Þolandi ósátt við traust ráðherra á aðstoðarmanni

Ólöf Rún Ásgeirs­dóttir, þol­andi í kyn­ferð­is­brota­máli, seg­ist hafa upp­lifað það sem sjálf­stætt brot þegar lög­maður hennar og nú aðstoð­ar­maður ráð­herra hafi ekki greitt henni út miska­bætur fyrr en hún leit­aði sér aðstoðar ann­ars lög­manns við inn­heimt­una.

Sif Konráðsdóttir aðstoðarmaður og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra.
Sif Kon­ráðs­dóttir aðstoð­ar­maður og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra. Mynd: Samsett.

Ólöf Rún Ásgeirs­dóttir, þol­andi í kyn­ferð­is­brota­máli, seg­ist hafa upp­lifað það sem sjálf­stætt brot þegar Sif Kon­ráðs­dóttir þá rétt­ar­gæslu­maður hennar, nú aðstoð­ar­maður umhverf­is­ráð­herra, hafi ekki greitt henni miska­bætur sem henni voru dæmdar vegna máls­ins. Ólöf þurfti að leita sér aðstoðar ann­ars lög­manns til að inn­heimta bæt­urnar sem á end­anum feng­ust greiddar.

Erfitt ferli

Í sam­tali við Kjarnann segir Ólöf Rún sögu sína. Hún ólst upp á Stykk­is­hólmi þar sem hún var beitt kyn­ferð­is­of­beldi af kenn­ara sínum. „Hann var líka að þjálfa mig í körfu­bolta. Hann byrj­aði að hafa sam­band við mig í gengum sms skila­boð, ætl­aði að senda á vin sinn en sendi „óvart“ á mig. Upp úr því fórum við að vera í miklu sam­bandi sem þró­að­ist út í kyn­ferð­is­legt sam­band,“ segir Ólöf.

Síðar stóð til að kenn­ar­inn yrði gerður að umsjón­ar­kenn­ara Ólafar. Átti meðal ann­ars að fara með bekk­inn í utan­lands­ferð en þá kom í ljós að þær voru fleiri stúlk­urnar sem hann átti í sam­skiptum við með þeim hætti sem hann síðar var dæmdur fyrir.

„Við fórum og töl­uðum við skóla­stjór­ann og síðan við for­eldra okkar. Þau lögðu fram kæru fyrir okkar hönd.“ Í kjöl­farið tók við ferli sem Ólöf segir hafa verið afar erfitt. „Stykk­is­hólmur er lít­ill bær, við fengum stundum ekki afgreiðslu, það var bloggað um okkur, þetta var á þeim tíma sem allir voru að blogga, alls konar nafn­laus komment og sms. Þetta var ógeð,“ segir Ólöf Rún. Þetta hafi allt saman skilað sér í félags­legri ein­angrun, kvíða og á end­anum til­raun til sjálfs­morðs. Hún á enn í dag erfitt með félags­legar teng­ingar og segir hún þessa upp­lifun lita sam­skipti hennar við hitt kynið. Hún seg­ist enn­fremur þurfi mikla stað­fest­ingar á félags­legu sam­þykki þeirra sem hún er í kringum.

Bæturnar staðfesting á tjóni

Maðurinn var í upp­hafi árs 2005 dæmdur fyrir brot sín og gert að greiða Ólöfu og annarri stúlku miska­bætur. Dómurinn var að mestu stað­festur í Hæsta­rétti og bætur til þeirra hækk­aðar.

„Ég man að ég var svo reið á sínum tíma og mig lang­aði ekki í neinar bætur. Þær myndu ekki breyta neinu. En svo var mér sagt að þær væru það eina sem ég gæti beðið um til að sýna fram á að ég hefði orðið fyrir ein­hverjum skaða. Þannig að við sóttum um bætur og fengum þær dæmdar.“

Ólöf og hin stúlkan voru börn að aldri þegar þær urðu fyrir brot­unum og eins þegar dómur féll og þeim voru dæmdar bæt­urnar. Það voru því for­eldrar þeirra sem sóttu málið fyrir þeirra hönd.

En bæt­urnar skil­uðu sér ekki frá rétt­ar­gæslu­mann­inum. For­eldrar Ólafar leit­uðu á end­anum til lög­manns á annarri lög­manns­stofu til að freista þess að fá þær greiddar, sem síðar varð eftir dúk og disk.

Var kærð til Lögmannafélagsins

Og Ólöf var ekki sú eina sem lenti í því. Sif var árið 2008 kærð til Lög­manna­fé­lags­ins fyrir annað mál, þar sem hún greiddi öðru barni sem hún sinnti rétt­ar­gæslu fyrir ekki bætur sem því var dæmt í Hæsta­rétti. Vísir fjall­aði ítar­lega um málið árið 2008 þar sem fram kemur að þegar reynt var að sækja bæt­urnar hafi Sif verið flutt búferlum til Belgíu þar sem hún hafði tekið við starfi sér­fræð­ings á rík­is­að­stoð­ar­sviði Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA í Brussel. Björn Bergsson, þá lög­fræð­ingur á Mandat lög­manns­stofu, sagði róðarí hafa verið á rekstri Sifjar en hann sá um frá­gang á bók­haldi og rekstri hennar eftir að hún flutti út. Hann fékk Sif á end­anum til að senda pen­ing sem hann greiddi út til aðil­anna sem um ræddi, þar á meðal Ólafar, og kæran hjá Lög­manna­fé­lag­inu var í kjöl­farið dregin til baka.

„Í minn­ing­unni minni var þetta bara þannig að það vildi eng­inn lög­mann­anna tengj­ast þessu, vildu bara klára þetta og ég veit ekk­ert hvaðan þessir pen­ingar eru raun­veru­lega komnir,“ segir Ólöf.

Sjálfstætt brot að greiða ekki út bæturnar

Ólöf segir að hún hafi upp­lifað það sem annað sjálf­stætt brot þegar hún síðan fékk ekki þessar tak­mörk­uðu bætur sem henni voru dæmdar greiddar.

„Mér fannst hún með þessu gera svo lítið úr brot­inu, þetta litla sem við fengum að geta ekki borgað okkur þetta strax. Ef ég myndi stela úr fyr­ir­tæk­inu sem ég er að vinna hjá, en seint og síðar meir borga það til baka, þá fengi ég ekk­ert að halda vinn­unni.“

Í við­tali Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is­ráð­herra við Vísi kemur fram að honum sé ekki kunn­ugt um hvaðan þeir fjár­munir komu sem voru greiddir til skjól­stæð­inga Sifjar. Hann sagð­ist hafa þær heim­ildir að þetta hafi verið greitt af reikn­ingum hérna heima sem hann standi í trú um að séu þessir svoköll­uðu fjár­vörslu­reikn­ingar, en ekki fengið það stað­fest. Í umfjöllun Vísis frá árinu 2008, sem fjall­aði eins og fyrr segir um annað mál en Ólafar, segir að hvorki Björn né aðrir sem rætt var við vegna máls­ins hafi getað stað­fest að pen­ing­arnir sem Sif milli­færði frá Belgíu hafi verið frá henni per­sónu­lega eða bæt­urnar sé komu inn á fjár­vörslu­reikn­ing lög­mann­stofu hennar. Ingimar Ingi­mars­son, fram­kvæmda­stjóri Lög­manna­fé­lags­ins, stað­festi á sínum tíma að Sif hefði skilað inn lög­manns­rétt­indum sínum áður en hún flutti til Belgíu.

Óvíst hvaðan peningarnir koma

Ólöf segir það ekki rétt­læta verkn­að­inn þó hún hafi á end­anum fengið pen­ing­ana greidda. Hún segir þetta skipta hana máli. „Ég veit ekk­ert hvaða pen­ingar þetta voru. Ég vildi bara fá mína pen­inga. Þetta var tákn­rænt fyrir mig.“

Ólöfu seg­ist hafa brugðið þegar hún sá að Sif væri orðin aðstoð­ar­maður ráð­herra. „Það bara snapp­aði eitt­hvað inn í mér,“ segir Ólöf og seg­ist upp­lifa þá stöðu sem van­virð­ingu fyrir því sem hún hafi orðið fyrir.

Og hún setur spurn­inga­merki við að Sif njóti fulls trausts. Í frétt Vísis frá 10. febr­úar síð­ast­liðnum seg­ist umhverf­is­ráð­herra hafa vitað af mál­inu áður en Sif var ráðin til starfa. „Full­viss­aði hún mig um það að þarna væri væri mál sem var gengið frá á sínum tíma,“ sagði Guð­mundur við Vísi. Hann sagði það leið­in­legt ef þetta mögu­lega ýfði upp ein­hverjar til­finn­ingar hjá brota­þol­anum en að Sif njóti trausts í starfi.

„Mér finnst þetta bara hrika­legt. Hún er að vinna fyrir mig. Hún er að vinna fyrir rík­is­stjórn­ina mína. Þetta væri annað ef hún væri bara að vinna ein­hvers staðar sem lög­fræð­ingur, ekki lög­maður eða í opin­beru starfi. Fyrir mér gengur það bara ekki upp að hún sé að sinna ein­hverjum ábyrgð­ar­störfum fyrir fólk. Það er ekki oft sem ég stend upp fyrir sjálfri mér en nú vil ég gera það,“ segir Ólöf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár