Ekkert lát á fjölgun ferðamanna: Met slegið í janúar

Fjöldi banda­rískra og kín­verskra ferða­manna tvö­fald­að­ist milli jan­úar í fyrra og jan­úar í ár. Fjöldi Kanada­manna þre­fald­að­ist. Aldrei hefur verið eins mikil aukn­ing milli ára í jan­úar.

Tæplega 136 þús­und erlendir ferða­menn fóru frá Íslandi í jan­úar síð­ast­liðnum. Aldrei áður hefur mælst jafn mikil aukn­ing í jan­úar milli ára frá því að Ferða­mála­stofa hóf taln­ingar á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Aukn­ingin milli ára er 58.400 manns, eða 75,3 pró­sent. Hingað til hefur aukn­ingin mest orðið 40,1 pró­sent milli áranna 2013 og 2014. Í jan­úar árið 2013 komu ríf­lega 33 þús­und erlendir ferða­menn hingað til lands.

Bretar og Banda­ríkja­menn voru sam­an­lagt um helm­ingur ferða­manna sem komu til lands­ins í nýliðnum mán­uði. Bretar voru 28,2% og Banda­ríkja­menn voru 22,8%. Þessar tvær þjóðir eru lang­fjöl­mennastar ferða­manna hér á landi, en þar á eftir koma Kín­verjar, sem voru 5,4% og Þjóð­verjar sem voru 4,4%. Frakkar voru 3,3 pró­sent, Kanda­búar 3,1%, Japanir 2,4% og Hol­lend­ingar 2,2%.

Banda­ríkja­mönnum fjölg­aði lang­mest milli ára í jan­úar, en þeir voru ríf­lega tvö­falt fleiri í ár en í fyrra og fjölg­aði um 16.500 manns. Bretum fjölg­aði um 39,4% milli ára. Fjöldi Kínverja tvö­fald­að­ist, 83,7% aukn­ing var meðal Þjóð­verja og fjöldi Kanada­manna þre­fald­að­ist. Þessar fimm þjóðir báru uppi 62,9% af aukn­ingu ferða­manna milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár