„Choi-gate“ – Yfirnáttúruleg spilling í Suður-Kóreu

Forseti Suður-Kóreu, Park Geun-hye, er í kröppum dansi eftir að upp komst um stór­fellt spill­ing­ar­mál sem teng­ist for­set­anum og vin­konu hennar, Choi Soon-sil. Eftir fjölda­mót­mæli og óvissu hefur Park boð­ist til að segja af sér.

Park Geun-hye, for­seti Suður-Kóreu, sagð­ist á þriðju­dag­inn vera til­búin til að segja af sér ef þingið kemur sér saman um við­eig­andi bráða­birgða­lausn til að stjórna land­inu þangað til ný kosn­ing geti farið fram. Rannsókn rík­is­sak­sókn­ara hefur leitt í ljós spill­ing­ar­mál sem tengir Park við mörg af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins, þar á meðal Samsung, Lotte, og SK Group. Hún er ásökuð um fjár­kúgun gegn yfir fimm­tíu fyr­ir­tækjum í land­inu með því að þrýsta á þau til að setja fjár­magn, sem sam­tals er talið nema um 80 millj­arða won eða um 7.7 millj­arða króna, í tvo góð­gerð­ar­sjóði undir stjórn vin­konu sinnar, Choi Soon-sil.

Þar að auki hefur komið í ljós að Choi, sem hvorki situr ekki í rík­is­stjórn Park né gegnir neinu form­legu opin­beru emb­ætti, hefur haft aðkomu að ákvarð­ana­töku for­set­ans og skrifað fjöl­margar af ræðum Park. Sterkur grunur leikur líka um að hún hafi haft aðkomu að flestum af mik­il­vægum mál lands­ins í for­seta­tíð Park, meðal ann­ars tekið þátt í leyni­legum samn­inga­við­ræðum við Norður-Kóreu,

Eftir að rann­sóknin hófst fyrir um mán­uði síðan hafa fjögur fjölda­mót­mæli átt sér stað í höf­uð­borg lands­ins, Seoul, þar sem hund­ruðir þús­unda mót­mæl­enda hafa kraf­ist þess að Park segi af sér. Samkvæmt skoð­ana­könnun í síð­ustu viku nýtur hún ein­ungis stuðn­ings um 4% Suður-Kóreubúa. Hún hefur reynt að koma til móts við gagn­rýni gegn henni með því að reka aðstoð­ar­menn sína og Chief of Staff, og hrista upp í rík­is­stjórn­inni með því að útnefna ráð­herra úr öðrum flokkum. Þá hefur hún ítrekað beðist afsök­unar og við­ur­kennt sök á mis­tökum sem gerð hafa verið undir hennar stjórn, þar á meðal óvið­eig­andi aðkomu Choi að ræðu­skrifum. Þá er for­vitni­legt að hún hafi séð þörf á því að und­ir­strika að hún sé ekki hluti af sér­trú­ar­söfn­uði eða not­ast við sjaman­isma í tíð hennar í Bláa hús­inu (for­seta­bú­staður Suður-Kóreu) en snöggt fall Park er sam­ofið vin­áttu hennar við Choi Soon-sil.

Raspútínfeðginin

Vinátta Choi og Park á rætur sínar að rekja til árs­ins 1974 þegar móðir Park og for­seta­frú, Yuk Young-soo, var ráð­inn af dögum í þjóð­leik­húsi lands­ins með byssu­kúlu sem ætluð var for­set­anum sem stóð í ræðu­stólnum, Park Chung-hee, föður Park. Eftir atvikið hafði náinn ráð­gjafi Park Chung-hee, Choi Tae-min, sam­band við hina ungu Park Geun-hye og sagði að látin móðir hennar hefði talað við sig í draumi. Choi Tae-min var stofn­andi síns eigin sér­trú­ar­söfn­uðar, Yongsae-gyo (Kirkja hins eilífa lífs), og er tal­inn hafa haft mikil áhrif bæði á feðginin. Park Chung-hee varð sjálfur ráð­inn af dögum árið 1979 af yfir­manni leynilög­reglu lands­ins (KCIA), Kim Jae-gyu, sem útskýrði fyrir rétti að ein af ástæð­unum fyrir til­ræð­inu var að Park Chung-hee hefði mis­tek­ist að koma í veg fyrir hin spilltu ódæð­is­verk Choi Tae-min og þau slæmu áhrif sem hann hefði á dóttur Park.

Samkvæmt minn­is­blaði frá 2007 sem var lekið í gegnum WikiLeaks árið 2011 frá þáver­andi sendi­herra Banda­ríkj­anna til Suður-Kóreu, Alex­ander Vershbow, voru orðrómar víða um að Choi-Tae Min hefði haft algjöra stjórn á lík­ama og sál Park Geun-hye á upp­vaxt­ar­árum hennar. Choi Soon-sil er dóttir Choi Tae-min og tók við af föður sínum þegar hann lést árið 1994. Til við­bótar við þau til­felli sem upp hafa komið um óvið­eig­andi póli­tíska ráð­gjöf tengd ver­ald­legum málum allt frá því að Park Geun-hye komst fyrst á þing 1998 hefur Choi, sam­kvæmt kóreskum fjöl­miðlum, einnig ráð­lagt Park um yfir­nátt­úru­leg álita­mál; hvaða klæða­litum hún ætti að forð­ast (rauðum og hvítum), og veitt henni háls­men og aðra gripi til að vernda hana gegn illum öflum.

Dropinn sem hefur fyllt mæl­inn und­an­far­inn mánuð á sér þó rætur í atburðum sem áttu sér stað í októ­ber á síð­asta ári þegar sam­tök kóresks iðn­aðar (e. Federation of Korean Industries (FKI)) settu upp tvo sjóði; Mir Foundation til styrktar kóreskrar menn­ingu, og K-Sports Foundation til styrktar kóreskra íþrótta. Sjóð­irnir tveir voru stjórn­aðir af Choi og það vakti mikla athygli þegar kom í ljós að Mir Foundation hefði náð að safna að sér yfir 50 millj­örðum won, eða um 4,8 millj­örðum króna, og K-Sports Foundation um 30 millj­örðum won, um 2,8 millj­arðar króna, á fyrstu dög­unum eftir stofnun þeirra. Rann­sak­endur máls­ins segja fyr­ir­tækin umræddu hafi styrkt sjóð­ina til að kom­ast hjá skattend­ur­skoðun, og hafa þeir haf­ist handa að rann­saka fleiri meint spill­ing­ar­mál tengd for­set­anum sem snúa að hinum rík­is­rekna líf­eyr­is­sjóði National Pension Service (NPS).

Svanasöngur forsetans

Park hafði ítrekað neitað orðrómum um óeðli­leg áhrif vin­áttu hennar við Choi áður en upp­ljóstr­anir síð­ustu vikna áttu sér stað. Myndin sem nú er dregin upp sýnir for­seta sem skortir ekki ein­ungis tengsl við almenn­ing heldur sé undir sterkum áhrifum vafa­samra ein­stak­linga í kringum sig. Ekki er hægt að ákæra Park eftir því sem að hún er sitj­andi for­seti og óljóst er hvort kóreska þingið leggi til máls­höfðun gegn henni áður en þingi verður slitið 9. des­em­ber, eða hvort stjórn­ar­and­staðan fall­ist á þá til­lögu hennar að segja af sér þegar bráða­birgða­lausn sé lögð fram. Umfang máls­ins mun skýr­ast frekar á næstu dögum og vikum en ljóst þykir að valda­tíð Park Geun-hye er brátt að enda eftir lang­vinna sápu­óp­eru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár