Áhyggjur og kvíði „eðlilegar tilfinningar við óeðlilegar aðstæður“

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag fór Agnes Árna­dóttir, fag­stjóri sál­fræði­þjón­ustu heilsu­gæsl­unnar, yfir það hvað fólk gæti gert til að takast á við kvíða. Sótt­varna­læknir sagði kúr­f­una í þess­ari bylgju vera svip­aða þeirri síð­ustu.

„Það er eðli­legt að verða áhyggju­fullur og finna til kvíða við þessar aðstæður sem við búum við í dag. Þetta eru í raun eðli­legar til­finn­ingar við óeðli­legar aðstæður og þetta eru áhyggjur, við höfum áhyggjur af eigin heilsu og við höfum áhyggjur af heilsu okkar nán­ustu,“ sagði Agnes Agn­ars­dóttir, fag­stjóri sál­fræði­þjón­ustu á heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna fyrr í dag.

Hún sagði góðar upp­lýs­ingar um hvernig hægt sé að takast á við slíkar til­finn­ingar vera að finna á heilsu­vera.is og covid.is. Verði áhyggjur eða kvíði hamlandi þá ætti fólk að leita aðstoðar hjá heilsu­gæsl­unni. „Hjá heilsu­gæsl­unni starfar til dæmis öfl­ugur hópur sál­fræð­inga, um landið og þessi hópur sál­fræð­inga veitir bæði ráð­gjöf og með­ferð við kvíða, þung­lyndi og áföllum,“ sagði Agnes.

Þá sagði Agnes sam­skipti við aðra vera mik­il­væg fyrir góða heilsu og að tæknin gerði okkur kleift að eiga sam­skipti við aðra. Þá minnt­ist hún sér­stak­lega á leið­bein­ingar á covid.is þar sem farið er yfir hvernig best sé að bera sig að þegar talað er við börn um COVID-19.

Kúrfan svipuð og síðast

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, sagði kúr­f­una í þess­ari bylgja vera svip­aða kúrf­unni í síð­ustu bylgju. Því sé mik­il­vægt að fólk fylgi reglum og fyr­ir­mælum til þess að hægt sé að koma í veg fyrir frek­ari útbreiðslu. Hann sagði það ekki tíma­bært að herða á aðgerðum en að yfir­völd væru í start­hol­unum með það að herða aðgerðir, eða slaka á ef svo ber undir.

Af þeim níu sem greindust í gær var einn ein­stak­lingur í sótt­kví sem Þórólfur sagði sýna hversu útbreidd veiran kunni að vera. Sú breyt­ing hefur orðið á að eng­inn liggur nú á legu­deild Land­spít­ala og sagði Þórólfur það vera ánægju­legt.

Mikið álag á heilsugæslu

Alma D. Möller, land­læknir, sagði mikið álag vera á heilsu­gæsl­una vegna sím­tala, meðal ann­ars vegna þess að ein­kenna­laust fólk er að fal­ast eftir sýna­tökum. Hún sagði sýna­tökur ein­ungis vera í boði fyrir fólk með ein­kenni.

„Sýnataka hjá þeim sem eru ein­kenna­lausir, það er jú skimun og ein­ungis í boði hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Sem stendur er það ein­ungis í tengslum við þekkt smit og fólk fær um það boð,“ sagði Alma.

Þurfum ekki að vera alltaf sammála

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn, gerði umræðu síð­ustu daga að umfjöll­un­ar­efni sínu. Hann sagði að það þyrftu ekki allir að vera sam­mála alltaf um hvað ætti að gera. Við þyrftum að geta rætt hlut­ina, hugsað gagn­rýnið og sett fram okkar sjón­ar­mið án þess að vera úthrópuð fyrir það. Við séum öll að stefna í sömu átt..

“Líkt og áður er þetta algjör­lega bara í okkar höndum. Eina leiðin til að takast á við þetta er að gera þetta saman. Við þurfum ekk­ert öll að vera alveg 100 pró­sent sam­mála en lyk­il­at­riðin held ég að við séum öll sam­mála um og þannig vinnum við þetta áfram og tök­umst á við þetta núna,“ sagði Víðir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár