„Hún er ógeðslega mikil stjarna – þessi stelpa!“

Af hverju Laufey? – segist tónlistar­spekúlantinn Árni Matthíasson oft vera spurður. Já, af hverju Laufey? Þessi unga tónlistar­kona virðist kannski hafa sprungið út eins og flugeldur. Og þó! Sagan er marglsungnari en svo. Rætt var við tónlistar­fólk og spekúlanta til að henda betur reiður á hana – og heyra aðeins um hana bæði nú og á barns­aldri.

Laufey Lín Jóns­dóttir er alin upp í þremur heims­álfum; á Íslandi, í Kína og í Banda­ríkjunum en mamma hennar er kínversk og pabbi hennar íslenskur. Laufey talar því mandarín og sem barn gekk hún í skóla í Banda­ríkjunum, þar til hún var á tíunda ári. En hún gekk líka í Háteigs­skóla og Versló. Á sumrin dvaldi hún í Kína en mamma hennar er fiðlu­leikari hjá Sinfóníu­hljómsveit Íslands og þess má geta að amma og afi hennar í Kína eru fiðlu- og píanó­prófessorar. Sjálf var Laufey aðeins fimmtán ára þegar hún lék einleik á selló með hljóm­sveitinni. Hún var jafnframt selló­leikari í ungsveit SÍ.

Það má segja að Laufey Lín sé alþjóðleg rödd – í orðsins fyllstu merkingu. Afsprengi þriggja heimsálfa og á dögunum þóttu mikil tíðindi þegar hún hlaut Grammy-verðlaun fyrir plötuna Bewitched og þá í flokki hefð­bundinna söng-popp­platna.

Kornung er hún nú sögð hafa djassað djassinn inn …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár