Sex ný innanlandssmit í gær

Fimm af þeim sex sem greindust með virkt smit inn­an­lands í gær voru í sótt­kví. Ein­stak­lingum í sótt­kví heldur áfram að fjölga og eru nú 919 tals­ins. Í ein­angrun eru 117.

Sex ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræði­deild sem greindi alls 291 sýni. Hlutfall jákvæðra sýna var því rétt rúm­lega tvö pró­sent. Fimm af þeim sem greindust með kór­ónu­veiruna í gær voru í sótt­kví. Í ein­angrun eru nú 117 en voru 115 í gær.

Fjöldi ein­stak­linga í sótt­kví er nú 919 en í gær voru 850 í sótt­kví. Einn ein­stak­lingur liggur á sjúkra­húsi líkt og í gær, þó ekki á gjör­gæslu. 14 daga nýgengi fyrir inn­an­lands­smit er nú 18,3 á hverja 100.000 íbúa. Það hefur hækkað dag frá degi síðan 20. ágúst þegar nýgengi var um 15. Þá hafði nýgengi smita lækkað umtals­vert frá því það náði hámarki í um 27 þann 8. ágúst síð­ast­lið­inn.

Á landa­mær­unum fóru alls 1365 í skimun. Mótefna­mæl­ingar er beðið hjá tveimur ein­stak­lingum. Nýgengi smita á landa­mær­unum er 12,3 á hverja 100.000 íbúa og hefur hald­ist nokkuð stöðugt síð­ustu vik­una.

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og emb­ætti land­læknis hafa boðað til upp­lýs­inga­fundar klukkan 14 í dag. Á fund­inum munu Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis, og Alma D. Möller, land­læknir, fara yfir stöðu mála varð­andi fram­gang kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér á landi ásamt Rögn­valdi Ólafs­syni, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár