„Ekkert furðulegt“ við að bólusettir smitist

Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur segir „ekk­ert furðu­legt“ við það að full­bólu­sett fólk smit­ist af veirunni og smiti jafn­vel aðra. „Það var fyr­ir­séð, sér­stak­lega í ljósi þess hvernig hegðun fólks úti í sam­fé­lag­inu hefur verið upp á síðkastið.“

Eins og þruma úr heið­skíru lofti? Margir eru stein­hissa á því að síð­ustu daga hafi full­bólu­settir ein­stak­lingar verið að grein­ast með kór­ónu­veiruna, bæði inn­an­lands og á landa­mær­unum. Að þetta sama fólk geti svo – og hafi – smitað aðra. „Greini­lega er maður ekki alveg hólp­inn með bólu­setn­ing­unni,“ sagði ungur Íslend­ingur í sam­tali við Vísi nýverið en hann sýkt­ist af COVID-19 í fríi erlendis og smit­aði eftir heim­kom­una móður sína og systur. Hann var bólu­settur. Fór áhyggju­laus í frí en engu að síður var­lega.

Fleiri hafa rekið upp stór augu. Furðað sig á fjölgun smita inn­an­lands síð­ustu daga.

Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur er ekki einn þeirra. Hann segir „ekk­ert furðu­legt“ við það að full­bólu­sett fólk smit­ist af veirunni og smiti jafn­vel aðra. „Það var fyr­ir­séð, sér­stak­lega í ljósi þess hvernig hegðun fólks úti í sam­fé­lag­inu hefur verið upp á síðkastið,“ segir hann við Kjarnann. Engar tak­mark­anir eru lengur inn­an­lands og margir virð­ast hafa tekið því þannig að það þýddi, þrátt fyrir varn­að­ar­orð yfir­valda, að öll hætta væri liðin hjá. Fólk stand­andi í hnapp við kæl­inn í kjör­búð­inni er ein birt­ing­ar­myndin. Fólk í kös á börum bæj­ar­ins er önnur. Tómir spritt­brúsar í versl­unum sú þriðja. Og svo mætti áfram telja.

„Bólu­setn­ing kemur ekki í veg fyrir smit,“ ítrekar Arnar, enda hafi því aldrei verið haldið fram, „heldur minnkar hún lík­urnar á því umtals­vert og minnkar auk þess lík­urnar á að smit leiði til alvar­legri sjúk­dóms.“ Ávinn­ingi af bólu­setn­ingu sé hins vegar hægt að tapa með því að sleppa öllum smit­vörnum, vera sífellt í marg­menni og „knúsa alla sem koma með flug­vélum til lands­ins“.

Talandi um knús.

„Það er loks­ins komið að þessum áfanga í þess­ari bar­áttu sem við höfum öll beðið eftir. Og við erum öll svo spennt að geta lifað okkar eðli­lega lífi aftur. Að mega heils­ast og knúsa og faðma.“

Þetta sagði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra á blaða­manna­fundi stjórn­valda í Safna­hús­inu 25. júní er til­kynnt var að öllum tak­mörk­unum inn­an­lands yrði aflétt á mið­nætti þann sama dag.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði okkar góðu stöðu í bólu­setn­ingum og þá stað­reynd að nán­ast engin smit væru að grein­ast gera það að verkum „að við erum hingað komin í dag“.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagð­ist hafa und­ir­ritað tugi reglu­gerða vegna COVID-ráð­staf­ana en nú, rúmum fimmtán mán­uðum eftir þá fyrstu, „hef ég und­ir­ritað reglu­gerð um það að fella brott allar tak­mark­anir á sam­komum vegna far­sóttar.“ Þar með talið fjölda­tak­mark­anir, grímu­skyldu, nálægð­ar­regl­una, skerta opn­un­ar­tíma veit­inga­húsa og svo fram­vegis. „Allar þessar tak­mark­anir eru felldar niður.“

Samtímis var til­kynnt að skimun bólu­settra, barna og fólks með vott­orð um fyrri sýk­ingu yrði hætt á landa­mær­unum frá og með 1. júlí. Dóms­mála­ráð­herra sagð­ist vona að öllum aðgerðum á landa­mær­unum yrði aflétt sem fyrst. „Takk fyrir fórn­irnar sem þið færðuð á þessum skrítnu mán­uðum sem er að ljúka.“

Á fund­inum var ekki einu orði minnst á að mögu­lega þyrfti síðar að taka skref til baka. Herða aftur. Sú er þó orðin raunin því eftir nokkra daga verða bólu­settir krafðir um nei­kvætt COVID-próf við kom­una til lands­ins. Aðgerðir inn­an­lands hafa heldur ekki verið úti­lok­aðar.

Aflétt­ing aðgerða inn­an­lands sem og breyttar aðgerðir á landa­mær­unum, voru í sam­ræmi við til­lögur Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. Hann ítrek­aði þó oft­sinnis var­úð­ar­orð. „Mik­il­vægt er þó að almenn­ingur sé hvattur áfram til að við­hafa ein­stak­lings­bundnar sýk­inga­varnir,“ skrif­aði hann í minn­is­blað sitt sem lá aflétt­ing­unum til grund­vallar. Í sam­tali við frétta­mann RÚV rétt fyrir fund ráð­herr­anna í Safna­hús­inu sagði hann: „Ég held að það sé rétt að muna það að þetta er ekki búið. Þetta eru ekki ein­hver lok bók­ar­innar.“

Bæði Svandís og Katrín sögðu einnig á fund­inum að fólk yrði áfram að fara var­lega og hafa sprittið við hend­ina.

Grímuskylda var afnumin eftir að hafa verið í gildi á Íslandi frá síðasta hausti. Mynd: EPA
Grímu­skylda var afnumin eftir að hafa verið í gildi á Íslandi frá síð­asta hausti. Mynd: EPA

Á und­an­förnum níu sól­ar­hringum hafa 96 smit greinst inn­an­lands. Stökk varð í fjöld­anum milli daga í fyrra­dag er 38 greindust. Svo margir hafa ekki greinst frá því í lok októ­ber. Þrennt getur helst skýrt það breytta lands­lag sem blasir nú við – 25 dögum eftir fund­inn í Safna­hús­inu.

Eitt er aflétt­ing aðgerða inn­an­lands og til­slak­anir á landa­mær­unum. Það hefur almennt í för með sér ann­ars vegar aukna hættu á því að smit ber­ist inn í landið og hins vegar aukna smit­hættu almennt.

Í öðru lagi veita bólu­efni ekki full­komna vörn. Og í þriðja lagi hefur nýtt og meira smit­andi afbrigði breiðst hratt út, afbrigði sem bólu­efnin veita minni vörn gegn en öðrum sem höfðu áður komið fram á sjón­ar­sviðið.

Fólk heyrir bara „aflétting“

Bólu­setn­ing gegn COVID-19 felur í sér minnk­aða áhættu – ekki 100 pró­sent vörn, minnir Arnar á. „Pró­sentur eru hins vegar svo ógagn­sæjar,“ heldur hann áfram. Og almennt á fólk erfitt með að skilja áhættu sem sett er fram með þeim hætti. Sér­stak­lega þegar um áhættu yfir lengra tíma­bil er að ræða. Þannig er því til dæmis farið með lofts­lags­breyt­ingar. „Ef vernd bólu­efna er 90 pró­sent. Hvað þýðir það? En ef hún er 70 pró­sent?“ Um leið og talan er ekki 100 pró­sent þá vitum við að það eru ein­hverjar líkur. En það hefði að mati Arnars mátt miðla því betur, minna á að það sé raun­veru­leg hætta á að smit­ast fyrir hendi – þrátt fyrir bólu­setn­ingu. „Yfirvöld hafa vissu­lega sagt að það sé full ástæða til að fara var­lega en fólk virð­ist ekki með­taka það sem við­vörun. Það heyrir bara „aflétt­ing“. Það heyrir góðu frétt­irnar en ekki varnaglana.“

Þetta er ten­inga­kast. Þeim mun fleiri ten­ingum sem er kastað, þeim mun lík­legra er að stökk­breyt­ingar verði á veirunni henni í hag. Hvert ein­asta smit, hér­lendis sem erlendis, er tæki­færi fyrir veiruna til að stökk­breyt­ast.

Í drögum að svari Arnars, sem birt verður á Vís­inda­vefnum, varpar hann ljósi á hvað er á bak við pró­sentu­töl­urnar.

Mat á því hversu mikla vernd bólu­efni veita gegn smiti eða alvar­legum ein­kennum byggir á rann­sóknum á fjölda ein­stak­linga, í svoköll­uðum tví­blindum rann­sóknum, skrifar hann. Í þeim eru bornir saman tveir hópar, jafn­gildir að öllu leyti nema ein­stak­lingar í öðrum fá til­tekna með­höndlun en hinir gervi­með­ferð sem er við­mið­un­ar­hópur. Hann vitnar svo til rann­sóknar á Jansen-bólu­efn­inu. Til að meta alvar­leika ein­kenna voru í þeirri rann­sókn bornir saman tveir hópar, hvor með tæp­lega 9.000 ein­stak­linga. Til að gera töl­urnar sam­bæri­legar eru þær umreikn­aðar og rúnn­aðar miðað við 10.000 ein­stak­linga.

Af 10.000 bólu­settum ein­stak­lingum smit­uð­ust 36. En af sam­bæri­legum fjölda í við­mið­un­ar­hópnum smit­uð­ust 127 ein­stak­lingar. Það bendir til að bólu­efni Jansen veiti 71 pró­sent vernd gegn smiti.

Hægt er að beita sam­bæri­legum reikn­ingi til að meta lík­urnar á alvar­legum ein­kennum, skrifar Arnar. Í lyfja­próf­inu fyrir Jansen voru bornir saman um 20.000 manna hópar, bólu­settir og ekki. Af þeim sem voru bólu­settir fengu fimm alvar­leg ein­kenni en af sam­bæri­legum fjölda í við­mið­un­ar­hópnum smit­uð­ust 35 ein­stak­lingar. Það bendir til að bólu­efni Jansen veiti 86 pró­sent vernd gegn alvar­legum ein­kennum.

Arnar segir að setja verði ákveðna fyr­ir­vara við þessar rann­sóknir. Lyfja­próf­anir séu ekki alveg sam­bæri­legar með til­liti til ald­urs, kyns, þjóð­ernis og fleiri breyta. Mik­il­væg­ust af þeim er lík­lega hegð­un­ar­mynstur fólks á meðan prófin fóru fram. Hegðuðu allir sér eðli­lega eða voru sam­komu­tak­mark­anir í gangi? Að auki eru veirur ekki endi­lega þær sömu á öllum svæðum. Nið­ur­stöð­urnar gætu því litið öðru­vísi út að teknu til­liti til ólíkra afbrigða.

Og þá komum við að delta í gríska staf­róf­inu.

Afbrigði kórónuveirunnar, sem hvað mest hafa breiðst út, eru nú kennd við stafi úr gríska stafrófinu.
Afbrigði kór­ónu­veirunnar, sem hvað mest hafa breiðst út, eru nú kennd við stafi úr gríska staf­róf­inu.

Í fyrstu voru veiru­af­brigði kennd við þau lönd sem þau upp­götv­uð­ust fyrst í. Það breska. Það suð­ur­a­fríska. Það brasil­íska. Öll þessi afbrigði eru með aðra eig­in­leika en upp­runa­lega veiran sem notuð var í fyrstu rann­sókn­unum við þróun bólu­efn­anna. Nýverið var farið að kalla afbrigðin nöfnum gríska staf­rófs­ins og það sem nú hefur breiðst mest og hrað­ast út, og var áður kennt við Indland, hefur fengið nafnið delta.

„Lands­lagið breytt­ist mikið með delt­unni,“ segir Arnar við Kjarnann spurður um hvaða þýð­ingu afbrigðið hafi á smit­hættu. Deltan, eins og Arnar kallar hana, er „miklu hæf­ari“ en hin afbrigðin – hún er mun meira smit­andi og sam­fara minni tak­mörk­unum í flestum ríkjum heims síð­ustu vikur, hefur hún náð að dreifa sér víða „og verður alls­ráð­andi þar sem hún nemur land“.

Þrátt fyrir að bólu­setn­ingar séu langt á veg komnar á vest­ur­löndum, sem einnig breyti lands­lag­inu, „þá snýst borðið aftur“ með delta-afbrigð­inu og enn hraðar með minni tak­mörk­unum nú en fyrir nokkrum vikum. „Þá opn­ast mögu­leikar fyrir veiruna á ný.“

Að bólusetja alla og á sem stystum tíma er markmið sem gagnast allri heimsbyggðinni
Að bólu­setja alla og á sem stystum tíma er mark­mið sem gagn­ast allri heims­byggð­inni

Arnar grípur til mynd­máls og segir: „Þetta er ten­inga­kast. Þeim mun fleiri ten­ingum sem er kastað, þeim mun lík­legra er að stökk­breyt­ingar verði á veirunni henni í hag. Hvert ein­asta smit, hér­lendis sem erlendis, er tæki­færi fyrir veiruna til að stökk­breyt­ast. Líkurnar á að delta stökk­breyt­ist í enn meira smit­andi afbrigði eru ennþá umtals­verðar.“

Delta, rétt eins og hin fyrri afbrigði sem hafa sér­stak­lega verið undir smá­sjá heil­brigð­is­yf­ir­valda, kom fram við ákveðnar aðstæður. Þar sem smit var útbreitt og litlar tak­mark­anir við lýði. Flest hófu þau að breið­ast út áður en bólu­setn­ingar komu til.

Óverndaðir hópar eru leikvöllur fyrir veiruna

Og þar liggur enn einn hund­ur­inn graf­inn. Þótt bólu­setn­ingar á Íslandi, í Evrópu og á Vest­ur­löndum almennt séu orðnar nokkuð almennar, eru mörg af fjöl­menn­ustu svæðum heims á byrj­un­ar­reit. Þar, til dæmis í Afríku þar sem aðeins um 2 pró­sent íbúa hafa fengið bólu­setn­ingu, er ten­inga­kastið enn stöðugt. Ten­ing­arnir nær ótelj­andi. Veiran hefur millj­ónir lík­ama á millj­ónir ofan til að flakka óheft á milli – án þeirra varna sem bólu­setn­ingar þó veita.

„Mann­kynið mun ekki ná taum­haldi á far­aldr­inum fyrr en öll heims­byggðin verður bólu­sett,“ segir Arnar, „og mögu­lega þarf fleira til að hægt verði að útrýma veirunni alveg.“ Ákaflega mik­il­vægt sé að að bólu­setja alla, ekki aðeins ákveðnar þjóðir eða þá elstu í hverju sam­fé­lagi. „Allir óvernd­aðir hópar eru leik­völlur fyrir veiruna. Þannig að það er öllum heim­inum í hag að við náum að bólu­setja sem flesta á sem stystum tíma.“

Hvernig atburð­irnir þró­uð­ust á Indlandi ætti að vera öllum víti til varn­aðar. Þar voru nær engar tak­mark­anir í gildi og fáir bólu­settir. Og þá varð deltan til. „Það er fyr­ir­séð að þetta muni fara úr bönd­unum á fleiri stöðum,“ segir Arnar af hrein­skilni. Afbrigðið sé þegar búið að stökk­breyt­ast og nú séu menn farnir að tala um „delta plús“.

Yfirvöld hafa vissu­lega sagt að það sé full ástæða til að fara var­lega en fólk virð­ist ekki með­taka það sem við­vörun. Það heyrir bara „aflétt­ing“. Það heyrir góðu frétt­irnar en ekki varnaglana.

Við vitum öll hvernig veiran smit­ast. Með dropa­smiti, úða­smiti og með lofti. Hegðun fólks er því enn stærsta breytan þegar kemur að því að verj­ast sýk­ingu. Nánd­ar­reglan var ekki kennd við nánd fyrir ekki neitt.

„Ég sé sterk rök fyrir því að hafa hemil á ferða­lögum og verja landa­mæri og reyna að koma í veg fyrir að veiran breið­ist út eins og sinu­bruni,“ segir Arnar. Því er að hans mati skyn­sam­legt skref að krefja alla ferða­menn um að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi, hvort sem þeir eru bólu­settir eður ei.

En hvernig mun þetta enda?

„Maður er far­inn að efast um að það verði nokkurn tím­ann hægt að útrýma veirunni miðað við hversu útbreidd hún er orðin og hvernig eig­in­leikar hennar eru,“ svarar Arnar. „Fólk getur verið smitað en ein­kenna­laust og sömu­leiðis verður fólk minna veikt með bólu­setn­ingum. Þannig að hún gæti náð að krauma í sam­fé­lag­inu eða á vissum land­svæðum án þess að við áttum okkur á því. Af því að hún er þannig gerð verður alltaf erfitt að útrýma henni.“

Þrátt fyrir að engar fjölda­tak­mark­anir séu í gildi, engin grímu­skylda eða 2-metra regla, allt þetta sem við kvöddum með við­höfn í Safna­hús­inu 25. júní, þá er enn mjög mik­il­vægt að fólk gæti sín. Engar reglur þurfi ekki að þýða að skyn­sam­legt sé að vera í miklum mann­fjölda. Snerta mann og annan. Viljandi eða óvilj­andi. „Ég held að því ættu allir að stíga var­lega til jarðar í því sam­bandi,“ segir hann spurður hvort fólk ætti að forð­ast fjöl­mennar hátíðir. „Ég per­sónu­lega forð­ast enn fjöl­menna við­burði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár