Enn græn þrátt fyrir fjölgun smita

Á nýupp­færðu korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu um þróun kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins heldur Ísland græna litnum. Aust­ur­hluti álf­unnar og Skand­in­avía eru að megn­inu til græn en rauð­ara er um að lit­ast á Íber­íu­skaga og í Hollandi.

Ísland heldur græna litnum á nýupp­færðu korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu, ECDC, um þróun kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í álf­unni. Til þess að fá grænan lit á kort­inu þarf 14 daga nýgengi smita að vera innan við 50 sam­hliða því að hlut­fall jákvæðra sýna er innan við fjögur pró­sent. Sé hlut­fall jákvæðra sýna hins vegar innan við eitt pró­sent er nóg að 14 daga nýgengi smita sé innan við 75 til þess að fá grænan lit á korti ECDC.

Skand­in­avía, Þýska­land sem og lönd austar í álf­unni eru að mestu eða öllu leyti græn. Staðan er verst í Hollandi, sem er að stórum hluta dökkrautt, og á Íber­íu­skaga en Portúgal fær rauðan lit og hluti Spánar dökk­rauðan. Þá er Kýpur einnig dökkrautt á kort­inu en Írland rautt. Á þeim svæðum sem eru dökk­rauð er 14 daga nýgengi smita meira en 500.

Ef kortið er borið saman við kort síð­ustu viku má helst merkja breyt­ingar til hins verra. Írland var til að mynda gult en er nú rautt, Frakk­land var að mestu leyti grænt en er nú gult. Í síð­ustu viku var litur Hollands á kort­inu rauður en á nýjasta kort­inu er Holland að megn­ingu til dökkrautt.

Nýgengið á hraðri uppleið

[links]Samvkæmt upp­lýs­ingum á covid.is er 14 daga nýgengi inn­an­lands komið upp í 63,5 á hverja 100 þús­und íbúa og hefur hækkað mjög skart á síð­ustu viku. Nýgengi á landa­mær­unum stendur í rúm­lega 16. Frá mán­aða­mótum hafa full­bólu­settir ekki þurft að fara í skimun við kom­una til lands­ins en breyt­ing á því fyr­ir­komu­lagi er í vændum. Frá og með þriðju­degi þurfa allir sem koma til lands­ins að skila nei­kvæðu PCR-prófi eða hrað­prófi sem er innan við 72 klukku­stunda gam­alt fyrir brott­för. Enn munu óbólu­settir þurfa að fara í tvær skimanir við kom­una til lands­ins með fimm daga sótt­kví á milli.

Þórólfur Guðnason greindi frá því á upp­lýs­inga­fundi fyrr í dag að hann hefði nú þegar skrifað minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra þar sem hann leggur til að teknar verði upp tak­mark­anir inn­an­lands á ný, svo „hefta megi veiruna og koma í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar hennar“.

Í gær greindust 78 manns með COVID-19 inn­an­lands sem er mesti fjöldi smita sem greinst hefur það sem af er ári. Daginn þar áður greindust 56 sem var mesti fjöldi sem greinst hafði á einum degi frá því í októ­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár