Segir lífeyrissjóðskerfið ala á innbyggðri mismunun

Formaður VR bendir á að mun lík­legra sé að hálauna­maður hafi komið yfir sig skuld­lausu þaki á starfsæv­inni og þurfi því minna til að lifa af – öfugt við þau sem lægst höfðu launin.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að í grunn­inn ali líf­eyr­is­sjóðs­kerfið á inn­byggðri mis­munun í rétt­inda­söfnun vegna mis­mun­andi hlut­fall örorku, kynja­sam­setn­ingar og lífald­urs ákveð­inna starfs­stétta – þar sem þær séu skyld­aðar til greiðslu í ákveðna sjóði á meðan aðrir geti greitt í frjálsa sjóði, sem nýti sér glufur í lögum til að auka sér­eign á kostnað „sam­trygg­ingar“ og almanna­trygg­inga. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í dag.

„Líf­eyr­is­rétt­indi byggja á hlut­falli með­al­launa yfir starfsæv­ina þannig að hálauna­maður fær sama hlut­fall af sínum svim­andi ævi­tekjum og verka­konan sem varla gat lifað af sínum,“ skrifar hann og spyr enn fremur hvaða sam­trygg­ing sé í því.

Þá telur hann að þegar kemur að líf­eyri sé mun lík­legra að hálauna­mað­ur­inn hafi komið yfir sig skuld­lausu þaki á starfsæv­inni og þurfi því minna til að lifa af – öfugt við þau sem lægst höfðu launin.

„Það sem toppar svo vit­leys­una er að þeir sem hafa lægstu rétt­indin úr líf­eyr­is­kerf­inu eru þeir sömu og lenda hvað verst í skerð­ingum almanna­trygg­inga,“ skrifar hann.

Lífeyrissjóðskerfið orðið of frekt til fjárins

Ragnar Þór spyr jafn­framt hvernig sú for­múla gangi upp að fjölga fólki á vinnu­mark­aði með starf­getu­mati og hækkun líf­eyr­i­s­töku­ald­urs á meðan störfum fækki í bland við fólks­fjölgun.

Margt bendi til þess að líf­eyr­is­sjóðs­kerfið sé orðið of frekt til fjár­ins. Geta Íslend­inga til að bæta lífs­kjör almenn­ings frá degi til dags verði erf­ið­ari þar sem sífellt hærra hlut­fall af launum og hærri launa­tengd gjöld renni til sjóð­anna.

„Einnig má spyrja hvort há ávöxt­un­ar­krafa sjóð­anna hafi nei­kvæð áhrif á lífs­gæði heild­ar­innar. Inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna eru um 3.500 millj­arða. Í gegnum vexti á lánum til almenn­ings og fyr­ir­tækja og arð­sem­is­kröfu á verð­bréf þurfa líf­eyr­is­sjóð­irnir að ná 3,5% ávöxtun sem þýðir 122,5 millj­arðar á ári, að raun­virði, út úr íslensku hag­kerfi,“ skrifar hann.

Það sé einnig ljóst að sjóð­irnir haldi uppi vaxta­gólfi í bland við óþarfa áhættu­sækni þegar inn­byggð ávöxt­un­ar­krafa kerf­is­ins sé of há og í sann­an­legri mót­sögn við til­gang­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár