Heimilin í landinu, hrægammar og íslenski kúrinn allt dæmi um popúlíska orðræðu

Orðræða ýmissa fram­sókn­ar­manna um Icesave, gegn Evr­ópu­sam­band­inu, um íslenska kúr­inn, hrægamma­sjóði, heim­ilin í land­inu og gegn inn­flytj­endum, nú síð­ast múslimum, ber ein­kenni þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé orð­inn þjóð­ern­ispopúl­ískur flokkur. Þetta kemur fram í fræði­grein Eiríks Bergmann, „Populism in Iceland: Has the Progressive Party tur­ned pop­u­list?“ sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla í dag. Eiríkur kemst að þeirri nið­ur­stöðu að flokk­ur­inn sé að minnsta kosti mjúk útgáfa af popúl­ískum flokki.

Popúlisminn ekki einfaldur


Eiríkur segir að þjóð­ern­is­hyggja hafi lengi verið und­ir­liggj­andi í evr­ópskum stjórn­málum og popúl­ismi sé „náskyldur ætt­ingi“ þjóð­ern­is­hyggj­unnar. Popúl­ismi sé hins vegar ekki ein­hver vel afmörkuð og rök­rétt stefna og að minnsta kosti þrjár bylgjur popúl­isma hafi riðið yfir á und­an­förnum 40 til 50 árum og alltaf í tengslum við kreppur eða miklar félags­legar breyt­ingar. Þær hafi allar verið ólíkar rétt eins og flokk­arnir sem hafa talist til popúlista.

Í grein­inni kemur fram að ekki er sam­hljómur um það í fræð­unum hver skil­grein­ingin á popúl­isma eigi að vera, en Eiríkur tekur fram tíu ein­kenni sem nútíma popúl­ískir stjórn­mála­flokkar í Evrópu bera.

Þessir flokkar eru iðu­lega á móti inn­flytj­endum og elítum. Þeir eru fullir efa­semda um Evr­ópu­sam­run­ann, í þeim eru siða­predik­arar sem aðhyll­ast vernd­un­ar­stefnu í efna­hags­málum, tala fyrir lögum og reglu og eru á móti fjöl­menn­ing­ar­þróun í Evrópu. Þeir vilji heldur höfða til til­finn­inga en raka, geri grein­ar­mun á „okkur“ og „hinum“ og treysti á sterka leið­toga sem séu gæddir per­sónu­töfrum og tali í ein­földum lausnum á flóknum málum sem íþyngi almenn­ingi. Hann segir að hægt sé að finna dæmi um öll þessi ein­kenni hjá Fram­sókn­ar­flokknum und­an­farin ár.

Breytti um stefnu mjög hratt eftir að Sigmundur tók við


Eiríkur segir að þrátt fyrir að þjóð­ern­is­hyggja sé og hafi alltaf verið sterk á Íslandi hafi þjóð­ern­ispopúl­ískir flokkar ekki, svip­aðir þeim sem hafi rutt sér til rúms ann­ars staðar í Evrópu, ekki náð mik­illi fót­festu fyrr en eftir hrunið. Það hafi verið í því umhverfi sem ný for­ysta komst til valda í gamla land­bún­að­ar­flokknum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi átt rætur sínar að rekja til land­bún­að­ar­sam­fé­lags­ins og hafi alla tíð verið byggður á þjóð­ern­is­kennd. Flokk­ur­inn hafi þó reynt að nútíma­væð­ast fyrir hrunið og reynt að ná til kjós­enda í þétt­ari byggðum lands­ins. Hann hefði alltaf verið efa­semd­ar­flokkur þegar kom að Evr­ópu­sam­band­inu en þetta hafi breyst og á árunum 2000 til 2004 hafi hann jafn­vel verið í for­ystu þeirra flokka sem töl­uðu fyrir Evr­ópu­sam­bands­að­ild.

Þegar Sig­mundur Davíð hafi tekið við stjórn­ar­taumunum eftir kreppu hafi hins vegar fljótt verið snúið aftur til stjórn­mála fyrri tíma. Ný for­ysta flokks­ins hafi hoppað yfir frjáls­lyndu tím­ana og farið aftur í að sam­sama sig með þjóð­ern­issinn­uðum for­verum eins og Jónasi Jónssyni frá Hriflu. Flokk­ur­inn hafi fljótt breytt um stefnu og fært sig í popúl­ísk­ari átt.

Hann sé þannig eitt mjög fárra dæma um hefð­bundna flokka sem færi sig yfir í popúl­is­mann. Hinir flokk­arnir séu Þjóð­ar­flokk­ur­inn í Sviss og Frels­is­flokk­ur­inn í Aust­ur­ríki. Eiríkur bendir einnig á að flokk­ur­inn sé þá fyrsti popúl­íski flokk­ur­inn á Norð­ur­lönd­unum til að vera í for­svari rík­is­stjórnar.

Orðræðan passar við öll einkenni popúlisma


Eiríkur rekur dæmi um orð­ræðu fram­sókn­ar­manna, ekki síst Sig­mundar Davíðs, gegn ESB og gegn Icesave. Þá fjallar hann um ummæli fram­sókn­ar­manna um erlenda kröfu­hafa, sem hafi kerf­is­bundið verið kall­aði hrægammar, og um ummæli gegn inn­flytj­endum, flótta­mönnum og múslimum.

Eiríkur rekur einnig óánægju meðal fram­sókn­ar­manna sem sögðu sig úr flokknum vegna stefnu­breyt­inga. Frjáls­lynd­ari með­limir eins og Guð­mundur Stein­gríms­son hafi farið úr flokknum, og þá hafi Sig­mundur Davíð orðið óum­deildur og vel lið­inn leið­togi, sem sé eitt merkj­anna um popúl­isma. Gagnrýni frá öðrum um að flokk­ur­inn væri að fær­ast í popúl­íska átt hafi verið mætt með því að segja það taktík vinstri­s­inn­aðrar elítu og ein­elti.

Eiríkur fjallar einnig um sjálfs­mynd þjóð­ar­innar, og það að þjóð­ern­is­kennd hafi alltaf verið rík hér á landi. Þetta lit­ist af því að vilja vera sjálf­stæð og full­valda þjóð en á sama tíma vera við­ur­kennd sem jafn­ingi ann­arra ríkja. Einn hluti sjálfs­mynd­ar­innar togi Ísland frá öðrum ríkjum með því að leggja áherslu á hversu ein­stakir Íslend­ingar séu, en annar ýti á þátt­töku í alþjóða­hag­kerf­inu. Þetta valdi oft spennu, nú síð­ast í hrun­inu og eftir það.

Ennþá frekar þjóðernisflokkur en eingöngu popúlískur


Flokk­ur­inn er þrátt fyrir allt ekki ein­göngu popúl­ískur að mati Eiríks, heldur enn meiri þjóð­ern­is­flokkur en nokkuð annað. Samt sem áður segir hann ekki annað hægt en að flokka Fram­sókn­ar­flokk­inn með „að minnsta kosti“ mýkri útgáfum af popúlista­flokkum í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár