Fyrir einu ári síðan: Umdeild Pia Kjærs­gaard sækir Ísland heim

Mikið fjaðrafok var fyrir einu ári síðan þegar fyrr­ver­andi for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins og for­seti danska þings­ins heim­sótti Ísland til þess að flytja ræðu á hátíð­ar­fundi Alþingis sem hald­inn var á Þing­völlum.

Pia Kjærs­gaard, fyrr­ver­andi for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins og nú for­seti danska þings­ins, heim­sótti Ísland í boði Stein­gríms J. Sig­fús­sonar til að flytja ræðu á hátíð­ar­fundi Alþingis sem hald­inn er á Þing­völlum til að minn­ast 100 ára afmælis full­veld­is­ins.

Ekki er ofsögum sagt að heim­sóknin hafi valdið miklum usla en mikil gagn­rýn­is­alda reið yfir sam­fé­lagið í kjöl­far frétt­anna.

Pia Kjærs­gaard er einn stofn­enda Danska þjóð­ar­flokks­ins og leiddi flokk­inn á árunum 1995 til 2012. Hún er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður í Dan­mörku og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu og inn­flytj­endum og íslam sér­stak­lega.

Árið 2001 skrif­aði Kjærs­gaard í frétta­bréf flokk­ins að múslimar væru lygar­ar, svindl­arar og svik­ar­ar. Hún var kærð fyrir þessi ummæli en ekki ákærð af yfir­völd­um. Ári síðar var hún sektuð fyrir að hóta konu með pipar­úða, sem að auki var brot gegn dönskum vopna­lög­um. Kjærs­gaard sagði sér til varnar að hún hafi upp­lifað sér ógnað og tal­aði í kjöl­farið fyrir breyt­ingu á lög­un­um, svo eitt­hvað af afrekum hennar séu nefnd. Þá hefur hún beitt sér fyrir því að lokað sé fyrir útsend­ingar arab­ískra sjón­varps­stöðva í Dan­mörku, þar sem þær flyttu hat­ursá­róður og vildi að öllum inn­flytj­endum sem gerst hefðu brot­legir við dönsk lög yrði vísað úr landi.

„Með öllum hætti við­eig­andi“

Helgi Bern­ód­us­son skrif­stofu­stjóri Alþingis sagði í sam­tali við Kjarn­ann fyrir ári síðan, aðspurður um hvernig það hefði komið til að Kjærs­gaard væri fengin til þess að vera hátíð­ar­ræðu­maður á fund­inum, að það væri ein­fald­lega skýrt með sam­bands­laga­samn­ingnum milli Íslands og Dan­merkur sem und­ir­rit­aður var 18. júlí fyrir 100 árum síð­an. Ákveðið hefði verið að Kjærs­gaard, sem for­seti danska þings­ins, kæmi hingað til lands af þessu til­efni fyrir hönd danska þjóð­þings­ins.

„Það er með öllum hætti við­eig­andi að for­seti danska þings­ins sé hérna af þessu til­efni. Síðan er áformað að drottn­ingin komi hingað 1. des­em­ber,“ sagði Helgi en frum­varpið til sam­bands­lag­anna sem und­ir­ritað var 18. júlí 1918 tók gildi þann 1. des­em­ber sama ár.

Mis­jafn­lega tekið

Ýmsir tjáðu sig um komu Piu og ræðu­höld hennar á hátíð­ar­fund­in­um.

Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóri Efl­ingar sendi Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis tölvu­póst þar sem hann kom á fram­færi mót­mælum og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvernig ákvörð­unin um val Kjærs­gaard hefði farið fram.

Þór­unn Ólafs­dótt­ir, sem starfað hefur mikið með flótta­mönn­um, bæði hér á landi og erlendis og var auk þess hand­hafi mann­rétt­inda­verð­launa Reykja­vík­ur, tjáði sig einnig um málið á sam­fé­lags­miðlum en á Twitt­er-síðu sinni sagði Þór­unn að með því að gera hana að hátíð­ar­ræðu­manni væri verið að normalísera óásætt­an­leg við­horf og hegð­un.

Egill Helga­son sjón­varps­maður fjall­aði um Piu og hátíð­ar­fund­inn á blogg­síðu sinni þar sem hann sagði hana varpa skugga á hátíð­ina og vera stjórn­mála­mann af því tagi sem Íslend­ingar vildu helst sjá sem minnst af.

Grímur Atla­son fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóri og eig­in­maður Helgu Völu Helga­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar sagði það nið­ur­lægj­andi að velja Kjærs­gaard sem hátíð­ar­ræðu­mann, hún stæði fyrir allt það sem hann fyr­ir­líti mest í þessum heimi.

Jón Kalman Stef­áns­son rit­höf­undur sagði ákvörðun Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seta Alþing­is, að hafa boðið Piu Kjærs­gaard að ávarpa hátíð­ar­fund Alþing­is, klaufa­lega og ætti hann að biðj­ast afsök­un­ar, segja af sér og leyfa öðrum að taka við.

Guð­­mundur Andri Thors­son, rit­höf­undur og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, skrif­aði einnig gagn­rýn­inn pistil vegna komu Kjærs­gaard til lands­ins sem bar tit­il­inn „Um kurt­eisi“ og birt­ist fyrst á Kjarn­­an­um. Dönsk þýð­ing pistils­ins birt­ist svo í Information, ásamt skýr­ingu á orð­inu „Stórdan­i“ sem á að lýsa hroka­­fullu við­­móti Dana í garð Íslend­inga.

Kjær­s­gaard sagði í kjöl­farið skrif Guð­­mundar Andra lykta af hræsni, móð­­ur­­sýki og „ís­­lenskri minn­i­mátt­­ar­­kennd.“ Guð­­mundur svar­aði gagn­rýn­inni og sagði hana byggj­­ast á sýn Stórdan­ans á Íslend­inga.

Gekk út af fundinum

Á fund­inum fjall­aði Kjærs­gaard meðal ann­ars um tengsl Íslands og Dan­merkur. Hún sagð­ist finna fyrir sér­stakri gleði að feta í fót­spor dönsku sendi­nefnd­ar­innar, sem und­ir­rit­aði sam­komu­lagið um sam­bands­lög ríkj­anna tveggja, en sendi­nefndin gerði sér ferð á Þing­velli þegar hún var á land­inu. Hún lof­aði íslenska nátt­úru og sagði að Danir hafi litið til Íslands sem það land sem varð­veitti upp­haf­legu sjálfs­mynd nor­ræna manna. Hún sagði jafn­framt að litið hefði verið á Ísland sem vöggu nor­rænar menn­ingar.

Helga Vala Helgadóttir yfirgefur hátíðarfundinn.
Helga Vala Helga­dóttir yfir­gefur hátíð­ar­fund­inn.

Athygli vakti þegar Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gekk út af hátíð­ar­fund­inum þegar Kjærs­gaard steig á svið til að halda ræðu sína. Píratar sögð­ust fyrir fund­inn ekki geta veitt Kjærs­gard lög­mæti með nær­veru sinni og kusu því að snið­ganga fund­inn. Þingmenn Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og tveir þing­menn Vinstri grænna, Þau Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, klædd­ust lím­miðum sem á stóð „Nej til racism,“ eða „Nei við kyn­þátta­hatri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár