Namibísk samtök boða málsókn gegn Samherja

Namibísku sam­tökin Affir­mative Repositioning hafa boðað að þau ætli sér að höfða einka­mál gegn Samherja í sam­vinnu við breskt fyr­ir­tæki, til að reyna að sækja til baka mein­tan ólög­legan ágóða af við­skiptum Samherja í Namibíu.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Frá Windhoek, höf­uð­borg Namibíu. Mynd: Pexels

Félaga- og stjórn­mála­sam­tök í Namibíu sem heita Affir­mative Repositioning (AR) hafa boðað að þau ætli sér, í sam­starfi við breskt fyr­ir­tæki sem beitir sér gegn spill­ingu, að reyna að sækja til baka fé sem hafi verið haft af namibísku þjóð­inni vegna spill­ing­ar­mála á borð við Sam­herj­a­máls­ins.

Job Shipuolo Amupanda, leið­togi AR, sem einnig er fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og núver­andi borg­ar­full­trúi í höf­uð­borg­inni Windhoek, sagði á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag að ýmsir mögu­leikar yrðu skoð­aðir, en á meðal þess sem standi til sé að ráð­ast lög­sókn á hendur Samherja, sem breska fyr­ir­tækið Restitution myndi styðja við.

„Við þurfum að fara á eftir eigum þessa fyr­ir­tækis, hvar sem þær eru,“ sagði Amupanda og átti þar við Samherja. „Ef eign­irnar eru í London munum við fara í mál í London. Ef eign­irnar eru á Íslandi munum við höfða mál þar. Það verður að end­ur­greiða Namib­íu­mönnum pen­ing­ana,“ er haft eftir Amupanda í frétt namibíska blaðs­ins Namibian frá því í gær, en einnig hefur verið fjallað um málið í sjáv­ar­út­vegs­miðl­inum Undercurrent News.

Á vef Namibian er haft eftir Amupanda að sú ákvörðun að reyna að höfða mál gegn Samherja hvar sem fyr­ir­tækið geymi eignir sínar stafi af trega namibískra yfir­valda við að sækja mál á hendur alþjóð­legum fyr­ir­tækjum sem hagn­ast hafi vegna Fishrot-skandals­ins, eins og málið er oft­ast kallað í Namibíu.

[adspot]

Amupanda lýsti því á blaða­manna­fund­inum að hann myndi leita lið­sinnis namibískra yfir­valda við fyr­ir­hug­aðan mála­rekstur. Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namibíu, Martha Imalwa, kaus að tjá sig ekki um málið þegar Namibian leit­aði eftir því og sagð­ist ekki vita um hvað það snérist.

Jóhannes Stef­áns­son fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Samherja í Namibíu og upp­ljóstr­ari fagn­aði hins vegar fram­taki Amupanda og félaga í AR og kall­aði þetta „stórt og mik­il­vægt skref“ í átt að rétt­læti fyrir namibísku þjóð­ina.

Breska fyr­ir­tækið Restitution, sem kall­ast gæti End­ur­greiðsla upp á íslenska tungu, heldur úti vef­síðu þar sem fram kemur að það helgi sig því að hjálpa stjórn­völdum að berj­ast gegn spill­ingu með því að leggja til fé og stuðn­ing er verið er að reyna að end­ur­heimta ein­hverjar eigur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár