Stjórnvöld stígi ekki skrefinu lengra „heldur 100 skrefum lengra“

Breyta ætti styrkja­kerfi svo bændur geti fram­leitt lofts­lagsvænni afurðir. Markmið um aukna græn­met­is­fram­leiðslu eru þörf en metn­að­ar­leysi ein­kennir kröfur um sam­drátt í losun frá land­bún­aði. Kjarninn rýnir í umsagnir um aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum.

Grunnsviðsmyndin sem lögð er til grundvallar aðgerðum er varða landbúnað byggir á væntum breytingum á fjölda búfjár samkvæmt mati Umhverfisstofnunar auk 10 prósent fækkunar sauðfjár samkvæmt búvörusamningum við sauðfjárbændur.
Grunn­s­viðs­myndin sem lögð er til grund­vallar aðgerðum er varða land­búnað byggir á væntum breyt­ingum á fjölda búfjár sam­kvæmt mati Umhverf­is­stofn­unar auk 10 pró­sent fækk­unar sauð­fjár sam­kvæmt búvöru­samn­ingum við sauð­fjár­bændur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Land­vernd og Samtök græn­kera á Íslandi gagn­rýna að ekki sé stigið lengra í mark­miðum um sam­drátt í losun frá land­bún­aði á Íslandi í nýrri aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum. „Metn­að­ar­leysi“ segja Samtök græn­kera í ljósi þess að búast megi við miklum breyt­ingum á neyslu­venjum í fram­tíð­inni. Bænda­sam­tök Íslands segja land­búnað lyk­il­inn að fæðu – og nær­ingar­ör­yggi Íslend­inga og því megi ekki gleyma þegar komi að því að for­gangs­raða verk­efnum til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum þessa þriggja aðila um aðgerða­á­ætl­un­ina. Á fjórða tug umsagna barst frá fyr­ir­tækjum, stofn­unum, félaga­sam­tökum og ein­stak­lingum en hér verður lögð áhersla á land­bún­að­inn.

„Það er ein­kenni­legt að svo stór los­un­ar­þáttur eins og land­bún­aður eigi ekki að draga úr sinni losun, sér­stak­lega með til­liti til þess að rík­is­stjórnin stýrir í raun land­bún­að­ar­fram­leiðslu á Íslandi,“ segir m.a. í umsögn Land­verndar um aðgerða­á­ætl­un­ina.

[adspot]

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði hefur hald­ist til­tölu­lega stöðug und­an­farin ár og svar­aði í lofts­lags­bók­haldi Íslands fyrir árið 2018 til um 12 pró­sent af heild­ar­losun Íslands. Grunn­s­viðs­myndin sem lögð er til grund­vallar aðgerðum er varða land­búnað byggir á væntum breyt­ingum á fjölda búfjár sam­kvæmt mati Umhverf­is­stofn­unar auk 10 pró­sent fækk­unar sauð­fjár sam­kvæmt búvöru­samn­ingum við sauð­fjár­bændur.

[links]Aðgerða­á­ætl­unin gerir ráð fyrir 5 pró­sent sam­drætti miðað við losun við­mið­un­ar­árs­ins 2003 en 9 pró­sent sam­drætti ef miðað er við losun árs­ins 2018. Bænda­sam­tökin hafa sett sér umhverf­is­stefnu þar sem fyrsta mark­miðið er stefnt skuli að kolefn­is­hlut­leysi land­bún­að­ar­ins fyrir árið 2030.

Í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda er að finna mark­mið um að auka græn­met­is­fram­leiðslu um 25 pró­sent. Þetta seg­ist Land­vernd styðja heils­hugar en jafn­framt þurfi að stefna að sam­drætti í fram­leiðslu á dýra­af­urðum.

Land­vernd bendir á að breyttar neyslu­venjur á kom­andi árum verði til þess að draga megi úr fram­leiðslu dýra­af­urða en við slíka fram­leiðslu losni umtals­vert magn af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum. „Það er tíma­bært að ríkið dragi úr hvötum (nið­ur­greiðslum) til neyslu á afurðum með hátt kolefn­is­fót­spor. Ástæða er til að leggja vax­andi áherslu á lofts­lagsvænan land­búnað eins og græn­metis- og korn­rækt. Sú stað­reynd að ríkið veitir fram­leiðslu á land­bún­að­ar­vörum veru­lega styrki er tæki­færi sem ber að nýta að fullu.“

Þess verði að gæta að bændur þurfi ekki að bregða búi sam­hliða fækkun naut­gripa og sauð­fjár. Leggja sam­tökin til að fyr­ir­komu­lagi styrkja í land­bún­aði verði breytt og bændur fái greitt fyrir að búa og stunda atvinnu­starf­semi á jörðum sínum óháð því hvaða afurðir þeir fram­leiða líkt og nú er gert. „Gott dæmi úr for­tíð­inni er að þegar riða kom upp í Fljóts­dal fyrir hálfri öld þá fengu bændur styrki til þess að vera áfram á jörðum sínum og byrja með skóg­rækt sem sam­fé­lagið nýtur sann­ar­lega góðs af í dag.“

Lausnin felst ekki í að hætta framleiðslu

Bænda­sam­tök Íslands segja í sinni umsögn um aðgerða­á­ætl­un­ina að lofts­lags­breyt­ingar muni hafa áhrif á allar hliðar fæðu­ör­yggis; fæðu­fram­boð, aðgengi að mat­vælum, nýt­ing­ar­mögu­leika sem og stöð­ug­leika í fram­leiðslu­ferlum. „Þetta er mik­il­vægt að hafa í huga þegar for­gangs­raðað er í mögu­legum sam­drátt­ar­að­gerðum, að lausnin felst ekki í því að hætta fram­leiðslu ákveð­inna land­bún­að­ar­af­urða heldur horfa á mat­væla­fram­leiðslu sem hringrás og upp­sprettu mik­il­vægra afurða fyrir nýjar mat­væla­hringrásir.“

Samtökin segja nýja aðgerð áætl­un­ar­innar um aukna íslenska græn­met­is­fram­leiðslu mjög fram­sýna og þarfa. „Græn­metis­neysla mun aukast á næstu árum, er lyk­il­inn að fjöl­breyttu matar­æði og sjálf­bærni mat­væla­hringrás­ar­innar og því ein af und­ir­stöðum þess að gera land­bún­að­ar­tengdu mat­væla­hringrás­ina lofts­lagsvæna.“

Samtök græn­kera á Íslandi fagna því að upp­færð aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum hafi litið dags­ins ljós en harma að sama skapi aðgerða­leysi stjórn­valda þegar kemur að land­bún­aði og neyslu á dýra­af­urðum hér á landi.

Í skýrsl­unni komi fram að ung­menni á Íslandi vilji að dregið verði úr kjöt­neyslu og að sú áhersla eigi að end­ur­spegl­ast í aðgerða­á­ætl­un­inni. „Þó er aðeins að finna eina aðgerð sem snýr að því að draga úr kjöt­neyslu og hún er veikt orðuð,“ benda sam­tökin á. Losun frá land­bún­aði sé „gíf­ur­lega mikil“ en aðgerðir er snerta land­búnað séu þær metn­að­ar­laus­ustu í nýju aðgerða­á­ætl­un­inni. „Það er sann­ar­lega rými til þess að gera betur.“

Í umsögn sam­tak­anna er því velt upp hvort Íslend­ingar séu hræddir við að ræða það að kjöt­neysla sé óum­hverf­is­væn og minna jafn­framt á að land­læknir hafi m.a. sagt að lands­menn borði of mikið kjöt, „en þó er eins og eng­inn vilji raun­veru­lega hvetja þá til þess að minnka neysl­una“.

Sam­tök­unum finnst stjórn­völd eiga að vera til fyr­ir­myndar þegar kemur að lofts­lagsvænu matar­æði. „Hvers vegna er ekki boðið upp á græn­ker­a­fæði í öllum opin­berum stofn­unum og mat­ar­spor Eflu eða sam­bæri­legur kolefn­is­reiknir settur upp í mötu­neyt­unum? Við fögnum því að stjórn­völd ætli að gera inn­kaup vist­vænni en fram kemur í áætl­un­inni að „stefna ætti að því að halda neyslu á rauðu kjöti í hófi“ en þetta orða­lag þykir okkur helst til veikt og óljóst. Við viljum gjarnan fá að fylgj­ast með þeirri fram­kvæmd og hvernig standa á að henni. Við viljum þó sjá stjórn­völd stíga ekki bara skref­inu lengra, heldur 100 skrefum lengra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár