Karolina Fund: Þegar ég fróa mér

Íris Stefanía Skúla­dóttir safnar sögum um sjálfs­fróun kvenna og gefur út í riti.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Þegar ég var fjórtán ára þá gerði ég til­raun, ásamt vin­konu minni, til þess að opna umræð­una um sjálfs­fróun kvenna því okkur fannst strák­arnir í kringum okkur algjör­lega eiga þessa umræðu. Við höfðum einnig rek­ist á könnun þar sem stóð að af stelpum og strákum á okkar aldri þá fró­uðu 20% kvenna sér en 80% karla. Okkur fannst eitt­hvað bogið við þessar nið­ur­stöður og lang­aði að skoða þetta frekar.

[adspot]Við fengum bæði strák­ana og stelp­urnar í bekknum með okkur í lið og ætl­uðum að gera könnun og mæla hlut­fall á milli kynj­anna í bekknum með það að leið­ar­ljósi að opna umræð­una og skapa sam­tal á milli kynj­anna þar sem bæði kynin hefðu til­kall til umræð­unnar. En þegar kom að fram­kvæmd könn­un­ar­innar þá var það ungur kven­kyns kenn­ari sem stöðv­aði hana. Skila­boðin voru að þetta mætti ekki ræða. Síðan þá hefur það brunnið á mér að ræða þessi mál. Í haust byrj­aði ég í meist­ara­námi í sviðs­listum í LHÍ og mun þetta efni vera mín rann­sókn út námið.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þemað er kyn­hegðun fólks með fókus á kon­una. Ég set þennan fókus því eins og rann­sóknir sýna að þá er narra­tí­van þegar kemur að gagn­kyn­hneigðu kyn­lífi mjög eins­leit og miðar ekki að því að báðir aðilar fái full­næg­ingu. Þegar mað­ur­inn er búinn að fá það að þá er kyn­lífið búið, burt séð frá því hvort konan hafi fengið það eða ekki. Það er meira svona bónus. Sem er synd.

Konur eiga erf­ið­ara með að fá það með mönnum og ætti því að setja fókus á hennar full­næg­ingu. Til gam­ans má geta að ég las rann­sókn sem sýndi að les­bískar konur fá það sex sinnum oftar en gagn­kyn­hneigðar konur í kyn­lífi sem teng­ist þess­ari narra­tívu sem ég kom aðeins inn á en hún er ekki eins skýr þegar kemur að sam­kyn­hneigðu kyn­lífi nefni­lega. Þurfa því ein­stak­lingar sem sofa hjá sama kyni að byrja á að finna út hvað þeim finnst best því það er ekki búið að segja þeim, í bíó­myndum og bókum og fleira, hvernig þeir eiga að haga sér í kyn­lífi.

Með því að byrja á þessum stað, að safna sjálfs­fró­un­ar­sögum, þá er ég að opna á umræð­una um mál sem er enn þá tabú og mikil leynd er yfir. Mark­miðið er að hvetja konur, ungar konur og ung­linga til þess að finna hvað þeim finnst best, læra inn á eigin lík­ama og njóta þess að njóta kyn­lífs með sér sjálfum og öðrum.

Ég sé þetta verk­efni ekki sem enda­punkt heldur upp­haf af ein­hverju stærra. Ég er rétt að byrja. Mig langar líka að bjóða öllum áhuga­sömum að koma á útgáfu­sýn­ingu sem haldin verður í Gallerý Port að Laug­ar­vegi 23b. Þar geta þeir sem keyptu ritið sótt það og um leið notið mynd­listar, upp­lestrar og léttra veit­inga með okkur. “

Hér má skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár