Landsbankinn búinn að höfða mál gegn Borgun

Lands­bank­inn hefur stefnt Borgun hf., for­stjóra Borgunar hf., BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum.

„Málið er höfðað til við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu stefndu. Það er mat bank­ans að hann hafi orðið af sölu­hagn­aði við sölu á 31,2% hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bankinn fékk ekki upp­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutnum, þ. á m. mögu­lega hlut­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­ar­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Banka­ráð Lands­bank­ans til­kynnti í ágúst að ákveðið hefði verið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. á árinu 2014.

Lands­­banki Íslands, sem íslenska ríkið á, sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í nóv­em­ber 2014 þar sem fram kom að Stein­þór Páls­­son banka­­stjóri, hefði und­ir­­ritað samn­ing um sölu á 31,2 pró­­sent eign­­ar­hlut í Borg­un. Kaup­verðið á hlutnum var tæp­­lega 2,2 millj­­arðar króna og var kaup­andi hlut­­ar­ins Eign­­ar­halds­­­fé­lag Borg­unar Slf. þar sem stjórn­endur Borg­unar voru meðal hlut­hafa.

Ekk­ert for­m­­legt sölu­­ferli fór fram áður en félagið var selt, en Magnús Magn­ús­­son, for­svar­s­­maður félags­­ins, var sá sem setti sig í sam­­band við Lands­­banka Íslands og sýndi áhuga á kaupum á hlut Lands­­bank­ans. Kaupin fóru því fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn.

Máls­höfð­unin byggir á því að Lands­bank­inn hafi verið hlunn­far­inn þar sem ekki voru lagðar fram upp­lýs­ingar um mögu­legt aukið virði Borg­un­ar, vegna kaupa VISA Inc. á VISA Europe.

Sam­kvæmt frétt Kjarn­ans frá því 9. febr­úar á þessu ári, reikn­aði Borgun með því að fá 33,9 millj­­ónir evra, um 4,8 millj­­arða króna, í pen­ingum þeg­ar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borg­un, líkt og aðr­ir ­leyf­­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­­mæt­i 11,6 millj­­ónir evra, eða um 1,7 millj­­arðar króna. Auk þess mun Visa Inc. greiða ­leyf­­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu ­starf­­semi Visa í Evr­­ópu á næstu fjórum árum, en hlut­­deild ­Borg­unar af þeirri fjár­­hæð mun ráð­­ast af við­­skiptaum­­svifum Borg­unar sem hlut­­fall af heild­­ar­við­­skiptaum­­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Því er ljóst að Borgun fengi um 6,5 millj­­arða króna auk afkomu­tengdar greiðslu árið 2020 vegna sölu Visa Europe.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár