Tengslin milli útgerðarinnar og stjórnmálaflokka verði að rofna

Fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra spyr hversu lengi Íslend­ingar eigi að láta bjóða sér óbreytt ástand.

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhann­es­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fyrrum for­maður Við­reisnar, segir það vera úti­lokað að þjóðin fái sann­gjarnan hlut af sam­eign­inni nema rofin verði tengslin milli útgerð­ar­innar og stjórn­mála­flokk­anna – tengsl sem hafi orðið til þess að lækka veiði­gjöld og auka hagnað útgerðar­að­als­ins.

Þetta skrifar hann í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Hann spyr enn fremur hve lengi Íslend­ingar eigi að láta bjóða sér óbreytt ástand.

Í grein á vef­svæði Bene­dikts segir hann að núver­andi rík­is­stjórn „gæti vel staðið undir nafn­inu Sér­hags­muna­stjórnin“. Veiði­gjald hafi verið lækkað og öllum almenn­ingi sé mis­boðið. Það verði aldrei sátt um kerfi sem ívilni útgerð­ar­mönnum og þegar gjald sé ákveðið af póli­tíkusum og emb­ætt­is­mönnum.

Hagnaðurinn af „sameigninni“ lendir allur í vasa útgerðarmanna og afkomenda þeirra

Benedikt segir að útgerðin hafi aftur á móti á und­an­förnum árum for­herst í því að gefa ekki krónu eftir af sínum ofur­gróða og að almenn­ingur sé ekki sáttur við einka­eign á sam­eign þjóð­ar­innar. Á móti sé ekki óeðli­legt að spurt sé: Hver hlúir að sam­eign og gætir þess að vel sé um hana gengið?

Kvóta­kerfið með reglum um nýt­ing­ar­rétt til langs tíma stuðli að því að útgerðin fari ekki ráns­hendi um auð­lind­ina til þess að ná í skamm­tíma­hagnað. Kerfið hafi orðið grund­völlur mik­illar hag­ræð­ingar sem að mestu hafi hafnað í vasa útgerð­ar­manna.

„Fyrir daga kvóta­kerf­is­ins var útgerðin rekin á núlli með síend­ur­teknum geng­is­fell­ingum, en nú er öldin önnur. Fólk, sem áður rak útgerð sem barð­ist í bökkum, varð skyndi­lega auð­kýf­ingar á montjeppum með villur úti í erlendum paradísum. Útgerð­ar­menn eru smám saman að leggja undir sig allt atvinnu­líf þjóð­ar­innar. Hagn­að­ur­inn af „sam­eign­inni“ lendir allur í vasa og afkom­enda þeirra. Núver­andi stjórn­ar­flokkar vilja festa það kerfi nýrra léns­herra um alla fram­tíð,“ skrifar hann.

„Kyrrstöðuflokkarnir“ vilja að veiðigjaldið sé ákveðið af stjórnmálamönnum

Benedikt gagn­rýnir rík­is­stjórn­ar­flokk­ana en hann segir að stjórn­mála­menn „kyrr­stöðu­flokk­anna í rík­is­stjórn­inni“ vilji veiði­gjald sem sé ákveðið af stjórn­mála­mönnum en taki ekki mið af mark­aði. Þeir sem mikið skulda fái afslátt. Flestum þætti það ein­kenni­leg við­skipta­að­ferð við bens­ín­dæl­una.

Ýmsir þing­menn sem á hátíð­ar­stundum kenni sig við frjálsa sam­keppni vilji alls ekki hleypa mark­aðs­öfl­unum að til þess að ákveða veiði­gjaldið sem þó sé almenn regla á Íslandi, til dæmis á húsa­leigu­mark­aði. Ekkert kerfi sem byggir á und­an­þágum og sér­reglum nái að upp­fylla kröfur um sann­girni. Sann­gjarnt gjald fyrir veiði­heim­ildir sé nákvæm­lega eins skil­greint og á hluta­bréfa­mark­aði: „Það sem mark­að­ur­inn ber“. Það sé fullt gjald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár