Sigmundur Davíð boðar rannsókn á stofnun nýju bankanna

„Þetta er við fyrstu sýn slá­andi,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, í við­tali við þátt­inn Í bítið á Bylgunni í morgun, þar sem gögn um end­ur­reisn nýju bank­anna og samn­inga við kröfu­hafa voru til umræðu, meðal ann­ars út frá gögnum sem Víglundur Þor­steins­son, fyrr­ver­andi stór eig­andi BM Vallár, hefur aflað sér og sent á Alþingi og fjöl­miðla. Fjallað er um málið í Morg­un­blað­inu í dag.

Sig­mundur Davíð sagði í við­tal­inu að með þessum samn­ingum, hefðu gríð­ar­legar fjár­hæðir, sem hægt væri að meta upp á mörg hund­ruð millj­arða króna, verið færðar til kröfu­hafa. Hann boð­aði enn fremur rann­sókn Alþingis á mál­inu, og sagði það grafal­var­legt. Var spjót­unum ekki síst beint að eft­ir­lits­stofn­unum rík­is­ins, opin­berum starfs­mönnum og ráð­herrum í fyrr­ver­andi rík­is­stjórn, ekki síst Stein­grími J. Sig­fús­syni, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, og nú þing­manni Vinstri grænna.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins er meðal ann­ars haft eftir Víglundi að stór­felld brot á almennum hegn­ing­ar­lögum hafi verið framin af stjórn­völdum. „Í grein­ar­gerð­inni leiði ég lík­ur að því að fram­in hafi verið stór­felld brot á al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um, stjórn­sýslu­lög­um, lög­um um fjár­mála­fyr­ir­tæki, lög­um um fjár­mála­eft­ir­lit og ef til vill fleiri lög­um. Sýn­ist mér hugs­an­legt að ólög­mæt­ur hagn­aður skila­nefnda/​slita­stjórna af meint­um fjár­svik­um og auðgun­ar­brot­um kunni að nema á bil­inu 300 - 400 millj­örðum króna í bönk­un­um þrem­ur,“ segir Víglundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár