Mynd: Þuríður Erla Sigurgeirsdóttir.

Lífróður á Galtarvita

Ólafur Jónasson leikmynda­hönnuður er einn eigenda vita­jarðarinnar Kefla­víkur á Vestfjörðum þar sem Galtar­viti stendur. Hann eyðir flestum sínum fríum í einangr­un­inni í Keflavík þar sem hann hlustar á álfa og huldufólk. Lista­fólkið streymir í kyrrðina til hans rétt eins og göngumenn sem þreyttir fá að hvíla lúin bein.

Bátur lónar úti fyrir Galtar­vita. Hann er að koma með vistir fyrir ferðahóp sem dvelur í vitavarðar­húsinu. Það er þungt í sjóinn og brimaldan brotnar á ströndinni. Báts­verjar hika. Þeir gera tilraun til að komast í gegnum brim­garðinn en snúa jafn­harðan við. Ólafur Jónasson stendur í fjörunni og bíður átekta. Loks gefast þeir á bátnum upp. Þeir fleygja vistunum í sjóinn og sigla á brott. Ólafur fylgist áhyggju­fullur með kassa og sjópoka velkjast um í sjónum. Góssið nálgaðist land en síðan hreyfðist ekkert. Ólafur hikar ekki andartak. Hann göslar út í ískalt hafið og er kominn upp undir hendur þegar hann nær taki á kassanum sem hefur að geyma kjöt og kál fyrir svanga ferðamenn. Hann bröltir á land um hála steina og í gegnum þara­vöndla. Hann glottir þegar hann lýsir því að svona væri þetta oft við ysta haf, ófært á land. En hvernig byrjaði þetta allt saman?

„Ég sá auglýsingu í blaði þar sem jörðin og húsin að undan­skildum sjálfum vitanum var til sölu. Ég hafði aldrei komið í vitann og vissi lítið um hann. En ég gat ekki hætt að hugsa um þetta og skilaði inn tilboði,“ segir Ólafur Jónasson leikmynda­hönnuður sem árið 2000 keypti jörðina Keflavík með öllum húsakosti. Undan­skilinn er sjálfur Galtar­viti sem er í eigu ríkisins. 

Jörðin, sem er í dalverpi við litla vík milli Súganda­fjarðar og Skála­víkur, er án allra vega­samgangna. Helsta samgöngu­leiðin er af sjó eða um fjörur eða fjall frá Súganda­firði eða Skálavík. Það ferðalag tekur í það minnsta þrjár klukku­stundir við bestu skilyrði. Þegar Ólafur setti inn tilboðið hafði jörðin um árabil verið í eyði. Fyrir mörgum var það óðs manns æði að kaupa jörðina sem er algjör­lega einangruð í verstu veðrum og þá aðeins fær fuglinum fljúgandi. 

Lífróður á bátsskel

Ólafur ólst upp á Ísafirði og bjó þar til 24 ára aldurs. Hann vissi því af Galtar­vita án þess að hafa komið þangað. Staðurinn hafði yfir sér blæ dulúðar. 

„Maður hlustaði á veður­fréttir þar sem Galtar­viti var nefndur. En ég vissi svo sem lítið annað um vitann en það að hann var einhver­staðar að fjalla­baki, nálægt Bolungarvík,“ segir Ólafur. 

Nokkru eftir að hann sendi inn tilboð í jörðina barst honum svar. 

„Mér var tilkynnt að gengið hefði verið að tilboði mínu. Ég hafði 10 daga til að taka endanlega ákvörðun um það hvort ég keypti. Ég ákvað að fara og sjá eignina í fyrsta sinn,“ segir Ólafur. 

Þetta var í nóvember­mánuði og veturinn að læðast að. Hann fékk félaga sinn, Hermann Þorsteinsson, til að sigla með sig frá Súganda­firði og fyrir Gölt að Galtar­vita þar sem hann ætlaði að dveljast í nokkra daga og kynnast staðnum. Á leiðinni horfði hann á kolsvarta hamrana sem gnæfðu yfir stór­grýttri fjörunni. Sumstaðar var fjaran á kafi og aðeins hátt bjargið að sjá. Þarna höfðu vita­verðir gengið um en þurftu að gæta þess að fara um á fjöru. Ólafur segir að sú stund þegar hann sá vitann hafi verið mögnuð. Það gekk þó ekki áfalla­laust að komast í fjöruna. 

„Ég réri hálf­gerðan lífróður í land á litlum báti. Ég fékk yfir mig gusu og lenti í sjónum. Það var ekki beinlínis slæmt í sjóinn en þó kom ein og ein alda. Þá gerði ég þau mistök að lenda á röngum stað í fjörunni. Ég var auðvitað að koma þangað í fyrsta sinn og vissi ekki betur,“ segir Ólafur. 

Samstíga
Samstíga Ólafur og Díana Júlíusdóttir, sambýlis­kona hans, eru bæði hugfangin af Galtar­vita og umhverfi vitans. Þau nota hvert tækifæri til að fara í kyrrðina í Keflavík.

Svaf úti

Ólafur kom bátnum á þurrt og  brölti upp í fjöruna. Farangur hans var blautur. Þetta var ekkert sérstak­lega góð byrjun. Hann fór heim í húsið og skoðaði sig um. Í Galtar­vita er ljósavél en Ólafur kunni ekkert á hana. Það var ískalt í húsinu og Ólafi leist ekki á að sofa þar. 

„Ég vissi ekki hvernig ætti að koma ljósa­vélinni í gang. Það var því ekki hægt að koma ljósi á húsið. Ég ákvað því að sofa úti. Ég náði í rekavið og hlóð bálköst í húsgrunni. Svo kveikti ég eld og bjó um mig undir berum himni. Ég kom fyrir eldhús­borði til að skýla mér. Þetta var mögnuð nótt. Norður­ljósin dönsuðu á himninum og ég sofnaði við sjávar­hljóðin,“ segir Ólafur. 

Hann vaknaði síðan reglulega um nóttina þegar eldurinn var að kulna. Þá bætti hann á eldinn og hélt áfram að sofa. Eftir heim­sóknina á Galtar­vita hélt hann aftur til byggða. Að þessu sinni fór hann um fjallið og kom niður um Bakka­skarð til Skála­víkur. 

„Ég lenti í dálitlu basli á heim­leiðinni. Það var talsverður snjór og færið þungt. Þá bætti ekki úr skák að ég fór í rangan dal og þurfti að klífa snar­bratta hlíðina. Ég var nánast örmagna þegar ég náði upp á toppinn. En ég fann Bakka­skarð og komst niður í Skálavík. Svo komst ég til byggða, angandi eins og brennu­vargur eftir að hafa sofið við bálið,“ segir Ólafur. 

„Ég ákvað því að sofa úti. Ég náði í rekavið og hlóð bálköst í húsgrunni. Svo kveikti ég eld og bjó um mig undir berum himni.“

Eigandi vitajarðar

Það var ekki aftur snúið eftir heim­sóknina. Ólafur var orðinn hugfanginn af vitanum og staðfesti kaup­tilboðið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár