Bjarni: Hefði verið mjög djarft að binda okkur ekki við Evrópusambandið

Bjarni Bene­dikts­son segir nauð­syn­legt að horfa til þess að þegar Ísland var að semja um sam­flot við ESB í bólu­efna­kaupum hafi ekk­ert verið fast í hendi hvað bólu­efni varð­aði. Það hefði verið „mjög djörf ákvörðun“ að reyna að feta veg­inn ein.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Það hefði verið „mjög djörf ákvörðun“ að vera ekki í sam­floti við Evr­ópu­sam­bandið við kaup á bólu­efnum, sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í svari við fyr­ir­spurn Bergþórs Ólasonar þing­manns Mið­flokks­ins á Alþingi í morgun.[links]

Bergþór spurði Bjarna sér­stak­lega út í orð Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis sem vitnað var til í fréttum Stöðvar 2 í vik­unni, um að með því að semja um að taka þátt í sam­starfi Evr­ópu­sam­bands­ins hefði Ísland skuld­bundið sig til þess að kaupa ekki bólu­efni utan þess sam­starfs.

Í svari við því sér­stak­lega sagði Bjarni að hans skiln­ingur væri að Íslend­ingar væru ein­ungis skuld­bundnir til þess að reyna ekki að kaupa meira bólu­efni af þeim sex fram­leið­endum sem Evr­ópu­sam­bandið hefði samið við.

Hann sagði að þessi skil­yrði sam­komu­lags­ins við ESB hefðu verið rædd í rík­is­stjórn, en hann mundi ekki til þess að þau hefði legið skýr fyrir í fyrstu.

Bjarni sagði einnig upp­lýs­ingar hafa borist sér bæði beint og óbeint um þreif­ingar um að koma Íslend­ingum í sam­band við aðra aðila, en fór ekki djúpt í þá sálma í svari sínu.

Mikil óvissa er samningar voru gerðir

Varðandi þátt­töku Íslands í bólu­efna­sam­starfi Evr­ópu­sam­bands­ins almennt sagði Bjarni að það þyrfti að hafa í huga að snemma á síð­asta ári og fram á mitt ár, þegar verið var að und­ir­búa það sam­starf, hafi verið mikil óvissa um þróun bólu­efna.

Nauð­syn­legt væri að setja sig í þau spor sem staðið var í á þeim tíma. Óvissa hefði þá verið uppi um hvaða fram­leið­andi yrði fyrstur að koma bólu­efni á markað og einnig hefði verið óvíst hvort hægt yrði að horfa til þess að bólu­efni yrði „stóra lausnin“ fyrir okkur.

Ekki hefði verið gott ef Ísland hefði, í stað þess að taka þátt í sam­starf­inu, ef til vill ein­ungis náð samn­ingum við einn fram­leið­anda, sem hefði síðan ekki verið á meðal þeirra sem fyrstur var að koma bólu­efni á markað.

Gríð­ar­leg óvissa hvenær bólu­efni yrði til, hverjum tæk­ist að fram­leiða það, hvort við gætum horft til þess að það yrði stóra lausnin fyrir okkur.

Allt of snemmt að tala um einhver mistök

Bjarni nefndi líka í svari sínu að ekki væri úti­lokað að hug­myndir sem viðr­aðar hefðu verið á fundum með full­trúum Pfizer um rann­sókn á virkni bólu­efn­is­ins á Íslandi yrðu að veru­leika.

„Ég held að það sé allt of snemmt að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að það hafi verið mis­tök að fara í sam­flot með Evr­ópu­sam­band­inu, jafn­vel þó að ég ætli ekki hér að fara að fella ein­hverja gæða­ein­kunn á nákvæm­lega frammi­stöðu Evr­ópu­sam­bands­ins sam­kvæmt þeim skuld­bind­ingum sem sam­bandið tók á sig gagn­vart okkur í þessu máli,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár