eignum sem tengj­ast þeim eign­ar­hlutum í við­skipta­bönk­unum Íslands­banka, sem ríkið eign­að­ist að fullu, og Arion banka, en ríkið fékk afhent sér­stakt skulda­bréf upp á 84 millj­arða króna vegna hans auk þess sem gerður var afkomu­skipta­samn­ingur sem met­inn var á 19,5 millj­arða króna. Sam­an­lagt virði fram­laga vegna við­skipta­bank­anna var metið á 288,2 millj­arða króna í byrjun árs 2016 en er nú metð á 340,4 millj­arða króna. Það er hækkun upp á 52,2 millj­arða króna.

Aðrar fram­seldar eignir, fjár­sóps­eignir og laust fé sem var afhent hafa einnig hækkað um sam­tals 20,5 millj­arða króna í virði.

Seldu Lyfju og ætla að slíta Lindarhvoli

Í gær var greint frá því að félagið Lind­ar­hvoll, sem stofnað var til að ann­ast umsýslu og sölu stöð­ug­leika eigna sem ríkið fékk afhent í kjöl­far sam­komu­lags við kröfu­hafa föllnu bank­anna, hafi lokið hlut­verki sínu og verði slit­ið.

Alls nemur and­virði þeirra stöð­ug­leika­eigna sem búið er að inn­leysa um 207,5 millj­örðum króna en frá­talin eru fram­lög vegna við­skipta­bank­anna Arion banka og Íslands­banka og aðrar óinn­leystar eign­ir.

Lind­ar­hvoll sam­þykkti að selja Lyfju hf. til félags­ins SID ehf., í eigu SIA III slhf., Þara­bakka ehf. og Kasks ehf., á mánu­dag. SID hafði átt hæsta til­boðið í opnu sölu­ferli fyr­ir­tæk­is­ins. Kaup­samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um áreið­an­leika­könnun og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Kaup­veðrið hefur ekki verið gefið upp.

Búið að ráðstafa 204 milljörðum

Alls hefur rík­is­sjóður ráð­stafað um 204 millj­örðum króna af tekjum vegna stöð­ug­leika­eigna. Um 130 millj­örðum króna hefur verið ráð­stafað beint til nið­ur­greiðslna á skuldum rík­is­sjóðs, 34 millj­örðum króna hafa farið í að mæta tapi vegna lækk­unar á stofns til sér­staks skatts á fjár­mála­fyr­ir­tæki og um 40 millj­arðar króna hafa farið í að lækka líf­eyr­is­skuld­bind­ingar gagn­vart Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR). Sú ráð­stöfun lækkar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­­­is­­­sjóðs við B-deild LSR um áður­­­greinda upp­­hæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár