Af hverju vilja Rússar alltaf vera í vörn?

Banda­ríkja­menn og Rússar reyna nú að koma sam­skiptum ríkj­anna í samt lag. Rússnesk stjórn­völd hafa þó lít­inn áhuga á því að Rússland verði lýð­ræð­is­sam­fé­lag eftir höfði Vest­ur­landa – styrkur þess liggi í að vera óút­reikn­an­legt her­veldi.

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, tekur í höndina á Joe Biden, þáverandi varaforseta Bandaríkjanna, í Moskvu fyrir tíu árum síðan.
Vladímír Pútín, for­seti Rúss­lands, tekur í hönd­ina á Joe Biden, þáver­andi vara­for­seta Banda­ríkj­anna, í Moskvu fyrir tíu árum síðan. Mynd: EPA

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti og Vladimir Pútín for­seti Rúss­lands munu hitt­ast til við­ræðna í Genf í Sviss á mið­viku­dag­inn. Ekki er lík­legt að fund­ur­inn valdi neinum straum­hvörfum í sam­skiptum ríkj­anna en þau hafa verið mjög stirð að und­an­förnu. Donald Trump hafði hrein­lega hampað Pútín og því þurfti Biden að marka afger­andi stefnu til að aðgreina sig frá for­vera sínum með hertum aðgerðum gagn­vart Rússum. Biden og Pútín þekkj­ast frá fyrri tíð, er sá fyrr­nefndi var vara­for­seti Banda­ríkj­anna og hefur látið í ljós að hann hafi ekk­ert allt of mikið álit á Rúss­lands­leið­tog­anum.

Stirð samskipti við Bandaríkin

Rússland, sem var burð­ar­ríkið í Sov­ét­ríkj­unum, tók hik­andi skref í átt að opn­ara sam­fé­lagi og mark­aðs­hag­kerfi á tíunda ára­tugnum. Þau skref hafa vel­flest verið stigin til baka, sér í lagi eftir að Pútín tók aftur við for­seta­emb­ætti árið 2012. Rússnesk stjórn­völd hafa í tíð Pútíns spyrnt við fótum gagn­vart hinni vest­rænu alþjóða­væð­ingu sem þeim hefur þótt flæða full hratt yfir með kröfum um aukið lýð­ræði og opið sam­fé­lag.

Þetta á einnig við um fyrrum lýð­veldi heims­veld­is­ins fyrr­ver­andi eins og Hvíta Rússland og Úkraínu, sem mynda eins­konar brjóst­vörn gagn­vart Vest­ur­löndum í hugum þeirra sem fylgja Pútín að málum. Frekari þróun í átt að vest­rænum gildum ógnar þannig aug­ljós­lega stöðu Rúss­lands að þeirra mati, og afleið­ingin er að landið hefur hrokkið til baka til ein­ræð­is­legra stjórn­ar­hátta fyrri tíma.

Banda­ríkja­menn hafa hert refsi­að­gerðir gagn­vart Rússum vegna ýmissa saka; afskipta af kosn­ingum, ofsókna og jafn­vel morð­til­rauna gagn­vart aðgerðasinnum, and­ófs­fólki og rúss­neskum blaða­mönnum, þar á meðal Alexei Navalny sem nú er í fang­elsi, netárása víða um heim, og yfir­gangs í Úkraínu og víðar. Rússar hafa aftur á móti gagn­rýnt Banda­ríkja­menn fyrir að hafa blandað sér í inn­an­rík­is­mál sín og ógnað alþjóð­legum stöð­ug­leika.

Það er því af nógu að taka ef bæta á sam­skipti ríkj­anna tveggja. Pútín seg­ist ganga út frá því þeir Biden verði að reyna að finna leiðir til að bæta tví­hliða sam­skipti ríkj­anna sem hann segir hafa verið í lág­marki. Pútín segir einnig þurfa að ræða stra­tegískan stöð­ug­leika milli ríkj­anna, lausnir vegna helstu átaka­svæða heims­ins, bar­átt­una gegn hryðju­verkum, við heims­far­ald­ur­inn og umhverf­is­mál. Hann kveðst ekki búast við afger­andi árangri á fund­inum í Genf en hann gæti orðið byrj­unin að því að koma sam­skiptum ríkj­anna í réttan far­veg.

Vestræn áhrif – Pútín nýtir sér og kyndir undir þjóðernishyggju

Þegar fjallað er um alþjóða­sam­skipti er jafnan talað um að aðgreina yfir­lýs­ingar sem séu til heima­brúks. Þá tala stjórn­mála­menn á til­tek­inn máta til hópa inn­an­lands sem oft er fjarri raun­veru­leik­anum í alþjóð­legu sam­hengi – oft til að styrkja stöðu sína eða koma höggi á and­stæð­inga. Þetta er sér­stak­lega mik­il­vægt að hafa í huga þegar Rússland er ann­ars vegar því þar ríkir mikil þjóð­ern­is­hyggja sem stjórn­völd reyna að efla enn frekar með hörðum yfir­lýs­ingum. Þar birt­ist sú mynd að Rússland og hin rúss­neska þjóð eigi í vök að verj­ast gegn ýmis­konar ógn, sér í lagi þeirri sem kemur frá Vest­ur­löndum.

Pútín hefur stjórnað að hætti ein­valds und­an­farin 20 ár og haldið á lofti þeirri hug­mynd að með ágangi Vest­ur­landa sé í húfi ein­hvers­konar guð­leg arf­leifð Rúss­lands. Pútín hefur í ræðum sett sjálfan sig í sögu­legt sam­hengi, látið í það skína að hann sé heil­agur Vladimir prins end­ur­bor­inn, sá sem sam­ein­aði hið forna ríki Rúss­lands, Hvíta-Rúss­lands og Úkraínu á tíundu öld. Þessi tvö fyrrum Sov­étlýð­veldi hafa því ákveðna sér­stöðu hjá Rússum og hvað sem alþjóða­lögum um full­veld­is­rétt ríkja líður þá líta þeir svo á að þessi ríki til­heyri í raun Rúss­landi.

Pútín á því dyggan stuðn­ing innan til­tek­ins hóps, sem lítur á hann sem vernd­ara Rúss­lands, þjóð­ar­innar og hinna sönnu rúss­nesku gilda. Með slíkri orð­ræðu – sem auð­vitað hefur við­geng­ist lengi þó hún hafi verið á aðeins öðrum for­sendum á tímum Sov­ét­ríkj­anna – hefur þessum hópi verið talin trú um að vest­ræn menn­ing sé á ein­hvern hátt óhrein og úrkynjuð. Nái hún útbreiðslu í Rúss­landi þýði það hnignun þjóð­ar­innar.

Vestrænt lýð­ræði geti m.a. af sér sam­kyn­hneigð, úrkynjun og óeðli með auknum rétt­indum kvenna og hin- og kynsegin fólks – en sam­kvæmt opin­berri stefnu þá er sam­kyn­hneigð ekki til í Rúss­landi. And­stæðan og svarið við þessu er sönn karl­mennska, eins og sú sem Pútín sýnir gjarnan. Pútín hefur þannig gert sjálfan sig að lyk­il­manni í þess­ari bar­áttu og beitir óspart gam­al­reyndum aðferðum til að sverta óvini rík­is­ins og þjóð­ar­innar, sem hann muni síðan veita vernd gegn.

Þarna þarf líka að skoða hug­tökin þjóð og ríki í öðru ljósi en t.d. almennt á Vest­ur­löndum því að mörkin milli rík­is­valds­ins og þjóð­ar­innar eru ógreini­legri í því fasíska stjórn­ar­fari sem Pútín hefur inn­leitt. Jafn­framt er ein­stak­ling­ur­inn minna met­inn því hann til­heyrir þjóð sem hefur göf­ugri til­gang en hans eigin hags­muni.

Hin eilífa ógn er grundvöllur valdakerfisins og sæti við borð stórveldanna

Rússum finnst þeir vera í varn­ar­stöðu, eins og þeir hafa í raun löngum verið, því er þjóð­holl­usta og öryggi Rúss­lands grund­vall­ar­at­riði í þjóð­arsál­inni – sé slíkt fyr­ir­bæri til. Rússar byggja til­vist, fram­tíð og styrk rík­is­ins á hern­að­ar­mætti sem verður þá hluti af karl­mennskuí­mynd­inni sem Pútín leggur áherslu á.

Þarna er mjög mik­il­vægt að hafa í huga að Rússar eru í bráð ekk­ert að fara að vera til friðs og reyna að aðlaga sig hinum vest­ræna hugs­un­ar­hætti. Þeir eru annað mesta hern­að­ar­veldi heims og styrkur þeirra liggur í hern­að­ar­mætt­inum þar sem kjarn­orku­vopn liggja til grund­vallar. Ekki ein­ungis á tákn­rænan og óbeinan hátt heldur eru kjarn­orku­vopn bein­línis hluti af hern­aðar- og varn­ar­á­ætlun Rúss­lands.

[links]Það þjónar því rúss­neskum hags­munum vel að vera í þess­ari varn­ar­stöðu, sem kallar á að hnykla vöðvana, sýna hern­að­ar­mátt og tryggja Rússum þannig sæti við borð stór­veld­anna. En þeir sjá einnig að með mark­vissri beit­ingu fjöl­þátta­hern­aðar geti þeir valdið usla og óróa og grafið undan keppi­nautum og óvinum en jafn­framt stutt stjórn­mála­öfl til valda sem eru hlið­holl Rússum – hvort sem það er í Banda­ríkj­unum eða á Balkanskaga.

Þeir nota Hvíta-Rússland, hvar Lúk­asjenkó for­seti er alger­lega undir hælnum á stjórn­völdum í Kreml, sem til­rauna­stofu til að sjá hversu langt þeir geta gengið. Má þar nefna þegar far­þega­þot­unni var snúið til Minsk þar sem blaða­mað­ur­inn Roman Protasevich var hand­tek­inn. Rússar segj­ast jafn­framt vera að verj­ast yfir­gangi Vest­ur­landa og nota gjarnan afsök­un­ina: þið Banda­ríkja­menn gerið svona, af hverju ættum við ekki alveg eins að mega það?

Þeir vilja samt sem áður halda opnum sam­skiptum við Banda­ríkin á hefð­bundnum stór­velda­grunni því Rússar líta svo á að það séu í raun bara stór­veldin sem skipti máli þegar full­veldi ríkja er ann­ars vegar.

Rússar vilja halda áhrifum í fyrrum lýðveldum – skortir mjúkt vald?

Nú telja Rússar sig sjálf­kjörna sem for­ystu­ríki á svæð­inu sem áður til­heyrði Sov­ét­ríkj­unum, og þeir vilja reyna að líma saman aftur að ein­hverju leyti. Þeir telja mik­il­vægt að halda áhrifum í þessum ríkjum, sem hafa veitt þeim ákveðið land­fræði­legt skjól. Til þess hafa þeir beitt afls­munum, en ef vel ætti að vera þyrftu Rússar miklu fremur að vera aðlað­andi í augum þess­ara fyrrum Sov­étlýð­velda – sem Rússar kalla útlönd nær.

Til þess skortir þá þó efna­hags­legan styrk en öðru máli gegnir um svæði og ríki eins og Evr­ópu­sam­bandið og Kína sem þessi fyrrum Sov­étlýð­veldi lað­ast sum frekar að. Rússar eiga þó heil­mikið inni þegar kemur að mjúku valdi. Þeir eiga ríka menn­ing­ar­sögu, hvort sem það er á sviði alþýðu­menn­ingar eða í hámenn­ingu, tón­list, bók­menntum eða ballet – og hafa einnig allar for­sendur til að vera meðal fremstu þjóða heims þegar kemur að efna­hags­legri vel­sæld.

Núver­andi stjórn­völd virð­ast þó ekki sjá þann flöt á mál­inu, að með því að efla slíka þætti og tefla fram á alþjóða­vett­vangi, gæti það orðið til að styrkja stöðu Rússa – bæði gagn­vart fyrrum Sov­étlýð­veldum og umheim­inum almennt.

Rússar vilja verja „status quo“ ástand í valda­kerfi heims­ins, þar sem hin vold­ugu ríki fara fram í krafti afls­muna, og standa vörð um íhalds­söm gildi for­tíð­ar­innar. Rússland er ein­ungis ell­efta stærsta hag­kerfi heims en Rússar reyna með stefnu sinni að við­halda stöðu sinni sem heims­veldi sem í raun er ekki inni­stæða fyrir. Eftir því sem alþjóða­kerfið hefur þró­ast og vægi alþjóða­sam­starfs hefur orðið meira þá er þetta stefna og fram­koma sem verður sífellt erf­ið­ara að halda til streitu.

Hafa Rússar ástæðu til að vantreysta Vesturlöndum?

Rússar hafa ýmsar sögu­legar ástæður til að van­treysta Vest­ur­löndum og vera á varð­bergi. Rússland hefur mátt þola inn­rásir og stríð allt frá inn­rás Mongóla á þrett­ándu öld, Frakka undir stjórn Napól­e­ons á þeirri nítj­ándu eða Þjóð­verja á þeirri tutt­ug­ustu, svo þær helstu séu nefndar. Rúss­neska sam­bands­ríkið er víð­feðmt og þó ekki séu yfir­vof­andi nein afdrifa­rík skref ríkja innan þess í átt til sjálf­stæðis er ekki sjálf­sagt mál að það hald­ist í heilu lagi.

Rússum kann að hafa fund­ist vestrið koma af full miklum þunga og til­lits­leysi í fangið á þeim eftir að Sov­ét­ríkin leyst­ust upp. M.a. hefur lengi vel sú orð­ræða við­geng­ist að við lok kalda stríðs­ins hafi vest­ur­veldin svikið gefin lof­orð um að NATO myndi ekki verða stækkað meira til aust­urs en út að landa­mærum sam­ein­aðs Þýska­lands. Rússar hafa haldið þessu á lofti til vitnis um að ekki sé hægt að treysta NATO-ríkj­unum og orð­ræðan virð­ist hafa náð tals­verðri fót­festu, m.a. meðal ráða­manna í Vestur-Evrópu.

Stað­reyndin er hins vegar sú að eftir að Sov­ét­ríkin liðu undir lok var lít­ill vilji meðal ráða­manna í Rúss­landi, sem þó var í raun arf­taki Sov­ét­ríkj­anna, til að setja fyrrum lýð­veldum nein mörk. Rússland vildi þvert á móti aðgreina sig frá hinu sorg­lega tíma­bili sem þarna var lokið og Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn árið 1990 sem Rússar und­ir­rit­uðu, kvað á um að hin nýfrjálsu lýð­veldi hefðu fullt frelsi til að haga sínum örygg­is­málum að vild.

Rússar hafa lík­lega óþarfar áhyggjur af hern­að­arógn frá Vest­ur­löndum því það er engin hern­að­ar­leg inn­rás yfir­vof­andi þaðan sem stendur. Málið snýst um til­kall þeirra til yfir­ráða í sjálf­stæðum og full­valda ríkjum – fyrrum Sov­étlýð­veldum sem mynd­uðu krag­ann í kringum Rússland. Ef reynt er að koma auga á ein­hverja raun­veru­lega hern­að­ar­lega ógn sem steðjar að rúss­neska sam­bands­rík­inu þá kæmi hún frekar að austan, frá Kína sem er álíka ófyr­ir­leitið og Rússland þegar kemur að því að eigna sér yfir­ráða­svæði.

Andstaða við Pútín – átök í aðsigi?

Stuðn­ingur við Pútín hefur dvínað tals­vert á und­an­förnum árum en hann hefur áður lent í hremm­ingum, m.a. í kosn­ing­unum 2011 og 2012 þegar hann varð upp­vís að svindli. Nú hefur hrikt meira í stoð­unum, má þar nefna mót­mæli sem hafa harðnað vegna Navalny-máls­ins. Pútín hefur því verið að herða tökin á mót­mæl­endum og varð­halds­hús­næði verið vel nýtt. Þeir sem gagn­rýna stjórn­völd hafa verið skil­greindir sem erlendir erind­rekar sem gefur stjórn­völdum aukin völd til að hefta starf­sem­ina sam­kvæmt rúss­neskum lögum. Jafn­framt hafa til­raunir til að mið­stýra efna­hags­líf­inu valdið óánægju sem svo enn eykur spennu og óróa.

Þótt Rússum vegni að mörgu leyti betur og líti bjart­ari augum á fram­tíð­ina en áður eru mögu­leikar lands­ins van­nýttir. Við­skipta­þving­anir sem settar voru í kjöl­far inn­limunar Krím­skaga 2014 hafa haft hamlandi áhrif. Það er fólks­flótti úr hinum dreifðu byggðum, 30 þús­und smá­bæir og þorp hafa tæmst, 7–800 flug­völlum verið lokað. Pútín tók ekki við góðu búi en lengst af hefur lítil inn­viða­upp­bygg­ing þó átt sér stað. Hann hefur sann­fært fólk að ekki sé gott að eiga of mikið sam­starf við Vest­ur­lönd og nýtt ástandið til að blása inn­lendum frum­kvöðlum bar­áttu­anda í brjóst og lagt áherslu á að ástandið sé áskorun fyrir þá.

Í háskóla­sam­fé­lag­inu gengur því allt út á að sýna að þar dafni fram­úr­skar­andi þekk­ing og hátækni­þróun. Hins vegar hefur gagn­rýnni hugsun og tengslum við stjórn­mála­starf verið kerf­is­bundið haldið niðri. Þar er ástandið þrúg­andi því fólk er hrætt við ganga fram fyrir skjöldu af ótta við ofsóknir. Rúss­neskt sam­fé­lag er þó lík­lega mun kraft­meira og skap­andi en Vest­ur­landa­búar átta sig á. En um leið og það þró­ast og vill verða nútíma­legra horfir rík­is­stjórn Pútíns til for­tíðar – þar er átaka­línan dregin.

Þegar öllu er á botn­inn hvolft er stærsta áskor­unin sú að leið­togar Rúss­lands í dag eru í raun fangar gam­al­dags hugs­un­ar­háttar, þjak­aðir af minni­mátt­ar­kennd og bjóða ekki upp á raun­veru­lega fram­tíð­ar­sýn. Hræddir við Vest­ur­lönd, hræddir við Kína, hræddir við konur, hræddir við hin- og kynsegin fólk, hræddir við gagn­rýni, hræddir við frelsi og þar með hræddir við fram­farir.

Þetta heftir nýsköpun og efna­hags­vanda á helst að leysa með auknum bor­unum eftir jarð­efna­elds­neyti á Norð­ur­slóðum. Jafnvel fram­úr­skar­andi þekk­ing á innviðum inter­nets­ins og sam­fé­lags­miðla er nýtt til nið­ur­rifs og nei­kvæðra áhrifa. Meira að segja her­veldið Rússland byggir styrk sinn frekar á for­herð­ingu og mis­kunn­ar­leysi, en raun­veru­legri her­kænsku og lagni.

Erfitt að segja hvernig fer, hvort og hvenær muni sjóða upp úr. Þeir sem halda um stjórn­taumana núna ólust upp á tímum Brésnévs sem sendi and­ófs­menn í Gúlagið. Ef þeir halda að hægt sé að hafa stjórn á sam­fé­lag­inu með ógn­ar­stjórn, óeirða­lög­reglu, hand­tökum og fang­els­unum eru þeir lík­lega að mis­reikna stöð­una. Það er því ekki ólík­legt að haldi þessi þróun áfram, þar sem Pútín herðir tökin, muni sverfa til stáls og tek­ist verði harka­lega á um fram­tíð rúss­nesks sam­fé­lags. Fram­tíðin kemur nefni­lega, sama hversu fast er haldið í for­tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár