Ráðherra leggur til að flugvallareglur ráðherra trompi skipulagsáætlanir sveitarfélaga

Í nýju frum­varpi til laga um loft­ferðir er lagt til að ráð­herra verði heim­ilt að setja skipu­lags­reglur fyrir flug­velli sem gangi framar skipu­lagi sveit­ar­fé­laga. Formaður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar segir þetta „galið.“

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mælti fyrir frumvarpinu í gær.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, mælti fyrir frum­varp­inu í gær. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nýtt frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra til breyt­inga á loft­ferða­lögum felur í sér að ráð­herra muni geta sett skipu­lags­reglur fyrir flug­velli sem gangi framar svæðis-, aðal- og deiliskipu­lagi sveit­ar­fé­laga.

Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar og borg­ar­full­trúi Pírata, segir að hún telji frum­varp ráð­herra „galið“ að þessu leyti.

„Við fyrstu sýn slær það mig sem til­raun ráð­herra til að svipta sveit­ar­fé­lög á Íslandi skipu­lags­vald­inu og ekki annað hægt en að for­dæma það,“ segir Sig­ur­borg Ósk í skrif­legu svari til Kjarnans, innt eftir við­brögðum.

Sveit­ar­fé­lög lands­ins yrðu, sam­kvæmt frum­varp­inu, bundin af því að haga skipu­lagi á og umhverfis flug­vall­ar­svæði í sam­ræmi við skipu­lags­reglur ráð­herra og gerð yrði krafa á þau um að sam­ræma skipu­lags­á­ætl­anir sínar við reglur ráð­herra, setji hann slíkar.

Þetta er ein­ungis eitt margra efn­is­at­riða í afar efn­is­miklu frum­varpi um heild­ar­end­ur­skoðun laga um loft­ferðir, en frum­varpið ásamt grein­ar­gerð er næstum því 135 þús­und orð og snýst að mestu leyti um inn­leið­ingu ýmssa Evr­ópu­reglu­gerða um flug­mál inn í íslenskan rétt með laga­setn­ingu.

Sigurður Ingi vakti þó sér­stak­lega athygli á þessu eina afmark­aða atriði á Instagram-síðu sinni í gær­kvöldi, eftir að hann mælti fyrir frum­varp­inu á þingi síð­degis.

Í núgild­andi lögum um loft­ferðir segir að ráð­herra sé heim­ilt að setja skipu­lags­reglur fyrir flug­velli, en ekki er kveðið á um að skipu­lags­regl­urnar séu bind­andi fyrir sveit­ar­fé­lögin þar sem flug­vell­irnir eru stað­settir eða gangi framar skipu­lagi þeirra. Það er nýnæmi í þessu frum­varpi ráð­herra.

Ekki unnið í samráði við sveitarfélög

Sig­ur­borg Ósk segir að hún telji frum­varpið með öllu óásætt­an­legt. „Alveg óháð því hver hans per­sónu­lega afstaða til flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri er, þá er þetta frum­varp með öllu óásætt­an­legt. Í frum­varp­inu er lagt til að skipu­lags­reglur flug­valla, sem ráð­herra setur, eigi að ganga framar aðal­skipu­lagi. Það er galið og ekki unnið í sam­ráði við sveit­ar­fé­lög þessa lands,“ segir Sig­ur­borg Ósk.

Hún segir að á Íslandi sé það „grund­vall­ar­at­riði að sveit­ar­fé­lög fái sjálf að haga upp­bygg­ingu innan sinna marka eins og þau telja best. Aðal­skipu­lög eru fag­lega unnin skipu­lög fyrir íbúa þessa lands og ótækt að ríkið ætli sér að umbylta því. Hvort sem um er eða ræða Reykja­vík eða Akureyri, skipu­lags­valdið hvílir þar,“ segir for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar.

Reykjavíkurborg sagði skipulag sveitarfélaga rétthærra en skipulagsreglur ráðherra

Er frum­varpið var til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í haust gerðu bæði Reykja­vík­ur­borg og Samtök íslenskra sveit­ar­fé­laga athuga­semdir við þetta ákvæði, sem þó rataði efn­is­lega sam­hljóða inn í hinn mikla laga­bálk sem nú hefur verið lagður fram í þing­inu.

[adspot]

Í umsögn Reykja­vík­ur­borgar sagði meðal ann­ars að sam­kvæmt rétt­hæð rétt­ar­heim­ilda sem gildi sam­kvæmt íslenskum rétti gætu skipu­lags­reglur ekki vikið til hliðar svæðis-, aðal- og deiliskipu­lagi sem sett væri á grund­velli skipu­lags­laga, heldur þyrftu skipu­lags­reglur flug­vallar alltaf að vera í sam­ræmi við það skipu­lag sem gildi á hverjum tíma í því sveit­ar­fé­lagi sem hýsir flug­völl.

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga sagði að huga þyrfti mjög vel „að sam­spili lög­bund­ins skipu­lags­hlut­verks sveit­ar­fé­laga og heim­ild ráð­herra til setn­ingar skipu­lags­reglna.“

„Við setn­ingu skipu­lags­reglna hlýtur ráð­herra að þurfa að taka mið af skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins og þar með bregð­ast við með setn­ingu nýrra reglna, innan ákveð­inna tíma­marka, þegar sveit­ar­fé­lög gera breyt­ingar á skipu­lagi sem hefur áhrif á áhrifa­svæði flug­valla. Í því sam­bandi þarf að hafa sér­stak­lega í huga þann eðl­is­mun sem er á rétti sveit­ar­fé­laga til heild­ar­skipu­lags á sínu svæði ann­ars vegar og þrengra mark­miði skipu­lags­reglna um flug­ör­yggi hins vegar,“ sagði í umsögn Sam­bands­ins, sem hvatti ráðu­neytið einnig til að taka mið af athuga­semdum Reykja­vík­ur­borgar um málið.

Kjarninn fal­að­ist í morgun eftir við­tali við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra um þetta efn­is­at­riði frum­varps­ins, en engin við­brögð hafa feng­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár