Mynd: EPA

Ísland og Ísrael örva bólusetta

Á Íslandi og í Ísrael er bólu­setn­ing­ar­hlut­fall með því hæsta sem fyr­ir­finnst á jörðu. Bæði löndin sáu smit nær þurrkast út en rísa svo í hæstu hæðir á ný. Og nú hafa þau, sama dag­inn, ákveðið að gefa þegar bólu­settum borg­urum örv­un­ar­skammt.

Yfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að fara að leið­bein­ingum sér­fræð­inga­ráðs síns og bjóða borg­urum yfir sex­tugu þriðja skammt bólu­efnis. „Hringið í for­eldra ykkar og afa og ömmur núna og gangið úr skugga um að þau fái þriðja skammt­inn,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann Naftali Bennett í sjón­varps­ávarpi í gær. Örv­un­ar­her­ferðin myndi byrja þegar um helg­ina.

Í gær var einnig tekin svipuð ákvörðun af íslenskum yfir­völdum. Þeir sem fengið hafa bólu­efni Janssen býðst örv­un­ar­skammtur (e. booster) af bólu­efni Moderna eða Pfizer. Þeir fyrstu í röð­inni eru kenn­arar og aðrir starfs­menn skóla og hafa þeir verið boð­aðir til end­ur­bólu­setn­ingar strax eftir versl­un­ar­manna­helgi. „Það er komin ákvörðun um að gefa örv­un­ar­skammt þeim sem að fengu Janssen bólu­setn­ingu og hafa ekki sögu um COVID,“ sagði Kamilla Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í gær. „Þessar bólu­setn­ingar fara lík­lega af stað víð­ast hvar í næstu viku. Við munum nota Moderna eða Pfizer, eftir því sem til­efni er til. En það er til nóg af bólu­efni til að klára þennan hóp á frekar stuttum tíma.“

Í fréttum ísra­el­skra fjöl­miðla í gær kom fram að ríkið væri það fyrsta í heim­inum þar sem ákveðið hefði verið að gefa örv­un­ar­skammt bólu­efna. Það kann að vera rétt en lík­lega hefur þá munað klukku­stundum, jafn­vel aðeins mín­útum, á milli þess sem ákvörðun þeirra og íslenskra yfir­valda var til­kynnt.

Munurinn á áformunum felst þó í því að í Ísrael er verið að tala um að gefa þriðja skammt­inn af bólu­efni Pfizer-BioNtech, þess efnis sem nær ein­göngu hefur verið notað þar í landi, á meðan hér hefur verið ákveðið að bjóða þeim sem fengu bólu­efni Janssen örv­un­ar­skammt af öðru efni.

En af hverju örv­un­ar­skammtur?

Í Ísrael, líkt og á Íslandi, er hlut­fall bólu­settra gegn COVID-19 sjúk­dómnum með því hæsta sem ger­ist í heim­inum. Í báðum lönd­unum dró veru­lega úr fjölgun smita sam­hliða fram­gangi bólu­setn­inga en í kjöl­far aflétt­inga tak­mark­ana, bæði á landa­mærum og inn­an­lands, sem og útbreiðslu hins bráðsmit­andi delta-afbrigðis, varð smit­spreng­ing. Fjórða bylgjan hófst og það af krafti. Afger­andi svar fékkst þar með við einni stærstu spurn­ingu vís­ind­anna þegar kemur að bólu­setn­ingum gegn COVID-19: Bólu­settir geta sann­ar­lega smit­ast og veikst og þeir geta smitað aðra. Svarsins við hinni stóru spurn­ing­unni, hversu alvar­leg veik­indi bólu­settra verða almennt, er enn beðið.

Fjórða bylgjan er hafin í bæði Ísrael og á Íslandi. Þær fyrri hafa verið mun stærri í smitum talið í Ísrael og munurinn í dag gæti skýrst af mismikilli skimun fyrir veirunni í samfélögunum tveimur. Á myndinni er miðað við fjölda staðfestra smita á hverja milljón íbúa.
Fjórða bylgjan er hafin í bæði Ísrael og á Íslandi. Þær fyrri hafa verið mun stærri í smitum talið í Ísrael og mun­ur­inn í dag gæti skýrst af mis­mik­illi skimun fyrir veirunni í sam­fé­lög­unum tveimur. Á mynd­inni er miðað við fjölda stað­festra smita á hverja milljón íbúa.

Það er nokkuð síðan að vanga­veltur um örv­un­ar­skammta bólu­efna komu fram. Stór rann­sókn við Cambrigde-háskóla hófst í lok júní á gagn­semi slíkra skammta. Nið­ur­staðna er enn beðið. Lyfj­aris­inn Pfizer hefur um hríð sagt örv­un­ar­skammta lík­lega. Á mið­viku­dag, sama dag og fyr­ir­tækið birti óritrýnd rann­sókn­ar­gögn um að bólu­efni þess veitti enn „sterka vernd“ sex mán­uðum eftir bólu­setn­ingu og allt að því full­komna vörn gegn alvar­legum veik­indum, sögðu for­svars­menn þess að þörf yrði bráð­lega á end­ur­bólu­setn­ingu. Ætla þeir að sækja um leyfi fyrir henni til banda­rísku lyfja­stofn­un­ar­innar (FDA) um miðjan ágúst í ljósi þess að þeir telja þriðja skammt­inn þurfa til innan við ári eftir bólu­setn­ingu. „Það er mjög góð vörn í upp­hafi en svo minnkar hún,“ sagði Albert Bourla, for­stjóri Pfizer, er árs­fjórð­ungs­upp­gjör fyr­ir­tæk­is­ins var kynnt um miðja vik­una. Sagði hann delta-afbrigðið breyta jöfn­unni enn frekar. Hægt væri að tala um minnk­andi vörn gegn því sex mán­uðum eftir bólu­setn­ingu. Þar var hann fyrst og fremst að tala um væg ein­kenni en „það er aug­ljós­lega minnkuð vernd gegn inn­lögnum og alvar­legum veik­indum“.

Svona smitandi er delta-afbrigðið

Delta-afbrigðið er mun meira smit­andi en önnur afbrigði veirunnar hingað til. Ekki aðeins sam­an­borið við upp­runa­legu veiruna sem greind­ist í Kína fyrir einu og hálfu ári, heldur allt að 60 pró­sent meira smit­andi en það sem átti þann vafa­sama heiður á undan: Alpha-afbrigðið – sem aftur var 60 pró­sent meira smit­andi en upp­runa­lega veiran.

Til útskýr­ingar á smit­hæfni delta birti The Guardian þessa útreikn­inga nýverið: Tíu mann­eskjur smit­aðar af upp­runa­lega afbrigði veirunnar myndu smita 25 aðra (í sam­fé­lagi án tak­mark­ana og bólu­setn­inga). En tíu mann­eskjur smit­aðar af delta-afbrigð­inu myndu smita 60-70 aðra við sömu aðstæður.

Drengur fær bólusetningu í Tel Aviv. Ísraelsk stjórnvöld byrjuðu að bólusetja börn á aldrinum 12-15 ára fyrir nokkrum vikum.
Drengur fær bólu­setn­ingu í Tel Aviv. Ísraelsk stjórn­völd byrj­uðu að bólu­setja börn á aldr­inum 12-15 ára fyrir nokkrum vikum.

En aftur að Ísrael.

Fjöldi alvar­legra veikra af völdum COVID-19 sem lagðir hafa verið inn á sjúkra­hús var 20 á mánu­dag, 33 á þriðju­dag og 41 á mið­viku­dag. Ekki er sund­ur­liðað hvort sjúk­ling­arnir eru bólu­settir eða ekki. Fjöl­miðlar greina svo frá því að heil­brigð­is­yf­ir­völd telji að haldi fram sem horfi gæti fjöld­inn verið kom­inn upp í eitt þús­und í lok ágúst.

Sér­fræð­inga­ráð heil­brigð­is­yf­ir­valda hefur haft mögu­leika á örv­un­ar­skammti til athug­unar í þess­ari viku. Meðal þeirra upp­lýs­inga sem ráðið hafði til að meta þörf­ina á slíku á fundi sínum á mið­viku­dag voru að sögn fjöl­miðla gögn sem benda til að vörn bólu­efn­is­ins gegn alvar­legum veik­indum fólks yfir sex­tugu sem bólu­sett var í jan­úar hafði minnkað úr 97 pró­sent í apríl niður í 81 pró­sent í júlí.

Ráðið sam­þykkti að bjóða fólki í þessum ald­urs­hópi örv­un­ar­skammt en heim­ildir dag­blaðs­ins Haaretz herma að ekki hafi verið ein­hugur innan þess um ákvörð­un­ina. Í fyrsta lagi voru skiptar skoð­anir um við hvaða aldur ætti að miða; 60, 65 eða 70 ár. Í öðru lagi lýstu ein­hverjir sér­fræð­ing­anna því yfir að enn lægju ekki nægi­leg gögn fyrir til að taka ákvörðun um hvort þriðja skammts­ins væri þörf. Aðrir töldu hins vegar að ef beðið yrði með ákvörð­un­ina gæti það haft skelfi­legar afleið­ingar.

Óvíst um ávinning en koma ekki að sök

„Það er ekki víst að þeir virki,“ segir Michael Edel­stein, ísra­elskur far­alds­fræð­ingur og pró­fessor við Bar Ilan-háskóla, um þriðju skammt­ana, „en þeir munu ekki koma að sök.“ Jonathan Gershoni, landi hans og sér­fræð­ingur í ónæm­is­fræðum, seg­ist ekki sann­færður um brýna nauð­syn örv­un­ar­skammta en ef bólu­efnið sé til ætti end­ur­bólu­setn­ing að gagn­ast fólki yfir sex­tugu og vörn þeirra gegn delta-afbrigð­inu.

„Við munum þurfa að taka margar ákvarð­anir í fram­tíð­inni, meðal ann­ars þá um end­ur­bætt bólu­efni gegn afbrigð­unum, svo við verðum að byggja allar ákvarð­anir okkar á gegn­heilum gögnum,“ hefur fjöl­mið­ill­inn Times of India eftir Nadav Davidovitch far­alds­fræð­ingi og for­manni lækna­fé­lags Ísraels. Hann segir enn ekki ljóst hver raun­veru­legur ávinn­ingur af örv­un­ar­skammti sé og ótt­ast að sú her­ferð dragi áhersl­una frá því for­gangs­máli að bólu­setja þá rúmu milljón Ísraela sem fengið hafa boð í bólu­setn­ingu en ekki þegið það.

Samanburður á þróun bólusetninga í Ísrael og á Íslandi.
Sam­an­burður á þróun bólu­setn­inga í Ísrael og á Íslandi.

Og yfir til Íslands.

Tíu manns liggja nú á Land­spít­al­anum með COVID-19. Tveir þeirra eru á gjör­gæslu­deild og báðir eru óbólu­settir. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur sagt að flestir þeir sem eru bólu­settir og hafa smit­ast af veirunni síð­ustu vikur hafi fengið bólu­efni Janssen. Hann hefur sam­tímis tekið fram að Janssen, sem er gefið í einni sprautu, hafi aðal­lega verið gefið ungu fólki, þeim sama hópi sem orðið hefur hvað útsett­astur fyrir smiti, t.d. á skemmti­stöðum þar sem hóp­sýk­ingar hafa komið upp.

Rúmlega 53 þús­und íbúar lands­ins eru bólu­settir með Janssen. Rúmlega 37 pró­sent allra full­bólu­settra á aldr­inum 16-29 ára hafa fengið það bólu­efni. Um 17 pró­sent fólks á þessum aldri er enn óbólu­settur.

Í gær voru 966 manns í ein­angrun með COVID-19 á Íslandi. Tæplega 42 pró­sent þeirra eru á aldr­inum 18-29 ára.

Bóluestning óléttra kvenna með bóluefni Janssen hófst í Kólumbíu í síðustu viku. Bólusetning óléttra kvenna á Íslandi hófst í gær.
Bólu­estn­ing óléttra kvenna með bólu­efni Janssen hófst í Kólumbíu í síð­ustu viku. Bólu­setn­ing óléttra kvenna á Íslandi hófst í gær.

Engar rannsóknir enn birtar

„Það eru engar vís­inda­rann­sóknir sem hafa verið birtar um örvun Janssen bólu­setn­ingar,“ segir Kamilla Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis, spurð hvaða vís­indi búi að baki þeirri ákvörðun um að end­ur­bólu­setja fólk. Í skrif­legu svari til Kjarnans á mið­viku­dag sagð­ist hún færa rök fyrir ákvörð­un­inni í minn­is­blaði til ráð­herra sem yrði „vænt­an­lega birt þegar og ef sátt næst um þessa fram­kvæmd“.

Í ljósi þess að Kamilla upp­lýsti á upp­lýs­inga­fundi í gær að ákvörð­unin lægi fyrir óskaði Kjarninn eftir því með tölvu­pósti, bæði til hennar og heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, að fá minn­is­blaðið afhent þar sem það hafði ekki verið birt á vef ráðu­neyt­is­ins. Engin svör höfðu borist við þess­ari beiðni Kjarnans kl. 10 í morgun, föstu­dag.

Kamilla sagði enn­fremur í svari sínu á mið­viku­dag að ekki væri búið að mæla með öðrum örv­un­ar­bólu­setn­ingum, „en sama verður um þær, rökin fyrir þriðja skammti fyrir ákveðna hópa eru að styrkj­ast með vís­inda­rann­sóknum sem verður vitnað í þegar (og ef) við birtum slíkar leið­bein­ingar“. Sagði hún hægt að finna greinar um þetta með Google leit. „Það eru komin fram gögn sem er ekki búið að birta fyrir örvun aldr­aðra í sumum Evr­ópu­löndum og fleiri rann­sóknir sem mér skilst að verði birtar, m.a. frá Pfizer, í ágúst.“

Bólusett var af kappi í Laugardalshöll á vormánuðum.
Bólusett var af kappi í Laug­ar­dals­höll á vor­mán­uðum.

Stóri samningurinn

Ísraelsk stjórn­völd sömdu við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer um bólu­efni með ein­stökum samn­ingi í byrjun árs. Með samn­ingnum voru tryggðir millj­ónir skammta og hröð bólu­setn­ing þjóð­ar­innar, ein sú hrað­asta í heimi, og að rann­sóknir yrðu gerðar á virkni bólu­efn­is­ins.

Samn­ing­ur­inn vakti gríð­ar­lega athygli, ekki síst hér á landi, þar sem þreif­ingar höfðu átt sér stað milli yfir­valda á Íslandi og lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins um slíkt hið sama. Það kom þó ekki að sök og þegar bólu­efni fóru að skila sér hingað, þótt tafir hafi stundum orðið á afhend­ingu frá ein­staka fram­leið­endum, tóku Íslend­ingar fljótt fram úr flestum þjóðum hvað bólu­setn­ing­ar­hlut­fall varðar. Í byrjun júní höfðum við tekið fram úr Ísrael og í dag eru um 74 pró­sent íbúa lands­ins óháð aldri bólu­sett en 62 pró­sent Ísraela.

Þörf eða ekki?

Í upp­hafi vik­unnar lýsti for­sæt­is­ráð­herr­ann Naftali Bennett því yfir að Ísrael væri „mjög nálægt“ því að taka ákvörðun um örv­un­ar­skammt af bólu­efni sem og að tryggja sér þá auka­skammta sem til þarf. Tveimur vikum fyrr sögðu bæði Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin og Smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna (CDC) að það væri ekki þörf á slíkum skömmtum. Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu Lyfja- og Sótt­varna­stofn­unar Evrópu sem birt var 14. júlí sagði að of snemmt væri að stað­festa hvort og þá hvenær þörf yrði á örv­un­ar­skammti. Enn væru ekki komin fram nægj­an­lega góð gögn um hversu lengi vörn bólu­efna vari að teknu til­liti til útbreiðslu afbrigða á borð við delta.

Sér­fræð­ingar WHO sögðu á blaða­manna­fundi síð­ast í fyrra­dag að þeir teldu ekki þörf á örv­un­ar­skömmtum. Ekki væru komin fram nógu ítar­leg gögn hvað það varð­aði. „Þetta er skýrt hjá okkur, það eru ekki nægar upp­lýs­ingar til mæla með [örv­un­ar­skammti] á þessum tíma­punkti,“ sagði Kate O’Brien, sem fer fyrir bólu­setn­ingum innan WHO, við blaða­menn á mið­viku­dag. Hún sagði umræðu­efnið „heitt“ og að margar rann­sóknir væru í gangi sem myndu nýt­ast við ákvarð­ana­tök­una.

Nú eru komin fram gögn frá heil­brigð­is­ráðu­neyti Ísraels sem virð­ast, að því er fram kemur í ísra­elskum fjöl­miðlum, benda til dvín­andi verndar bólu­efnis Pfizer gegn smiti sem og gegn alvar­legum veik­indum. Og bæði Ísland og Ísrael ætla að bjóða örv­un­ar­skammta.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur hvatt Pfizer, Moderna og önnur fyr­ir­tæki sem fram­leiða bólu­efni gegn COVID-19 til að ein­beita sér að því að bæta aðgengi að bólu­efnum um allan heim, áður en farið verði að dreifa þriðja og jafn­vel fjórða skammti til þeirra sem þegar hafa verið bólu­settir.

Græðgi vestrænna ríkja

Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO sagði nýverið að græðgi væri drif­kraft­ur­inn í mis­munun í bólu­setn­ingu milli heims­hluta. „Við erum að taka með­vit­aðar ákvarð­anir núna um að vernda ekki þá sem þurfa mest á því að halda,“ sagði hann og að þeir sem ekki hefðu enn fengið einn ein­asta skammt af bólu­efni ættu að ganga fyrir, áður en kæmi að því að gefa örv­un­ar­skammta á Vest­ur­löndum. Bólu­efna­fram­leið­endur ættu að gera allt sem þeir gætu til að styðja við COVAX-sam­starfið og almennt við dreif­ingu bólu­efna til fátæk­ari ríkja heims.

Soumya Swaminathan, helsti vís­inda­sér­fræð­ingur WHO, sagði svo nýlega að stofn­unin myndi gefa út til­mæli varð­andi örv­un­ar­skammta byggð á vís­indum – ekki yfir­lýs­ingum ein­stakra lyfja­fram­leið­enda.

Michael Ryan, sem fer fyrir bráða­að­gerðum WHO, sagði að ef ríku löndin ákveða að gefa örv­un­ar­skammta í stað þess að gefa bólu­efni til fátæk­ari ríkja myndum við síðar „líta til baka í reiði og ég held að við myndum líta til baka með skömm“.

Bólusetning gegn COVID-19 er mjög skammt á veg komin í Afríku. Hún er misjöfn milli landa en í sumum þeirra er innan við 1 prósent þjóða bólusett.
Bólu­setn­ing gegn COVID-19 er mjög skammt á veg komin í Afríku. Hún er mis­jöfn milli landa en í sumum þeirra er innan við 1 pró­sent þjóða bólu­sett.

Einn af hverjum 76

Í rík­ustu löndum jarðar, sem Ísland til­heyrir, hefur að með­al­tali annar hver maður verið bólu­settur. Í fátæk­ari löndum hefur aðeins einn af hverjum 76 fengið bólu­setn­ingu eða um 1,32 pró­sent íbúa þeirra.

Innan Evrópu er mis­skipt­ingin einnig mikil. Smit­sjúk­dóma­stofnun Evrópu benti nýverið á að í tíu aðild­ar­ríkjum ESB ætti enn eftir að bólu­setja yfir 30 pró­sent af íbúum sem væru átta­tíu ára og eldri.

„Varðandi spurn­ing­una um sið­ferði bólu­setn­ing­anna þá væri hægt að ræða það lengi og hafa á því margar skoð­anir,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á dög­unum við Kjarnann. „Sú stefna hefur hins vegar verið tekin hér að reyna að bólu­setja sem flesta og gera það á eins áhrifa­ríkan hátt og mögu­legt er,“ hélt hann áfram. „Þar undir fellur sú ákvörðun að gefa þeim sem fengu Janssen örv­un­ar­skammt.“

Því hefur ítrekað verið haldið fram af íslenskum sér­fræð­ingum, heil­brigð­is­yf­ir­völdum og stjórn­völdum að heims­far­aldr­inum ljúki ekki fyrr en heims­byggðin öll hafi verið bólu­sett. Í óbólu­settum sam­fé­lögum sé hætta á stökk­breyt­ingum veirunnar mest. Því sé það allra hagur að bólu­setja alla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár