Óvissutímar framundan á Alþingi

Miklir óvissu­tímar eru framundan á Alþingi, sem kemur saman á ný á mánu­dag. Lítið er hægt að negla niður um fram­kvæmd þing­rof­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar. Fjöldi mála bíða afgreiðslu í skugga Wintris máls­ins.

Bjarni eða Sigmundur munu sitja fyrir svörum í óundirbúnum fyrirspurnum á mánudag klukkan 15.
Bjarni eða Sig­mundur munu sitja fyrir svörum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á mánu­dag klukkan 15. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra eða Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, eða þeir báðir, verða til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi á mánu­dag. Þing kemur saman á ný eftir páska­frí klukkan 15 þann dag, fjórða apríl. Yfir­leitt hafa Bjarni og Sig­mundur skipt á milli sín óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tímum, sem eru á mánu­dögum og fimmtu­dögum.

Bjarni hefur verið í fríi á Flórída yfir pásk­ana og mætir á ný til vinnu á mánu­dag. Sig­mundur hefur einnig verið í fríi en er mættur til vinnu og stýrði rík­is­stjórn­ar­fundi í gær.

Stjórn­ar­and­staðan ákvað eftir sam­eig­in­legan fund for­yst­unnar í gær og þing­flokks­fundi í kjöl­farið, að leggja fram til­lögu um þing­rof og kosn­ingar. Erfitt er að segja til um hvernig kom­andi þing­tíma­bil verður, þar sem hlut­irnir virð­ast ger­ast afskap­lega hratt og nýjar upp­lýs­ingar koma fram nær dag­lega. Sem dæmi má taka að stjórn­ar­and­staðan til­kynnti áform sín um kvöld­mat­ar­leytið í gær og fimm tímum síðar sagði gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar af sér eftir að fjallað hafði verið um félag hans í Lúx­em­borg í fjöl­miðlum.

Kastljós á sunnudagskvöld

Á kom­andi sunnu­dags­kvöld, kvöldið fyrir þing­fund, mun Kastljós svo birta umfjöllun sína um eignir Íslend­inga í þekktum skatta­skjólum. Umfjöll­unin er unnin í sam­starfi við Reykja­vik Media og ICIJ, alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna. Ljóst er að sú umfjöllun mun varpa enn frekara ljósi á málið og bæta við það enn fleiri vinklum.

Engum blöðum er þó um það að fletta að Wintris málið og allt því tengdu mun taka mik­inn tíma frá þing­inu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kom saman í gær til að ræða þann fjölda mála sem eftir á að leggja fram og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sam­þykkti að aflétta leynd sem hefur ríkt yfir gögnum sem varða ákvarð­anir stjórn­sýsl­unnar. Það mun taka tíma að afgreiða.

Óljóst þingrof

Þing­rof­s­til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar mun líka þurfa sinn tíma, þó skammt sé eftir af þingi til að rjúfa. For­menn­irnir ætla að funda með stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, hitta umboðs­mann Alþingis og fá hans álit á mál­unum og svo þarf að ræða málið á þing­inu. Að lokum þarf Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sjálfur að sam­þykkja þing­rof til að af verði. Engin leið er að vita hvernig málin munu fara, en þeir þing­menn sem Kjarninn hefur rætt við í morgun sam­mæl­ast um að ljóst sé að óvenju­legir tímar eru framundan á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár