Ísrael búið að gera samning við Pfizer, eins og Ísland vonast eftir

For­sæt­is­ráð­herra Ísraels seg­ist hafa náð samn­ingi við Pfizer um að selja rík­inu nægt bólu­efni til að bólu­setja alla Ísraela fyrir lok mars. Í stað­inn fær Pfizer töl­fræði­gögn frá Ísrael, sem hefur bólu­sett 18 pró­sent lands­manna til þessa.

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra segist hafa náð samningum við Pfizer með því að tala 17 sinnum beint við forstjóra lyfjarisans í síma.
Benjamín Net­anjahú for­sæt­is­ráð­herra seg­ist hafa náð samn­ingum við Pfizer með því að tala 17 sinnum beint við for­stjóra lyfj­aris­ans í síma. Mynd: EPA

Benjamín Net­anjahú for­sæt­is­ráð­herra Ísraels til­kynnti á blaða­manna­fundi í gær að allir ísra­elskir rík­is­borg­arar, 16 ára og eldri, gætu fengið bólu­setn­ingu fyrir lok mars, sam­kvæmt samn­ingi sem hann hefði náð við for­stjóra lyfj­aris­ans Pfizer.

Samkvæmt frétt mið­ils­ins Times of Israel snýst samn­ing­ur­inn um að Ísrael verði „fyr­ir­mynd­ar­land“ Pfizer, sem myndi fá töl­fræði­gögn um virkni bólu­efn­is­ins í land­inu.[links]

Svipaðar hug­myndir hafa verið viðr­aðar af Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni og Kára Stef­áns­syni for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar og greint var frá því fyrir jól að þeir hygð­ust funda saman með for­svars­mönnum Pfizer núna í upp­hafi nýs árs.

Sótt­varna­læknir hefur sagt að hug­mynd að því að Ísland gæti orðið „rann­sókn­ar­setur fyrir fasa IV rann­sókn þar sem að stærsti hluti þjóð­ar­innar yrði bólu­settur á stuttum tíma“ hafi verið „viðruð í tölvu­pósti sótt­varna­læknis til full­trúa Pfiz­er“ þann 15. des­em­ber.

Sautján símtöl

Net­anjahú sagði frá því á blaða­manna­fundi að hann hefði kom­ist að sam­komu­lagi við Pfizer með hvorki fleiri né færri en sautján sím­tölum við Albert Bourla, for­stjóra lyfj­aris­ans.

„Við getum gert þetta af því að heil­brigð­is­kerfi okkar er á meðal þeirra þró­uð­ustu í heimi,“ hefur Times of Israel eftir for­sæt­is­ráð­herr­anum.

[adspot]

Hann full­yrti að allir Ísraelar yfir 16 ára aldri ættu að geta fengið bólu­setn­ingu fyrir lok mars­mán­aðar. Ef ekk­ert óvænt kæmi upp á gætu Ísraelar haldið upp á páska­há­tíð gyð­inga þann 27. mars með stór­fjöl­skyld­unni.

Palestínumenn skildir eftir

Íbúar í Ísrael eru tæp­lega 9 milljón tals­ins, en til við­bótar búa fleiri en 5 millj­ónir manna á hernumdum svæðum Palest­ínu­manna, Vest­ur­bakk­anum, Austur-Jer­úsalem og Gaza-strönd­inni.

Ísraelar hafa ekki í hyggju að bólu­setja Palest­ínu­menn með bólu­efn­inu sem kemur frá Pfizer. Það hefur verið harð­lega gagn­rýnt og bent hefur verið á að Ísraelar verði sam­kvæmt alþjóða­lögum að sjá fólk­inu á hernumdu svæð­unum fyrir nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu.

Því hafa stjórn­völd í Ísrael neitað og sagt heima­stjórn Palest­ínu­manna bera ábyrgð á bólu­setn­ingum.

Heima­stjórnin treystir sam­kvæmt frétt mið­ils­ins Mondoweiss á að fá bólu­efni í gegnum bólu­efna­sam­starf Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO). Það mun taka lengri tíma.

Pfizer var búið að falast eftir gögnum frá Ísrael

Eins og Kjarninn sagði frá nýlega hefur Ísrael farið hratt af stað í bólu­setn­ing­unni, hraðar en nokkuð annað ríki heims.

Fyrir viku síðan var búið að bólu­setja milljón manns og í gær var búið að bólu­setja tæp­lega 1,6 milljón manna, eða tæp 18 pró­sent Ísraela, sam­kvæmt frétt Bloomberg. Hlut­falls­lega er það miklu mun meira en í nokkru öðru landi.

Í frétt Times of Israel segir að greint hafi verið frá því í öðrum miðlum að Pfizer hafi fal­ast eftir því að fá gögn frá Ísrael um virkni bólu­setn­ing­anna, en Ísrael hafi neitað lyfj­aris­anum um aðgang að gögnum um bólu­setn­ing­arnar – þar til í gær.

Í stað­inn fyrir að láta gögn af hendi og gera Pfizer kleift að fylgj­ast með og rann­saka fær Ísrael meira af bólu­efni frá Pfizer og fyrr en áætlað var.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fréttin hefur verið upp­færð með upp­lýs­ingum sem varða bólu­setn­ingar Palest­ínu­manna á hernumdum svæðum Vest­ur­bakk­ans, Austur-Jer­úsalem og Gaza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár